Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 05.12.2002, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 05.12.2002, Blaðsíða 22
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vt.is iilHBi FRETTIR FRÉTTIR • MANNLÍF AÐ ALAST „Bloggað" á Suðurnesjum UPP AFTUR ANNA.Vl OKKOR. SjA.Lt ANNASl' HORNtN OKKAfc Vigiit* (‘ioiiboHtdiitlir ilur fncmiU l.. i. 1.1-;»» • ‘l ••li- 6 i',-i..i(. ii «• i, ÓB Ráðgjöf gefur út handbók OB Ráðgjöf hefur gefið út handbókina „Að alast upp aftur: Ann- ast okkur sjálf, annast börnin okkar“. Bókin er eftir Jean Illsley Clarke og Connie Dawson í þýðingu Helgu Ágústsdóttur. Yfir- farið af Sigurði A. Magnús- syni. Ólafur Grétar Gunn- arsson fjölskyldu-og stjórn- unarráðgjafi og Bjarni Þór- arinsson fjölskyldu-og vímuefnaráðgjafi hjá ÓB Ráðgjöf hafa haldið nám- skeið og unnið við ráðgjöf með foreidra undanfarin ár og segja bókina sem er frá Hazelden Foundation vera þá bestu um uppeldi og sjáifsstyrkingu sem þeir hafa kynnst. Bókin er lofúð af sérfræðing- um og almenningi hér á landi og þar sem hún hefiir komið út. Stefán Karl Stefánsson leikari og stofnandi Regn- bogabarna segir i umsögn sinni „Ef þér þykir vænt um böm lestu þá þessa bók“. í bókinni eru kynntar aðferðir sem hafa hjálpað þúsundum foreldra til að sinna foreldra- hlutverkinu. Lögð er áhersla á að lesandinn skilji sjálfan sig betur og mikilvægi þess að hann annist sjálfan sig til þess að vera betur í stakk bú- inn að sinna þörfum barna sinna. Að alast upp aftur veitir upp- lýsingar um formgerð og næringu sem skiptir svo miklu máli fyrir heilbrigði bama og þroska og einnig er nauðsynlegt fyrir hina full- orðnu. Höfundar bókarinnar miðla upplýsingum, sem allir uppalendur ættu að hafa, um aldur og þroskastig bama. Þá er fjallað um þarfir samsettra fjölskyldna og ættleiddra bama. I bókinni er einnig tek- ið á samskiptum para á með- göngunni, en einnig þegar kemur að okkar síðustu ævi- dögum og þeim vaxandi vanda sem stafar af ofdekmn bama. Asíðustu mánuðum hefur svokallað „blogg“ vakið mikla athygli, en „blogg“ er sérstakt tjáningarform þar sem ein- staklingur opnar líf sitt á veraldarvefnum með skrifum um daglegt líf og hugsanir. Margir hafa velt því fyrir sér hvaðan orðið ,?blogg“ er komið. Á vefnum annall.is lýsir Árni Svanur Daníelsson guðfræðingur hvað felist í orðinu „bIogg“ en tveir erlendir annál- aritarar, þeir David Salo og AKMA hafa sett santan orðaiista á latnesku og grísku. „Latneska sögnin yfir það að rita annál er „- bloggo“. Af henni em leidd orðin „bloggator", sem er annálaritari. „Bloggatio" sem merkir ann- álaritun eða það sem er ritað í annál. „Bloggand- um“ er eitthvað sem ætti að rita um í annál og „bloggabilis" er eitthvað sem er mögulegt að rit- að verði um í annál. „Bloggaturi te salutamus" er latneskt slagorð. Það merkir: „Við sem emm í þann veginn að rita í annál heilsum ykkur“ og minnir á hróp skylrn- ingaþræla áður en þeir gengu í hringinn: „Við sem emm í þann mund að deyja ...