Víkurfréttir - 21.11.2002, Blaðsíða 12
47. tölublað • fimmtudagurinn 21. nóvember 2002
TÍMAMÓT HJÁ SAMKAUP HF.
Gunnar Sveinsson, kaupfélagsstjóri opnaði Samkaup 18. nóvember 1982. Til hliðar má sjá mynd af Samkaup á fyrstu dögum markaðarins eins og sjá má á bílunum!
Samkaup 20 ára
Sjö ára Suðurnesjakrakkar á 7 ára afmælisdegi Samkaupa 1989.
Að neðan má sjá Guðjón Stefánsson, núverandi framkvæmda-
stjóra Samkaupa gæða sér á piparköku og jólaglöggi í búðinni.
Samkaup átti 20 ára
afmæli 18. nóvembcr sl.
og fagnar því með
afmælistilboðum og fleiru í
afmælismánuðinum. Að sjálf-
sögðu verðu afmælistertan á
sínum stað á föstudag en þá
mun Jóhanna Hallgrímsdóttir
skera Ijúfa tertu ofan í
viðskiptavini cn það hefur hún
gert á hvcrju ári frá því versl-
unin opnaði.
Guðjón Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Samkaupa segir að
mikið vatn hafi runnið til sjávar
frá því Samkaup opnaði en
opnun stórmarkaðarins þóttu
mikil tíðindi árið 1982. í
Kaupfélagsblaðinu sem gefið var
út í tilefni opnunar Samkaupa
segir að markmiðið sé að bæta
verslunarþjónustu og lækka
vöruverð.
Bygging hússins tók rúmt ár frá
þvi fyrsta skóflustungan var tekin
17. júlí 1981 en framkvæmdir
hófust síðan 5. september sama
ár og komu fjölmargir iðnaðar-
Birgir Scheving, Kjötselsstjóri hefur stýrt kjötvinnslunni frá 1962.
Með honum er Axel Jónsson í Matarlyst en hann hefur oft unnið
með Samkaup í kynningum á kjöti og fleiru. Að neðan má sjá inn
í Samkaup fyrir nokkrum árum en meðal nýjunga við opnunin
árið 1982 var sjálfsafgreiðsla á ávöxtumog grænmeti.
k * T .11
ina
menn og aðilar að byggingunni
en byggingameistari hússins var
Sveinn Ormsson. Fyrsti verslun-
arstjórinn var Kristján Hansson
en hann lést fyrir nokkrum árum.
Hann var jafnframt bygging-
arstjóri Samkaupa. í viðtali við
Kaupfélagsblaðið í nóv. 1982
sagði Kristján að ýmsar breyting-
ar yrðu við opnunun Samkaupa.
Síðan segir orðrétt úr viðtalsgrein
við Kristján: „Hann sagði að
verð á matvöru yrði ætíð á sem
hagstæðustu verði og lögð yrði
áhersla á að vöruúrval yrði sem
mest. Þá sagði hann að
kaupfélagið myndi bjóða ýmsar
vörur á tilboðsverði. Hann lagði
áherslu á að gott kjötborð yrði
haft í versluninni og í því sam-
bandi hefði verið ráðinn mjög
fær matreiðslumaður og myndi
hann veita viðskiptavinum
ráðgjöf varðandi kjötvörukaup".
Og meðal fleiri nýjunga sem
Suðumesjamenn voru ekki vanir
á þessum árum má nefha sjálfs-
afgreiðslu á ávöxtum og græn-
meti. Það er því óhætt að segja
að timamir hafi breyst mikið eins
og reyndar margt hjá Sam-
kaupum á tveimur áratugum.
A sama tíma og Samkaup opnaði
fluttist rekstur kjötvinnslu
Kaupfélags Suðumesja í nýtt hús
Samkaupa og fékk einnig á sama
tíma nafnið Kjötsel. Birgir
Scheving sem hefur veitt henni
forstöðu síðan 1962 er enn á
sama stað!
Sjö verslunarstjórar hafa gegnt
því starfi á tuttugu árum
Samkaupa. Sá fýrsti var eins og
fyrr greinir Kristján Hansson
(1982-84) en síðan komu
Magnús Jónsson (1985-19888),
Gylfi Kristinsson (1989-1992),
Axel Nikulásson (1993-1994),
Sturla Eðvarðsson (1994-1999).
Núverandi verslunarstjórar eru
Kristján Friðjónsson og Hörður
Sigfússon en þeir hófú störf árið
2000.
12