Víkurfréttir - 16.12.1999, Blaðsíða 59
lega mikill tími fari í að kynna
sjálfan sig og að finna verk-
efni. „Island er nánast eins og
vemdaður vinnustaður og sam-
keppnin með minnsta móti. í
L.A er mikil harka og í raun
offramboð á fólki því allir vilja
vera í Hollywood. Eftir að hafa
hafa sáð fræjum s.l. ár er upp-
skeran byrjuð að láta á sér
kræla“, segir Veigar en hann er
t.d. nýbúin að gera útsetningar
fyrir sinfóníuhljómsveitimar í
Oregon og Spokane. Hann er
einnig í samvinnu við nokkra
textahöfunda og er að semja
tónlist við kvikmyndir og aug-
lýsingar fyrir ýmsa aðila.
,,Þó að þetta sé erfitt á köflum
þá er þetta mjög skemmtilegt
starf því fjölbreytnin er mikil
og ég veit aldrei hvað kemur
næst.“ Veigar hefur ekki sagt
skilið við ísland þó hann sé
önnum kafinn erlendis, því
hann gerði nokkrar útsemingar
fyrir Stórsveit Reykjavíkur s.l.
sumar og lék inn á geisladiska
með íslenskum tónlistarmönn-
um.
Hollywood
Þegar fólk heyrir minnst á
Hollywood sér það e.t.v. fyrir
sér kvikmyndastjömur á hverju
homi og ævintýraheim. Veigar
segir að raunin sé allt önnur.
„Við höfum reyndar rekist á
Tom Hanks og Eddie Murpy
og ég hef einnig hitt James
Homer sem samdi tónlistina
fyrir Titanic og Jerry
Goldsmith, sem eru átrúnaðar-
goðin mín. Þetta eru bara
ósköp venjulegir menn sem
ganga um í órakaðir í galla-
buxum og strigaskóm.“ Veigar
segir að mannlífið sé svolítið
sérstakt í þessari háborg
skemmtanaiðnaðarins. „Það er
ekki mikill kærleikur og ham-
ingja sem fylgir þessu. Hér er
margt fólk sem svífst einskis.
Fólk er alltaf að leita að ein-
hverju efnislegu, en svo er
ekkert hér inni“, segir Veigar
og leggur höndina á brjóstið.
Hann segist hafa farið til L.A.
vegna þess að hann vildi vinna
við kvikmyndatónlist og þá er
þetta rétti staðurinn til að vera
á.
Kvikmyndatónlist heillandi
Veigar segist alltaf hafa stefnt á
að verða trompetleikari en þeg-
ar hann stóð uppá sviði í fyrsta
sinn og stjómaði hljómsveit þá
breyttist allt. „Eg fékk bara svo
rosalega mikið kikk út út því
að standa þama uppá pallinum
og stjórna, mikíu meira en
þegar ég spila á trompetinn. Ég
fann líka fljótt að þetta lá frek-
ar fyrir mér, þ.e. samspil
myndar og tónlistar.“ Veigar
segir að hlutverk kvikmynda-
tónskálds sé að gera myndina
betri en hún er og það finnist
honum mjög heillandi. Veigar
vann þrjár tónsmíðakeppnir
þegar hann bjó á Flórída og
var í öðru sæti í einni og það
hafði líka töluverð áhrif á feril-
inn. „Að vinna svona keppnir
er mjög gott fyrir ferlisskrána,
þá sér fólk að maður getur eitt-
hvað og dyr opnast. Ég hafði
meiri áhuga á dramatískri tón-
list frekar en poppi og djassi
og vettvangurinn fyrir slíka
tónlist er í kvikmyndum, þess
vegna er ég þar sem ég er í
dag“, segir Veigar.
Innblástur
Hvernig verður tónlistin til?
„Myndin er bam leikstjórans
og hann hefur ákveðnar hug-
myndir um hvemig hann vill
hafa tónlistina. Ég horfi á
myndina og yfirleitt kviknar þá
einhver hugmynd. Stundum
gerist það ekki og þá hlusta ég
yfirleitt á einhverja tónlist" og
Sirrý bætir við að þá geri þau
yfirleitt eitthvað allt annað,
eins og að fara í bíó. Veigar
hefur einnig fengist við að
semja auglýsingastef og hann
segir að það eigi vel við hann
að vinna undir pressu sem
fylgir slíkri vinnu. „Þegar
maður semur fyrir auglýsingar
þá verður maður að hafa í huga
að maður er að reyna að selja
eitthvað og tónlistin þarf að
virka á ákveðinn hátt. Þetta
form hentar mér vel því mér
finnst gott að hafa ákveðinn
ramma og að vita nákvæmlega
hvað fólk vill.“ Hingað til hef-
ur Veigar aðallega samið tón-
list fyrir styttri myndir, auglýs-
ingar og hljómsveitir en eftir
áramót fer hann að semja tón-
list við fyrstu kvikmyndina í
fullri lengd. „Ég fékk þetta
verkefni eftir að hafa sent um
200 manns bréf, svona verk-
efni koma ekki uppí hendumar
á mér, ég verð að hafa fyrir
hlutunum."