“. Á Suðumesjum em „bloggarar" eins og annars staðar á landinu en vinsældir þessarar tegundar af annálaritun hefúr vaxið gríðarlega á síðustu mánuðum. Víkurfréttir köfuðu í undirdjúp ver- aldarvefsins og fúndu nokkrar vefsíður þar sem annálaritarar af Suðumesjum opna líf sitt, þ.e. „- blogga" á hveijum degi eða því sem næst. http ://irisosk.blogspot.com/ http://www.gunz.blogspot.com/ http://steranovitz.blogspot.com/ http://www.blomalfur.blogspot.com/ http://www.hjallijons.blogspot.com/ http://hawkenskulls.bIogspot.com/ http://www.bjaddni.blogspot.com/ http://skemmtanastjori.blogspot.com/ Fjórir rithöfundar kynna verk sín á Bókakonfekti Laugardaginn 7. des. kl. 16.00 verður hið árlega Bókakonfekt haldið á Bókasafni Reykjanesbæjar. Nokkrir rithöfundar koma í safnið og iesa upp úr og kynna nýjustu verk sín. Þeir höfundar sem munu heiðra okkur með nærveru sinni að þessu sinni eru Guðjón Frið- riksson, Sigurbjörg Þrastar- dóttir, Koibrún Bergþórs- dóttir og Þórarinn Eldjárn. Við þetta tækifæri mun Dagný Þ. Jónsdóttir sópransönkona einnig koma fram. Bókabúð Keflavíkur verður með sölubás á staðnum og getur fólk keypt bækur þessara höfunda og fengið þær áritaðar. Auk Bóka- safnsins og Bókabúðarinnar standa menningarfulltrúi og Miðstöð símenntunar að uppá- komunni. Allir eru velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir og boðið er uppá kaffi og konfekt. Lægri leikskólagjöld í Reykjanesbæ Nú standa yfir gjald- skrárbreytingar hjá sveitarfélögum fyrir árið 2003. Gjaldskrár leik- skóla fyrir næsta ár hafa ver- ið ákveðnar í Reykjanesbæ og í Reykjavík. Foreldrar í Reykjanesbæ munu greiða kr. 22.700 fyrir 8 tíma vistun með mat og hressingu en samkvæmt nýrri gjaldskrá í Reykjavík greiða foreldrar þar kr. 27.000 fyrir sambæri- lega þjónustu. Foreldrar í Reykjavík greiða rúmar kr. 45.000 á mánuði fyrir tvö böm í leikskóla en foreldar í Reykjanesbæ greiða tæpar 40 þúsund krónur. Foreldrar i Reykjanesbæ og í Reykjavík greiða svipaða upphæð fyrir þijú böm í leikskóla. Fánaborg fauk við Hringbraut Mikið gekk á í veðrinu á Suðurnesjum að- fararnótt þriðju- dags. Ólag var í höfninni í Kcflavík og björgunarsveit kölluð út vegna þess. Þá virðist sem ýmislegt smálegt hafi farið af stað í veðrinu. Blaðamaður Vikurfrétta ók fram á brotin sólhúsgögn á leið til vinnu sinnar og þá fauk fánaborg við verslun- ina Miðbæ í Kcflavík um koll í veðurhamnum. Bifreið ekið á Ijósastaur Nokkuð liarður árekst- ur varö á Reykjanes- braut, ofan Njarðvík- ur þegar bifreið var ekiö á Ijósastaur. Bifreiðin er mjiig mikiö skemmd og voru lög- reglu- og sjúkrabílar sendir á vettvang. Ökumaður bif- reiðarinnar var fluttir til skoðunar á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja og voru mciðsl iians minniháttar. Stöðvaður með um eitt og hálft gramm af amfetamíni ■ ■ Okumaður var stiiövaö- ur af lögreglunni i Ketlavík grunaður um llkniefnamisferli samkvæmt fréttasíma lögreglunnar. Við nánari skoðun kom i Ijós að maðurinn hafði á sér um I 1/2 gramm af amfctamíni og var hann fluttur á í gæsluvarðhald en látinn íaus að lokinni yfirheyrslu. Þá var bílvelta á I iafnarvegi þegar ökumaður missti stjórn á bíl sínum og ók á staur. Ökumaður bílsins slapp ó- meiddur en bifreiðin var l'rek- ar skemmd. Tónleikar Tónleikar í Frumleikhús- inu verða nk. laugardag 7. des. kl. 21. Þá koma fram feðginin Guðmundur Hreinsson og Jana María Guðmundsdóttir. Þau flvtja frumsamin lög Guðmund- ar sem hann hefur samið í gegnum tíðina. Miðapant- anir í síma 893-5559 og við innganginn. 22

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.