Víkurfréttir - 05.12.2002, Blaðsíða 20
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
Aðventutónleikar
í Garði og Sandgerði
Aðventutónleikar verða
annan sunnudag í að-
ventu 8. desember í
safnaðarheimilinu í Sand-
gerði kl. 17 og Útskála-
kirkju í Garði kl. 20:30.
Fram koma kirkjukórar
Hvalsness- og Útskálakirkju,
barnakór Hvalsneskirkju og
nemendur úr tónlistarskólun-
um í Sandgerði og Garði. Ina
Dóra Hjálmarsdóttir og
Vilborg Eckhard syngja tví-
söng Eyþór Kolbeins leikur á
bassa og Þorvaldur Halldórs-
son á trommur.
Einnig munu karlaraddir úr
kirkjukómum syngja nokkur
lög. Sungnir verða jóla- og
aðventusálmar lesið úr ritn-
ingunni og fermingarbörn
lesa guðspjall.
i almennum söng verða
sungnir sálmarnir „Við
kveikjum einu kerti á“ og
„Guðs kristni í heimi“.
Stjómandi og undirleikari er
Steinar Guðmundsson org-
anisti.
*
* *
>j< Mikið úrval komið af handunnum >1<
íslenskum Baby born fötum t.d.
>|< >(< lopapeysur og fl. >(< >|<
>(< OPIÐ >|< Gjafavara og garn
Risastórt og vandað
jólablað Víkurfrétta
ínæstu viku!
EPPUR
GERÐAHREPPUR
Ibúð til leigu
Húsnæðisnefnd Gerðahrepps
auglýsir til leigu íbúð að Silfurtúni 12
í Garði. Nánari upplýsingar á
skrifstofu Gerðahrepps.
Umsóknafrestur er til
16. desember nk.
Athugið. Þeir sem sótt hafa um áður
þurfa að endurnýja umsóknir sínar.
Sveitarstjóri.
-LJL
l..ll ■ ■ I 1 ■
Sveitarstjómpyngjan
Hvenær hefur maöur há
laun og hvenær hefur
maður ekki há laun?
Hvenær vinn-
ur maður fyrir
kaupinu sínu
og hvenær
ekki ? Launa-
mál sveitar-
stjóra í Vatns-
leysustrandar-
hreppi hafa
verið í brennidepli undanfar-
ið. Hreppsnefndarfulltrúi í
minnihluta hefur farið geyst í
bókunum um málið á
hreppsnefndarfundum og nú
síðast hér í biaðinu.
Dæmið er sett þannig upp að
nú verði hvert mannsbarn í
hreppnum að safna mánaðar-
lega í pyngju sveitarstjóra.
Fyrst var upphæðin eittþúsunda
krónur á mánuði á mann. Síðan
fór fulltrúinn að reikna aftur og
ákvað þá að lækka þessa upp-
hæð svolítið og hafði það þá
tæpar þúsund krónur á mánuði.
Ekki þarf að ganga í hús mán-
aðarlega og safna í pyngjuna
heldur berast launin til sveitar-
stjóra með öðmm og nýtísku-
legri hætti í gegnum bankakerf-
ið ! En hvað gerir svo sveitar-
stjórinn fyrir öll þessi laun?
Hér koma nokkrar staðreyndir í
málinu.
Laun sveitarstjóra
Laun sveitarstjóra I Vatnsleysu-
strandarhreppi eru ekkert
leyndarmál og hafa aldrei verið
það, ekki heldur gagnvart
minnihluta hreppsnefndar.
Launin eru greidd af skatttekj-
um íbúanna og þeir eiga rétt á
því að vita í hvað skattarnir
fara . Sveitarstjóri hefur kr. 614
þúsund í mánaðarlaun. Þetta
em jú ágæt laun, ekki skal því
mótmælt. En hvað fá íbúar
hreppsins I staðinn? Skoðum
málið aðeins betur. Sveitarstjóri
gegnir einnig stöðu félagsmála-
stjóra. Gott og vel. Laun félags-
málastjóra eru algeng í dag I
kringum kr. 350 þúsund á mán-
uði. Setjum sem svo að við
myndum ákveða að ráða fé-
lagsráðgjafa / sálfræðing til
starfa, til að gegna stöðu fé-
lagsmálastjóra. Hálft stöðugildi
myndi væntanlega duga okkur
til að byrja með þ.e.a.s. 50%
starfshlutfall. Það gera laun
upp á kr. 175 þúsund á mánuði.
