Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 21.11.2002, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 21.11.2002, Blaðsíða 20
.estu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is Það verður sannkölluð körfuboltaveisla í Keflavík um helgina þegar undanúrslit og úrslit Kjörís- bikarsins verða leikin. Veislan hefst föstudaginn 22. nóvem- ber en þá verða leiknir tveir leikir. Fyrri leikurinn hefst kl. 18:30 þegar cigast við Haukar og Grindavík. Kcflavík og KR eigast svo við í síðari leiknum sem hefst kl. 20:30. Sigurvegar- arnir úr þessum viðureignum leika svo um Kjörísbikarinn á laugardaginn kl. 16:30. Kevin Grandberg verðurí sviðsljósinu í KjörrsbjMpuin j Kjörísveisla í Keflavík Leið liötuma i úrslitin: KEFLAVÍK Keflvíkingar byijuðu á því að slá út KFÍ frá ísafirði. Þeirunnu fýrri leikinn með 45 stigum og gerðu svo jafntefli í síðari leikn- um, en báðir leikimir fóm fram á ísafirði þar sem minni spámenn fengu að spreyta sig. Breiðablik var næsta fómarlamb en þeir vom öllu erfíðari hindrun. Kefla- vik sigraði þó báða leikina gegn ffískum Blikum, samtals 216:190. Sigurður Ingimundarson þjálfari Keflvíkinga er öllum hnútum kunnugur þegar kemur að því að leika í undanúrslitum fyrirtækja- bikarsins enda hefur hann verið þar með lið sitt frá því að keppn- in hófst. Honum leist mjög vel á helgina. „Mér líst mjög vel á þessa keppni, enda er hún með skemmtilegri íþróttaviðburðum hér á landi. Ekki spillir fyrir að nú er leikið á glæsilegum heima- velli okkar Keflvíkinga, þar sem vist er að umgjörð verður flott og stemmning mikil. Þama verða á ferðinni fjögur bestu lið landsins og víst að leikinn verður körfúknattleikur í hæsta gæða- flokki. Við Keflvíkingar einblín- um á leikinn á föstudaginn gegn KR-ingum og ætlum okkur þar að spila til sigurs", sagði Sigurð- ur í samtali við VF. GRINDAVÍK Grindvíkingar slógu út Skalla- grím í 16-liða úrslitum samtals 189:132. Næstir á dagskrá vom Tindastólsmenn en Grindvíking- ar byijuðu á þvi að gera jafntefli við þá fyrir norðan. Þegar heim i Röstina var komið var hins vegar annað uppi á teningnum þvi Grindvíkingar unnu ömggan sig- ur, 88:74, og sæti í undanúrslit- um tryggt. Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari Grindvíkinga var spenntur fyrir helginni eins og aðrir og sagðist hlakka til að takast á við þetta verkefni. „Mér líst mjög vel á það að taka þátt í þessari keppni hinna fjögurra fræknu. Það verð- ur verðugt verkefni að leika gegn Haukum enda em þeir að spila mjög vel og hafa komið mikið á óvart. Þeir hafa á að skipa skemmtilegu liði sem verður gaman að kljást við“, sagði Frið- rik í samtali við VF Hvaó leggur þú upp með fyrir leikinn? „Eg er að byija að kíkja á leik þeirra en eins og flestir vita spila þeir mikið i kringum Stevie Johnson sem er frábær í alla staði. Þeir em einnig með fullt af íslenskum strákum sem em nokkuð óþekktir en engu að síð- ur mjög góðir. Má þar nefna Sævar Haraldsson, komungan leikstjómenda sem leikið hefur vel í vetur. Marel hcfur einnig verið að spila griðarlega vel en annars þurfum við að passa alla leikmennina þeirra mjög vel“. Er stefhan sett á titilinn? Já, við fömm í þetta til að vinna. Er einhver óskamótheiji? „Nei alls ekki enda þýðir ekkert að hugsa svoleiðis. Ef við vinn- um Hauka þá sjáum við bara til með ffamhaldið". HAUKAR Haukamir áttu ekki í vandræðum með Þór ffá Akureyri í 16-liða úrslitum en þeir unnu þá samtals 236:141. Það vom ekki margir sem bjuggust við því að Hauk- amir kæmust í gegnum næsta andstæðing en það vom meistar- amir sjálfír úr Njarðvík. Haukar komu þó öllum á óvart og gerðu sér lítið fyrir og unnu báða leik- ina, heima og að heiman, samtals 