Misstu barnið sitt
„Það er ekki ofsögum sagt að
lífið hér er ekki alltaf dans á
rósuni og s.l. sumar var mjög
erfitt á köflum við að koma sér
áfram. Það voru okkur því
gleðifréttir þegar við vissum að
von væri á fjölgun hjá okkur.
Vetgarmeð moðursinmg
og Ragnhildi litlu i Los
Angeles. í baksýn sést
Okkur þótti það vera tilvalinn
tími þar sem Ragnhildur okkar
var orðin fimm ára gömul og
byrjuð í skóla. Okkur brá því
mikið þegar Sirrý greindist
með alvarlega meðgöngueitmn
eftir rúmlega fimm mánaða
meðgöngu og fæðing var eina
úrræðið til að bjarga lífi Sirrý-
ar. Þann 26. júlí fæddist okkur
lítil stúlka sem við gáfum
nafnið Rannveig. Hún lifði að-
eins í nokkrar mínútur og
vegna þess hve mikill fyrirburi
hún var, var ekki unnt að bjar-
ga lífi hennar. Þetta var okkur
mikið áfall og erfiður tími tók
við. Vtnur okkar Hafliði Krist-
insson, sem er prestur og er hér
í námi. var okkur stoð og stytta
á efiðum tímum. Það er ómet-
anlegt að hafa trausta vini þeg-
ar svona áföll dynja yfir. Mað-
ur finnur svo mikið fyrir því
hversu langt í burtu maður er
frá fjölskyldunni þegar sorgin
knýr dyra. Móðir Sirrýar kom
strax út til okkar og var okkur
til halds og trausts", segir Veig-
Neita að gefast upp
Þegar Veigar bjó á Islandi
hafði hann meira en nóg að
gera og hann segir skrýtið að
koma á stað þar sem hann þarf
að sannfæra fólk um ágæti sitt.
Hann segist samt hafa haft gott
af því að vita hvemig það er að
vera bara eitt af mörg þúsund
sílum í sjónum. „Lykilatriðið
er að trúa á sjálfan sig til að
komast áfram. Það var búið að
segja mér að þetta yrði erfitt og
maður verður bara að neita að
gefast upp. Ef maður neitar að
gefast upp þá tekst þetta fyrr
eða síðar. Stundum velti ég
fyrir mér hvort ég sé að gera
rétt. Við ákváðum að fjárfesta í
sjálfum okkur og ég vissi að ég
ætti að fara út í frekara nám þó
að ég væri í góðum vinnum
hér heima. Ég verð að viður-
kenna að ég stefni ekkert lágt“,
segir Veigar og Sirrý tekur
undir og bætir við að þau
hefðu eflaust aldrei farið út ef
þau hefðu vitað hvemig þetta
yrði. „Við höfðum ranghug-
myndir um Bandaríkin eins og
fleiri íslendingar", segir Veigar.
„Við ímynduðum okkur þegar
við fluttum til Boston að við
ættum eftir að búa í stóru, fall-
egu húsi en við bjuggum þar í
miður geðslegri íbúð þar sem
voru bæði kakkalakkar og
mús.“
Kostar blóð, svita og tár
Maður sér að þama fara sam-
hent hjón og þau hafa svo
sannarlega þurft að berjast fyr-
ir því að láta drauminn rætast.
Veigar segir að hann hafi
stundum heyrt fólk segja að
þau séu svo heppinn en sann-
leikurinn er sá að það hefur
þurft meira en heppni til að
komast þangað sem þau eru í
dag. „Við lögðum allt undir og
höfum lent í alls konar áföllum
eftir að við fluttpm út til
Bandaríkjanna. Ég missti
pabba minn, bróður minn og
svo misstum við bamið okkar í
surnar. Það er búið að kosta
okkur blóð svita og tár að láta
drauminn rætast en nú sjáum
við fyrir endann á þessu.“
ICELANDAIR
Hlaðþjónusta - Hlaðdeild
Flugleiðir óska eftir að ráða starfsfólk í
Hlaðdeild á Keflavíkurflugvelli nú þegar.
Leitað er eftir fólki sem hefur góða
samskiptahæfileika og þjónustulund.
Um er að ræða heilsdagsstörf
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi gild
ökuréttindi og vinnuvélaréttindi eru æskileg.
Aldurstakmark er 19 ára.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á
skrifstofu félagsins í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Starfsmenn Flugleiða eru lykillinn að velgengni félagsins.
Við leitum eftir duglegum og ábyrgum starfsmönnum sem
eru reiðubúnir að takast á við krefjandi og spennandi verkefni.
Flugleiðir eru reyklaust fyrirtæki og hlutu heilsuverðlaun
heilbrigðis ráðuneytisins vegna einarðrar stefnu féiagsins
og forvama gagnvart reykingum. Flugleiðir eru ferðaþjónustufyrirtæki
og leggja sérstaka áherslu á að auka skilning á þörfum markaðar og
viðskiptavina og þróa þjónustu sína til samræmis við þessar þarfir.