Ef við síðan drögum þá upp-
hæð ftá launum sveitarstjóra þá
erum við komin í kr. 439 þús-
und. Sem sagt, ef við færum
þessa leið, að ráða félagsmála-
stjóra, myndu laun sveitarstjóra
lækka í kr. 439 þúsund. Það er
einmitt sú upphæð sem fulltrú-
inn í minnihlutanum var tilbú-
inn að greiða þegar ráðningar-
samningurinn var ræddur í
hreppsnefnd. Nefndi töluna
400-450 þúsund. Það sem
mestu skiptir I þessu öllu sam-
an er að raungildi, launakostn-
aðar er hið sama. A mannamáli
þýðir þetta að við myndum
ekki spara neitt með því að
ráða nýjan félagsmálastjóra,
nema síður sé.
Hvemig sem á þessar tölur er
litið þá er ljóst að laun sveitar-
stjóra em fyllilega I samræmi
við það sem gengur og gerist í
þeim efnum. Miðað við þá
auknu starfsskyldu, sem hér
hefur verið tilgreind, em launin
lægri ef eitthvað er.
Að vinna fyrir kaupinu
En tölum næst svolítið um það
hvort að sveitarstjórinn hafi
unnið fyrir kaupinu sínu.
Sveitarstjóri átti hugmyndina
að markaðssetningunni; „Vogar
færast í vöxt“ og framkvæmdi
hana. Lagði hún gríðarlega
mikla vinnu í átakið og fékk
góðan stuðning frá fýrrverandi
oddvita og hreppsnefttd. Mark-
aðssetningin vakti verðskuld-
aða athygli og hefur m.a. unnið
til verðlauna. Þetta átak hefur
fært íbúum sveitarfélagsins
eina mestu kjarabót sem um
getur á síðari ámm. Frá því að
átakið hófst fýrir 3 ámm hefur
fasteignaverð í hreppnum
hækkað um hvorki meira né
minna en 50 % að meðaltali.
Tökum dæmi; húseign í Vog-
unum sem metin var á 9,2
milljónir fýrir 3 ámm var seld á
árinu fyrir 14,8 milljónir. Á
tímabilinu var ekkert lagt 1 end-
urbætur.
Þetta er hækkun um 5,6 millj-
ónir á 3 árum !
íbúum í hreppnum hefúr fjölg-
að um 18% frá árinu 1999.
Miðað við framkvæmdir í
sveitarfélaginu í dag er ekki ó-
varlegt að áætla að 100 nýir í-
búar bætist við á næstu 12-18
mánuðum. Hvetju hefur þetta
svo skilað okkur í hreppskass-
ann? Frá árinu 1999 hafa tekjur
sveitarfélagsins hækkað um
rúm 60%, geri aðrir betur. Hér
hefur ekkert álver bjargað
mönnum. Tekjuhækkun sveit-
arfélagsins milli ára hefur verið
14-19%. Þess má geta að Þjóð-
hagsstofhun áætlar yfirleitt um
6% hækkun milli ára á tekjum
sveitarfélaga, miðað við lands-
meðaltal í §ölgun íbúa. Sveit-
arfélagið er því langt þar fýrir
ofan.
Það er nú svo að aldrei er hægt
að gera öllum til hæfis og
þannig mun það alltaf vera.
Það eru alltaf til einstaklingar
sem eru neikvæðir út í allt og
alla. Svo geta menn að sjálf-
sögðu haft misjafnar skoðanir.
Það er hluti af lifinu. Það sem
mestu skiptir hins vegar 1 öllu
samstarfi er að vera málefna-
legur.
Eg er þeirrar skoðunar, effir að
hafa unnið með sveitarstjóra
frá því í júní á þessu ári og nú
síðast við fjárhagsáætlunaigerð
að hún er vel að launum sínum
komin. Þar fer ábyrgur og sam-
viskusamur gæslumaður
hreppskassans. Fyrri hrepps-
nefhd samdi um þau launakjör
er sveitarstjóri hefur í dag. Nú-
verandi meirihluti hefur verið
gagnrýndur af minnihluta fýrir
að hafa samþykkt nýjan ráðn-
ingarsamning óbreyttan. Ör-
stutt að lokum um það mál.
Það lækkar enginn laun við
starfsmann sinn sem á 12 ára
farsælt starf að baki og vex að
verðleikum með hveiju árinu.
Spyrja má sig að því hvort að
launaumræðan hefði verið með
öðrum hætti ef karlmaður hefði
setið í sveitarstjórastólnum.
Hefði þá yfír höfuð verið ein-
hver umræða? Góður starfs-
maður, í ábyrgðarmiklu starfi,
verður seint metinn til fjár.
Góðar óskir til allra hreppsbúa
nú á aðventunni, með von um
að þeir séu einhverju nær í
launamálinu fræga.
Birgir Þórarinsson,
varaoddviti
20
MATSWIBELUND