Víkurfréttir - 03.02.2000, Blaðsíða 27
GRINDAVÍK - KR í ÚRSUTUM RENAULT BIKARKEPPNINNARIHÖLLINNIÁ LAUGARDAG
Góður undirbúningur og
samstaða leikmanna
Grindvíkingar munu æfa í
Laugardalshöllinni á
föstudag og reyna að halda
hópinn fram að úrslita-
leiknum og styrkja þannig
liðsandann.
Einar Einarsson, þjálfari
Grindvíkinga, er að stýra liði í
fyrsta sinn í bikarúrslitum.
„Flestir mínir leikmenn hafa
reynslu af bikarúrslitum og vita
hvað þarf að leggja af mörkum.
Þessi lið eru nokkuð áþekk
sem er ávísun á góðan leik.
Bæði liðin hafa sterka
útlendinga innan sinna raða,
byggja á varnarleik og
samvinnu auk þess sem
leikmenn eru tilbúnir að gefa
allt í leikinn. Eg reikna með
Keith Vassel sterkum eins og
hann hefur verið að spila í
vetur en við munum ekki
einbeita öllum okkar kröftum
að honum heldur spila okkar
sterku liðsvörn. Auðvitað
skiptir dagsformið máli en það
sem skiptir mestu máli er
góður undirbúningur í vetur,
samstaða leikmanna og
sigurviljinn. Þá er óþarfi að
minnast á góðan stuðning
Grindvíkinga sem munu án efa
fjölmenna á leikinn og ná í
bikarinn heim til Grindavíkur”,
sagði Einar hress í bragði.
Bow saknað
Meiðsli hrjá KR-inga þessa
dagana og munar mest um
Jonathan Bow sem leikið
hafði mjög vel. Með hann
innanborðs tapaði liðið varla
leik en missti heldur betur
flughæð þegar hann datt út.
Bow er að auki þrautreyndur
í bikarúrslitaleikjum og hefur
unnið titil bæði með Keflavík
ogKR.
Stöndum við bakið
á Grindjánum
Mikið hefur verið rætt um að
yfirburðir Suðumesjamanna í
körfuknattlei standi íþróttinni
fyrir þrifumog til að vinsældir
körfunnar aukist þurfi
höfuðborgarsvæðið að koma
sterkara inn og eignast nokkra
titla.
Iþróttafréttasmiður VF er
þessarar skoðunnar, huglægt
séð, en þegar Reykjavíkurliðin
ná því ólíklega takmarki að
komast í úrslit skiptir það hann
engu hver Suðurnesja-
mótherjinn er, hér skal titillinn
vera áfram. Grindvíkingar em í
því hlutverki að verja heiður
okkar að þessu sinni og engin
spuming um að Grindvíkingar
eiga stuðning allra
Suðumesjamanna heilan, sama
hvaða bæjarfélagi búið er í eða
hvaða lið hver og einn dreymir
um á nóttinni. Nei, við leyfum
engan fagnað á Rauða Ljóninu
um helgina.
Áfram Grindvík!
Rafborg
SAMHERJIIII.
- Fiskimjöl & Lfsi -
TÆKNIVÍK
-fVÉLSMIÐJA
^ÞORSTEINS
HyáWj Seljabót 3, Grindavík Sími 426 8540
SPARISJÓÐURINN