Víkurfréttir - 03.02.2000, Qupperneq 12
Enn ein atlaga Sýslumanns að öryggi Grindavíkinga:
Grindvískir lögregreglu-
þjónar til Keflavíkur
Nú hefur komið fram að
Sýslumaður vill flytja lögreglu-
menn í Grindavík til
Keflavíkur og láta þá framveg-
is ganga vaktir þar. Verður þá
ekki um neina lögreglu í
Grindavfk að ræða lengur og
þar af leiðandi stórskerta öryg-
gisþjónustu. Þessi aðgerð sem
kemur beint í kjölfar þess að
bakvaktirnar lögreglunnar í
Grindavík vom teknar af, sýnir
að mínu mati vel fjandskap
Sýslumanns í garð
Grindvíkinga. Megum við ekki
eiga vona á því að sýslumaður
slái síðasta naglann í kistuna
með því bjóða aðstoðar yfirlö-
gregluþjóninum í Grindavík
starfslokasamning og loka
skrifstofu embættisins í
Grindavík. Nú er hætt að halda
úti eðlilegri þjónustu á skrifsto-
fu sýslumanns í sumarleyfum.
Skert þjónusta á sama tíma og
mikil aukning er á verkefnum
skrifstofunnar. Mér sýnist þetta
vera þaulhugsaðar aðgerðir
með það að markmiði að
spara til að auka öryggi
"Grindvíkinga um leið og lög-
gæslan er tekin af þeim. Lítum
á ferilinn í tímaröð.
1. Meiri niðurskurður á yfirvin-
nu í Grindavík.
2. Bakvaktir teknar af.
3. Annar lögreglubíllinn tekinn
af lögreglunni í Grindavík.
4. Grindvískir lögreglumenn
settir á vaktir í Keflavík .
Hvað kemur næst? Eru þetta
eðlilegir starfshættir. Dæmið
sjálf.
Nú þegar stefnan er almennt í
landinu að auka grenndargæslu
færa löggæsluna nær fólkinu
og nýta staðháttar þekkingu
löggæslumanna, gerir sýslu-
maður þveröfugt.
Hversvegna ekki?
Grindavík er bæjarfélag með
um 2200 íbúa og fer fjölgandi.
Gestakomur í Bláalónið í hun-
druðum þúsunda.
Að minnsta kosti 15 –
20 mínútna akstur ef bíll er til
reiðu þegar kallið kernur.
Miklar vegabætur á vegi til
Krýsuvíkur og Suðurstranda-
vegurinn sem gera Grindavík
hluta af hringvegi og auka stór-
lega umferðarhraða og slysa-
hættu.
Mikil og aukin atvinnustarfse-
mi í bænum og aukin umferð
um höfnina eftir miklar hafnar-
bætur.
Mun meiri málafjöldi á hvem
lögregluþjón í Grindavík en í
Keflavik.
Mjög hátt hlutfall leystra mála
vegna staðháttarþekkingar.
Arangursrík framfylgni úti-
vistarreglna bama og unglinga.
7 manna vaktir í Keflavík eftir
breytinguna leyfa ekki úthald
fleir bíla en þeirra 2 sem eru í
notkun í dag og því yrði um
verulega skerta þjónustu að
ræða fyrir Grindvíkinga.
Hvað ertil ráða?
Nú verða almennir Grind-
víkingar að taka til hendinni.
Verðum við ekki að losa okkur
við þennan sýslumann?
Hvernig fóru Bolvíkingar og
Olafsfirðingar að þega það átti
að taka sýslumanninn frá þeim.
Bæjarbúar stoppuðu það.
Bæjarstjórnin hefur ályktað
margoft og rætt við þingmenn
enn ekki haft erindi sem erfiði.
Sýslumanni var boðið að
Grindavíkurbær borgaði kost-
nað við bakvaktir í nokkurn
tíma meðan unnið væri að
lausn en það vildi hann ekki.
Þetta er farið að lýkjast kross-
ferð gegn okkur. Nú verða
Grindvíkingar allir sem einn að
taka til hendi. Við skulum
safna undirskriftum til
Dómsmálaráðherra og krefjast
þess að Grindavík verði sett
aftur sem sjálfstæður liður á
fjárlögum og horfið frá
stöðugum niðurskurði og
skertri þjónustu í bænum. Nú
stöndum við saman Grind-
víkingar.
Jón Gröndal
FRÉTTIR
Fátækt í
Reykjanesbæ
Hundrað og sex aðilar í
Reykjanesbæ fengu fjár-
hagsaðstoð í desember og
þar af voru 56 umsóknir
um jólastyrki. Þetta kom
fram í fundargerð Fjöl-
skyldu- og félagsmálaráðs
Reykjanesbæjar frá 17.jan-
úar. Heildarupphæð styrkj-
anna nam rétt tæpum þrem-
ur milljónum króna. Alls
fengu 122 húsaleigubætur í
desember, samtals rúm ein
og hálf milljón króna.
