Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 05.12.2002, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 05.12.2002, Blaðsíða 6
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is FRÉTTIR I ;________________SJÁVARÚTVEGUR Tvö skip seld frá Grindavík Þorbjörn Fiskanes hf. í Grindavík hefur selt skipin Ólaf GK og Á- gúst Guðmundsson GK úr landi. Hefur fyrrnefnda skipið verið selt til Græn- lands og það síðarnefnda til Mexíkó. Andrés Guð- mundsson, útgerðarstjóri hjá Þorbirni Fiskanesi, seg- ir í samtali við Skip.is að O- lafur GK hafi verið seldur til útgerðarfélags í Sisimut sem er norðarlcga á vestur- strönd Grænlands. Félagið á fyrir báta sem stunda rækjuveiðar og er fyrirhug- að að nota Ólaf GK á rækjuveiðunum. Milligöngu um sölu skipsins hafði Steingrimur Erlingsson og er stefiit að því að báturinn haldi frá Grindavík til Nuuk á Grænlandi í þessari viku en þaðan verður siglt til Sisimut. Ágúst Guðmundsson GK hefur verið seldur útgerðarfé- lagi í Mexíkó sem er í eigu Steinars Þórs Birgissonar. Báturinn á að fara á línuveið- ar og m.a. er fyrirhugað að veiða sverðfisk á línu. Steinar Þór var áður í trilluútgerð hérlendis en hann hefur verið búsettur í Mexíkó um nokk- urt skeið. Ólafur GK er tæpar 95 brúttórúmlestir að stærð og var báturinn smíðaður í Dali- an í Kína á síðasta ári. Ágúst Guðmundsson GK er 186 brúttórúmlestir að stærð og var hann smíðaður í Noregi árið 1964. Byggt var yfír bát- inn árið 1988. Tekiö af vefnum Skip.is. Jólablaðið er ínæstu viku! Ætlarþú að 'senda jótakveðju íVíkurfréttum? Stminn er 421 0000 Þeir eru ánægðir með nýja línuveiðibúnaðinn sem settur hefur verið um borð í Freyjuna. Frá vinstri: Halldór Þórðarsson skipstjóri, Valdimar Birgisson háseti, Jón Anton Holm yfirvélstjóri og Grétar Friðleifsson kokkur. BEITNINGAVÉLAKERFI UM BORÐ í FREYJU GK Línubáturinn Freyja GK 364 hefur tekið um borð beitningarvélakerfi frá norska Mustad sem er stærsti framleiðandi línu- veiðikcrfa í heiminum í dag. Báturinn hefur farið tvær veiðiferðir fyrir utan sérstak- an prufutúr og hefur búnað- urinn reynst mjög vel. Að sögn Jóns Antons Holm yfir- vélstjóra eru menn ánægðir með nýja búnaðinn en hann er sá fyrsti af þessari stærð sem fer um borð í bát á Is- landi: „Fyrir tveimur árum síðan fengum við beitningar- vélakerfi um borð sem virk- aði ekki og því var töluverður beygur í okkur varðandi þennan búnað. En Mustad er virt fyrirtæki og búnaðurinn hefur svo sannarlega staðið fyrir sínu,“ segir Jón Anton. Búnaðurinn virkar þannig að það er byrjað á því að leggja línuna sem hefur um 11 þús- und króka: „ Þegar því er lokið er tekin klukkutíma bauja eins og það er kallað en þá er tæki- færið notað til að fá sér moig- unmat. Eftir Baujuna hefst drátturinn og það fer þannig fram að línan er dregin um borð og stokkuð upp og fiskur- inn tekinn um borð. Þegar búið er að draga og stokka upp á rekka þá er farið í land, landað og tekin beita og vistir. Þetta kerfi bíður upp á þá möguleika að leggja tvisvar í sama róðri því línan er tilbúin í aðra lögn um leið og búið er að draga. Það eru endalausir möguleikar í þessu því hægt að leggja hluta línunnar aftur ef það hittist á góðan neista í fiskiríi. Við erum miklu lausari við en hefð- bundnir balabátar því við get- um siglt hvert sem er og það eina sem við þurfum að gera er að tryggja okkur beitu.“ Freyja landaði sl. mánudags- kvöld, eftir annan róðurinn 4 tonnum af blönduðum afla en þeir fóru á sjó um miðnætti kvöldið áður: „Við fórum á Búðagrunnið og þar fengum við þennan fina afla, en keyrsl- an var um níu tímar báðar leið- ir,“ segir Jón Anton. Skipstjóri og eigandi Freyjunnar er Hall- dór Þórðarsson í Keflavík. 6

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.