Víkurfréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkurfréttir - 03.02.2000, Qupperneq 27

Víkurfréttir - 03.02.2000, Qupperneq 27
GRINDAVÍK - KR í ÚRSUTUM RENAULT BIKARKEPPNINNARIHÖLLINNIÁ LAUGARDAG Góður undirbúningur og samstaða leikmanna Grindvíkingar munu æfa í Laugardalshöllinni á föstudag og reyna að halda hópinn fram að úrslita- leiknum og styrkja þannig liðsandann. Einar Einarsson, þjálfari Grindvíkinga, er að stýra liði í fyrsta sinn í bikarúrslitum. „Flestir mínir leikmenn hafa reynslu af bikarúrslitum og vita hvað þarf að leggja af mörkum. Þessi lið eru nokkuð áþekk sem er ávísun á góðan leik. Bæði liðin hafa sterka útlendinga innan sinna raða, byggja á varnarleik og samvinnu auk þess sem leikmenn eru tilbúnir að gefa allt í leikinn. Eg reikna með Keith Vassel sterkum eins og hann hefur verið að spila í vetur en við munum ekki einbeita öllum okkar kröftum að honum heldur spila okkar sterku liðsvörn. Auðvitað skiptir dagsformið máli en það sem skiptir mestu máli er góður undirbúningur í vetur, samstaða leikmanna og sigurviljinn. Þá er óþarfi að minnast á góðan stuðning Grindvíkinga sem munu án efa fjölmenna á leikinn og ná í bikarinn heim til Grindavíkur”, sagði Einar hress í bragði. Bow saknað Meiðsli hrjá KR-inga þessa dagana og munar mest um Jonathan Bow sem leikið hafði mjög vel. Með hann innanborðs tapaði liðið varla leik en missti heldur betur flughæð þegar hann datt út. Bow er að auki þrautreyndur í bikarúrslitaleikjum og hefur unnið titil bæði með Keflavík ogKR. Stöndum við bakið á Grindjánum Mikið hefur verið rætt um að yfirburðir Suðumesjamanna í körfuknattlei standi íþróttinni fyrir þrifumog til að vinsældir körfunnar aukist þurfi höfuðborgarsvæðið að koma sterkara inn og eignast nokkra titla. Iþróttafréttasmiður VF er þessarar skoðunnar, huglægt séð, en þegar Reykjavíkurliðin ná því ólíklega takmarki að komast í úrslit skiptir það hann engu hver Suðurnesja- mótherjinn er, hér skal titillinn vera áfram. Grindvíkingar em í því hlutverki að verja heiður okkar að þessu sinni og engin spuming um að Grindvíkingar eiga stuðning allra Suðumesjamanna heilan, sama hvaða bæjarfélagi búið er í eða hvaða lið hver og einn dreymir um á nóttinni. Nei, við leyfum engan fagnað á Rauða Ljóninu um helgina. Áfram Grindvík! Rafborg SAMHERJIIII. - Fiskimjöl & Lfsi - TÆKNIVÍK -fVÉLSMIÐJA ^ÞORSTEINS HyáWj Seljabót 3, Grindavík Sími 426 8540 SPARISJÓÐURINN

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.