Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 03.02.2000, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 03.02.2000, Blaðsíða 2
m HEKLA Til eigenda bifreiða frá Heklu hf. á Suðurnesjum. Þar sem þjónustuaðili okkar í Keflavík, Bílaver K.Á. hefur hætt störfum, biðjum við viðskiptavini okkar á Suðurnesjum að snúa sér í framtíðinni til bifreiðaverkstæðisins Skiptingar ehf, Grófinni 19, Keflavík varðandi viðgerða- og varahlutaþjónustu. 0 HEKLA K. Steinarsson ehf. Notaðir bíiar MMC Galant GLSI vélarst. 2000 station Árg. '98 ek. 27 þús, vínrauður Verð kr. 1990.000 Toyota Avensis Árg. '98, ek. 40 þús. 4ja d. Rauður. ssk. 2000 vél. Verð kr. 1870.000 VWGolf MMC Colt GLXI Árg. '98, ek. 26 þús. 3ja d. Rauður. 5gíra 1400 vél. Verð kr. 1230.000 Árg. '92, ek.125 þús. 3jad. Hvítur. 5 gíra. 1600vél. Verð kr. 520.000 VW Caravella Árg. '98, ek. 90 þús. 5d. Grænn. 2500 vél. Diesel. Verð kr. 2150.000 MMC Carisma Árg. '98, ek. 14 þús. 4ra d. Rauður. 5 gíra. 1600 vél. Verð kr. 1430.000 M HEKLA Söluumboð K. Steinarsson ehf. Brekkustíg 39 • 260 Njarðvík Sími 421 5944 • Fax 421 5946 Frá vettvangi banaslyssins á Reykjanesbraut á þriðjudaginn. VF-ljósmynd: Silja Dögg Enn eitt banaslysið á Reykjanesbrautinni Fjörutíu og eins árs gömul kona beið bana eftir að tveir bflar lentu sanian við Kúa- gerði laust fyrir klukkan ellefu á þriðjudagsniorgun.. Hinn ökumaðurinn, maður á fimmtugsaldri, hlaut ekki alvarleg meiðsli. Engir farþe- gar voru í bflunum. Reykja- nesbrautin var lokuð fyrir allri umferð í tvær klukku- stundir. Að sögn sjónarvotta ætlaði konan, sem var á leið til Reykjavíkur, að reyna fram- úrakstur en hætti við. Þegar hún var að draga sig til baka á sinn vegarhelming leit út fyrir að hún hefði rnisst stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún lenti fram- an á fólksbifreið sem var á leið suður til Keflavíkur. Allt tiltækt björgunarlið úr Keflavík og Hafnarfirði var sent á slysstað en þá var konan enn með lífsmarki. Skömmu síðar kom sjúkraþyrla frá Landhelgisgæslunni á vettvang og flutti hún konuna á Sjúkrahús Reykjavíkur. Karl- maðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á Sjúkrahús Reykjavíkur til skoðunar en meiðsl hans voru ekki talin vera alvarleg. Hann hlaut þó einhverja áverka eftir bflbeltið. Lögreglulíð í Keflavfk og Grindavík sameinuð Borgarafundur verður í Grindavík í kvöld vegna sameiningar á iögregluliði Keflavíkur og Grindavíkur. Meðal fundargesta verður Sólveig Pétursdóttir dóms- málaráðherra sem fer nteð málefni löggæslu. Grind- víkingar eru ósáttir við breytingarnar. A undan- förnum mánuðum hefur verið unnið innan embættis sýslumannsins í Keflavík að tillögum um breytingar á löggæslu í umdæminu. Meginmarkmið er að sam- nýta mannafla lögreglunnar sem best með markvissri stjórnun þar sem fylgt yrði eftir markmiðum yfirstjórn- ar hverju sinni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu undirskrifaða af Jóni Eysteinssyni , sýslumanni sem blaðinu barst í gær á faxi. Aðspurður um málið játaði Jón að búið væri að gera fréttatilkynningu en sagðist ekki skilja hvemig hún hefði I____________________________ borist blaðinu. Það hefði verið samkomulag aðila að tjá sig ekki um málið fyrr en eftir borgarafundinn. I umræddri fréttatilkynningu kemur fram að lögregluliðinu hefur verið skipt í tvo starfs- hópa og hefur annar hópurinn haft aðstöðu í lögreglustöð- inni í Grindavík en hinn hóp- urinn í Keflavík. Þessi skipt- ing hefur leitt af sér óhagræði við nýtingu lögreglumanna og því hefur verið ákveðið að sameina starfshópana í einn með varðstjóm í lögreglustöð- inni í Keflavík, en áfram verð- ur starfsaðstaða fyrir lögreglu- menn í Grindavík. Með jress- um breytingum fæst að hægt er að halda úti þremur full- mönnuðum lögreglubifreiðum allan sólarhringinn, í stað einnar til þriggja eftir atvikum eins og er í dag. Breytingamar takagildi l.marsn.k. Afram verður starfandi að- stoðaryfirlögregluþjónn með aðsetur í Grindavík og mun hann sinna Grindavík og Vatnsleysustrandarhreppi. Þá mun ein lögreglubifreið, með tveimur lögreglumönnum, verða til taks allan sólarhring- inn. Á fæssu svæði búa tæp- lega 3000 manns og önnur verkefni lúta m.a. að umferð- argæslu á Grindavíkurvegi og á hluta Reykjanesbrautar. Starfsaðstaða þessara lög- reglumanna verður í Keflavík og í Grindavflc eftir atvikum. A sumri komanda em miklar breytingar fyrirhugaðar í fjar- skiptamálum lögreglunnar með tilkomu TETRA fjar- skiptakerfisins. Þá verður sameiginleg fjarskiptamiðstöð fyrir lögreglu á Suðvestur- landi tekin í notkun, en slík miðstöð dregur úr vægi ein- stakra varðstöðva þannig að hægt verður að nýta betur lög- reglumenn við eftirlit. Búast má við „fjöri“ á bor- garafundinum í kvöld þar sem heimamenn eru mjög ósáttir við jressa breytingu.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.