Víkurfréttir - 16.12.1999, Side 36
Draumurinn að leika
krimma á móti Travolta
Jón Marinó Sigurðsson er
Keflvíkingur sem er tilhúinn
að gera nánast hvað sem er
f'yrir frægðina. Hann hefur
meira að segja afrekað það
að konia nakinn fram fyrir
fullum sal af áhorfendum.
Jón, alias Jonni, smitaðist af
leiklistarbakteríunni fyrir
þremur árum síðan þegar
hann tók þátt í söngleiknum
Iíesta sjoppan í bænum. Við
hittumst á Kaffi Iðnó og
Jonni fékk sér te, segir það
ekki vera seinna vænna en
að venja sig á tedrykkju.
Hann er nefnilega ákveðinn í
að fara í leiklistarnám til
Englands á næsta ári.
Draumurinn er að fá að
leika krimma á móti hetj-
unni, John Travolta, í
Hollywood-mynd.
Syngurog dansar
Jonni er er borinn og barn-
fæddur Keflvíkingur, sonur
Ingibjargar Jónu Jónsdóttur og
Sigurðar Marinóssonar. Hann
segist eiga f'ullt af aukasystkin-
um, eins og það kallast. Jonni
er ekki bara upprennandi leik-
ari heldur hefur hann einnig
lært söng hjá Arna Sighvats-
syni og Sigurði Sævarssyni og
dans hjá Emilíu. Hann hefur
m.a. sungið með Léttsveit
Keflavíkur og fór með henni í
tónleikaferöalag til Boston
1998. „Það er stór þáttur að
geta dansað, hafa takt í sér og
að geta tjáð þig með öllum lík-
amanum. Þá kemur jtessi út-
geislun sem leikarinn stýrir til
áhoifenda". segir Jonni.
Guðný dró mig í leikfélagið
„Eg fékk hlutverk í söngleikn-
um Bestu sjoppunni í bænum
og lék þar töffarann Bóbó og
Guðnv Kristjánsdóttir, formað-
ur Lcikfélags Keflavíkur, lék á
móti mér. Hún dró mig svo í
leikfélagið". segir Jonni þegar
hann er spurður að því hvernig
hann hafi ratað á fjalimar en
fyrsta uppfærslan sem hann
tók þátt í hjá Frumleikhúsinu
var Leikhúslíf.
Skemmtilegurog
flinkur leikari
Sýningum á söngleiknum Oli-
ver er nýlokið en þar túlkaði
Jonni þjófaforingjann Fagin á
eftirminnilegan hátt. Hann
lékk stórgóðan dóm fyrir leik
sinn hjá Guðbrandi Gíslasyni,
leiklistaigagnrýnanda Morgun-
blaðsins, þar segir m.a. „Þó er
það stjaina þeirra Keflvíkinga,
Jón Marinó Sigurðsson, sent
j vinnur hug og hjörtu áhorf-
I enda sem Fagin. Jón Marinó er
| bæði skemmtilegur og flinkur
j leikari, og taktar hans og til-
! burðir eru eitt af þvf sem gerir
j þessa sýningu vel þess virði að
! sækja hana." Jonni segist ekki
i hafa búist við að fá svona góða
; gagnrýni en liann ætlar ekki að
! láta það hafa áhrif á sig heldur
; halda sínu striki.
Áieiðtil Bretlands
j Jonni segist vera farinn að
skoða skóla bæði á Englandi
og Skotlandi. Hann stefnir á að
j fara út í maí í enskuskóla, „til
i að ná hreimnum og venja mig
! á að drekka te". segir Jonni og
! slettir nokkrum orðum á ensku
j eins og enskum aðalsmanni
! sæmir. Drengurinn á örugg-
j lega eltir að spjara sig á Bret-
! landi með þessu áframhaldi.
„Ég er loksins búin að
finna það sem mig
langar til að gera. Eg
hef aldrei haft gaman af
að vera í skóla en núna
langar mig virkilega til
að læra eitthvað". segir
Jonni.
Vil leika
vondan karl
„Ég þaif að æfa mig fyr-
ir inntökuprófin og leik-
stjóramir sem ég hef
unnið með hér
heima ætla að
hjálpa mér. Ég
þarf að fara með
eitt eintal úr
Shakesp^ar og ann-
að að eigin vali. Þegar
ég er búinn með skólann
ætla ég mér að vera erlendis í
nokkur ár og reyna fyrir mér"