174:150 og tryggðu sér um leið farseðil til Keflavíkur í undanúr- slit. Reynir Kristjánsson þjálfari Hauka var að vonum sáttur að vera kominn svo langt í keppn- inni. „Mér líst alveg svakalega vel á þessi undanúrslit og ein- staklega gaman að við skulum vera þama með þessum þremur sterku liðunV', sagði Reynir í samtali við VF. Hvað leggurþú upp meö fyrir Ragnar Birkir Jónsson lét nýverið af störfum hjá Sundmiðstöð Suðurnesja. Við það tilefni var haldin nokkurs konar kveðjustund í Sundmiðstöðinni þar sem boðið var upp á kaffi og kökur, Birkir leystur út með gjöf frá Reykjanesbæ og honum þakkað fyrir sitt framlag. Birkir Itefur verið starfsmaður í Sundmiðstöðinni frá opnun hennar 1990 en áður hafði hann unnið í Sundhöllinni í Keflavík í þrjú ár. Birkir ók einnig rútu í talsverðan tíma en hann starfaði hjá SBK til margra ára. Birkir sagði í samtali við Víkurfréttir að það hefði verið mjög gott að vinna í sundlauginni. "Ég held að þetta hefði ekki getað verið betra, bæði í sundlauginni sem og hjá SBK enda er bærinn mjög góður vinnuveitandi. Þar hefur alltaf verið góður starfsandi og mér alltaf liðið vel", sagði Birkir. Hann vildi að iokum koma fram þakklæti til Reykjanesbæjar fyrir allt það góða sem þeir hafa sýnt honum. svona leiki'! „Að leikmenn liðsins gefí sig alla í þetta verkefhi og beijist til síðasta blóðdropa, það er ekki hægt að fara fram á meira. Eg vona bara að hungrið sé enn til staðar hjá liðinu og að menn séu ekki bara sáttir við að komast í undanúrslitin". Áekki aö taka titilinn? „Eg vona svo sannarlega að við náum að spila vel og ef við fáum góðan stuðning frá okkar fólki þá er aldrei að vita hvað getur gerst, þetta er nú einu sinni úrsláttar- keppni og þá er alltaf von. En það er alveg Ijóst í mínum huga að til þess að svo megi verða, þá verður Haukafólk að fjölmenna í Keflavík á föstudaginn (til að byija með) og láta virkilega vel í sér heyra“. Hvaöa liö er óskamótherjinn? „Það er ómögulegt að tala um einhvem óskamótheija í úrslit- um, bæði Keflavík og KR em með geysilega sterk lið og því skiptir það ekki svo miklu máli hvort þeirra liða yrði okkar mótheiji. En það er spuming hvort að það væri meiri stemm- ing í því að spila við Keflavík þar sem leikið er á þeirra heimavelli, en jafhframt erfiðara". KR KR-ingar áttu ekki í erfiðleikum í fýrstu umferðinni gegn Stjöm- unni þar sem báðir leikimir vom gefhir og því unnu Vesturbæing- amir samtals 40:0. Næsti mót- heijir KR var Hamar en leikimir milli þessara liða hafa alltaf verið spennandi. Svo fór að þeir rönd- óttu höfðu betur í báðum viður- eignunum samtals 185:170 og áframhaldandi þátttaka þeirra í þessari keppni því tryggð. Ingi Þór Steinþórsson þjálfari toppliðs KR hlakkaði til að mæta til Keflavíkur að taka þátt í und- anúrslitum Kjörisbikarsins. „Mér líst vel á leikinn á föstudag, og það verður erfitt að spila á heimavelli Keflavíkur. Við getum þó ekki verið að eyða púðri í að velta því fyrir okkur, þetta er ákveðið og svona skal það þá vera. Ekki gott mál því keppnin á að vera á hlutlausum velli. Eg vona að Keflvíkingar verði þá með alvöru umgjörð utan um þessa leiki, sagði Ingi í samtali við VF. Hvað leggurþú upp meö fyrir svona leiki? „Eg vill að leikmenn leggi sig fram og séu ekki að spá í neinu öðm en þessum leik. Það getur oft tmflað að spila seinni leik, en það þarf að hafa einbeitingu í lagi“. Hvert er stefnan sett? sjálfsögðu stefhum við á tit- ilinn í þessari keppni“. Einhver óskamótheiji í úrslitum? „Fyrst þurfum við að spila við Keflavík og siðan verður það að koma í Ijós í framhaldinu hvort að óska- mótheijinn er Haukar eða Grindavík". 20

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.