Handtekin
með fíkniefni
Kona á fertugsaldri var
handtekin við Samkaup á
aðfaranótt lostudags,
grunuð um að vera undir
áhrifum fíkniefna. Leitað
var á konunni og á henni
fundust efni sem talin eru
vera fíkniefni. Konan var
færð á lögreglustöðina í
Keflavík og yfirheyrð en
sleppt að yfirheyrslu lok-
inni.
Gunnar Vilbergsson skrifar:
^iiaptgp dagir í löggaislg-
málum Gpineyvíkinua
Konpu
TlSKUHÚSIÐ
JOY
Halnargotu 24 • Slmi 4 2 1 3 2 55
Þá er tilkynningin komin frá
Jóni Eysteinssyni, sýslumanni,
dags. I. febrúar 2000. Lög-
reglan í Grindavík skal færð til
Keflavíkur að undanskyldum
aðstoðaryfirlögregluþjóni sem
þeir geta ekki fært þótt mikill
vilji sé fyrir hendi. Hann er sá
eini sem er skipaður í
Grindavík. í tilkynningu þess-
ari kemur fram að óhagræði
hafi verið við nýtingu lög-
reglumanna með því að hafa þá
á tveimur stöðum. Með þessu
sé hægt að halda úti þremur
lögreglubílum og skal einn af
þeim vera til taks í Grindavík
og Vogum allan sólarhringinn.
Þá vitum við þetta. Nú ætla ég
að skoða þessi rök. Sýslumaður
tók við lögreglunni í Grindavík
þegar árið 1974. Síðan þá hefur
verið lögregla undir hans stjóm
í Grindavík og ekkert við það
að athuga fyrr en ákveðinn full-
trúi kom til starfa við embættið.
Það virðast hafa verið hans ær
og kýr að færa þetta saman í
eitt sennilega s.l. 5 ár og nú
hefur það tekist. Þá kemur ein-
nig fram að einni lögreglu-
bifreið sé ætlað að „vera til
taks“ fyrir Grindavík , Voga og
Reykjanesbraut að auki.
Til að hægt sé að halda úti
þremur lögreglubifreiðum allan
sólarhringinn þurfa að vera
minnst 8 menn á vakt en nú eru
7 lögr.m. á vakt meirihluta
sólarhringsins. Nema kannski
það eigi að fjölga á vöktunum í
Keflavík. Taka af einum stað til
að treysta á öðrum er ekki ólík-
legt. Hvað með helgarvaktir.
Mín reynsla er sú að föstu-
dagskvöld og laugardagskvöld
eru annasamasti tíminn að jafn-
aði hjá lögreglumönnum. Svo
mikið er stundum að gera að
útköll bíða í stómm stíl. Hvað
með Grindavík á slíkum
tímum. Þeir geta væntanlega
bara beðið þangað til að þeim
kemur. Ég vorkenni lögreglu-
mönnum í Keflavík að starfa
við þessar aðstæður. Þeir eru
hinir mætustu menn og gera
sitt besta en ég veit að það
dugirekki til.
Nú er það svo þegar tveir
lögreglumenn eru í eftirliti
þreytast þeir og vilja líta við á
stöðinni. Þeir þurfa einnig að
skila skýrslum í vaktarlok.
Verður þá sendur annar bíll eða
vantar bara lögregluna.
Við flestir sem hafa starfað í
lögreglunni emm sammála því
að þetta sé nánast útilokað og
að halda því fram að þetta sé
aukning á löggæslu eru mestu
öfugmæli sem maður hefur
heyrt. Við höfum séð hvað
gerðist í Sandgerði og
Mosfellsbæ. I Reykjavík eru
menn að setja upp hverfastöðv-
ar í Breiðholti, Grafarvogi og
Arbæ. Þetta er gert til að færa
lögregluna nær fólkinu öfugt
við það sem er að gerast hér í
bæ Við skulum átta okkur á því
að þetta er ennþá ein öflugusta
verstöð landsins. Hér eru 3
frystitogarar og tugir báta. Við
erum með Orkuver Hitaveit-
unnar, Bláa-Lónið og mörg stór
fyrirtæki innan okkar raða og
síðan önnur minni. Þá er hér til
staðar útibú frá Lands-
bankanum, Sparisjóðnum og
ATVR. Ég hygg að þeir menn
sem stjórna þessum fyrir-
tækjum séu ekki alveg rólegir
við þessar fréttir. En að lokum
þegar rnenn segja mér að þetta
sé aukning á löggæslu þá geta
þeir hinir sömu einnig reynt að
segja mér að snjórinn sé
rauður. Líkumar eru jafnar.
Gunnar Vilbergsson