Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.06.2016, Side 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.06.2016, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.6. 2016 Þrjár heimildarmyndir semKristín Ólafsdóttir framleiðirverða frumsýndar á þessu ári. Hún leikstýrir líka einni þeirra en nokkur ár eru frá síðustu mynd hennar. Kristín segist hafa verið önnum kafin í verkefninu móðir en nú sé kominn tími til að detta í gírinn aftur. „Ég hef verið að vinna að öðru verkefni – að búa til börn sem eru orðin þrjú núna og það hefur átt hug minn og hjarta. Núna er yngsta barnið mitt orðið fimm ára svo að það er að verða til meiri tími,“ segir Kristín sem hefur búið í Bretlandi síðastliðin 18 ár ásamt Björgólfi Thor Björgólfssyni, eiginmanni sín- um. Hún hafði þó ástæðu til að koma heim í vikunni þegar ein myndanna, Jökullinn logar, var frumsýnd. Sölvi Tryggvason og Sævar Guðmundsson leikstýra myndinni sem fjallar um ís- lenska karlalands- liðið í knattspyrnu sem er á leið á sitt fyrsta stórmót – EM í knattspyrnu í Frakklandi. „Maður veit aldrei hvernig hlutirnir þróast, það að þessar myndir séu allar frumsýndar núna á sama hálfa árinu er tilviljun því ég hef ekki unnið að þeim samtímis. Dreifingaraðilarnir ákveða hvenær myndirnar eru sýnd- ar. Við urðum auðvitað að frumsýna landsliðs-myndina núna í kringum EM. InnSæi sem ég framleiði og leikstýri með Hrund Gunnsteins- dóttur hefur verið þrjú ár í vinnslu – hún tók auðvitað miklu lengri tíma, enda tvöfalt starf að vera bæði fram- leiðandi og leikstjóri. Við lögðum lokahönd á hana rétt fyrir jól og hún verður frumsýnd í Þýskalandi í júní.“ Þriðja myndin er svo um ævi og starf tónlistarmannsins John Grant. Hún er enn í vinnslu og verður frumsýnd seint í haust. Framleiðslufyrirtæki Kristínar, Klikk Productions, er lítil eining. Hún velur gjarnan í kringum sig gott teymi kvenna til að vinna að ein- stökum verkefnum. Í ljósi þess að fyrirtæki hennar er gjarnan með konur í brúnni – hvað var það þá sem heillaði við mynd um íslenskt karla- landslið, sem leikstýrt er af tveimur körlum? „Ætli þetta sé ekki undantekn- ingin sem sannar regluna! En það er rétt, ég hef meðvitað viljað búa til teymi kvenna vegna þess að konur verða að fá starfsreynslu og verða að fá að koma hugmyndum sínum á framfæri. Og ég er orðin þreytt á því að það sé ekki meira í boði af kvik- myndaefni sem konur heillast af. Það var til dæmis mjög meðvitað með InnSæi og John Grant að konur myndu gera þær myndir. Og þá er ég að tala um alveg frá kvikmynda- töku upp í leikstjórn. Allt nema tón- listin er í höndum kvenna. En svo þegar Sölvi kom með þessa hugmynd til mín leist mér vel á þetta og svo spilaði sterkt inn í að strák- arnir mínir hafa þrálátlega beðið mig um að gera mynd sem þeir gætu tengt við. Þeir elska fótbolta – þann- ig að það smellpassaði!“ Kristín segir að hún hafi ekki farið varhluta af áhuganum á Íslandi og landsliðinu í Bretlandi. „Ég hef aldr- ei verið jafn mikið spurð um Ísland hér úti eins og eftir að landsliðið vann Holland. Það er svo gaman að sjá hvað þetta hefur verið ótrúlega mikil landkynning. Allir vilja ræða íslenskan fótbolta við mann, þótt það standi ekki beinlínis utan á mér að ég sé manneskja sem fylgist með fót- bolta. Ég hugsa að Íslendingar eigi eftir að upplifa mikinn stuðning frá öðrum þjóðum á mótinu því fólki finnst við vera lítill Davíð sem ætlar að berjast við margan Golíat.“ Eins og greint var frá í íslenskum fjöl- miðlum fyrr á þessu ári er vinskapur milli knattspyrnuhetj- unnar Davids Beck- ham og Björgólfs Thors og fjöl- skyldna þeirra. Er Beckham kannski einn af þeim sem hafa sýnt íslenska liðinu áhuga? Kristín segir að knatt- spyrnugoðið viti af myndinni og ætli að fylgjast með íslenska liðinu á EM. Kristín hefur sjálf ekki komist á landsleiki síðustu tvö til þrjú ár en ætlar að sjá liðið spila á EM með 11 ára syni sínum sem er afar spenntur fyrir keppninni. „Ég hef kynnst liðinu í gegnum klippiferlið því ég kom seint inn í verkefnið og það hefur verið mjög gaman. Sölvi og Sævar eru auðvitað búnir að fylgjast með þeim í tvö ár. Að klippa mynd er í uppáhaldi hjá mér. Þar fæðist hún og þaðan er hægt að fara í svo margar áttir. Í markaðssetningunni og dreifingunni hefur maður fundið mikinn áhuga á liðinu frá erlendum sjónvarpsstöðv- um, fyrst og fremst í Evrópu en líka frá ótrúlegustu stöðum – Japan og Ástralíu. Við höfum þurft að hafa hraðar hendur því EM er núna svo að varan hefur stuttan líftíma og maður veit ekki hvernig þetta fer allt saman.“ Útgáfa myndarinnar sem fer á er- lendan markað er á lokametrunum í vinnslu. Hún er styttri en sú sem frumsýnd var hér á landi á fimmtu- dag. Í íslensku útgáfunni fá áhorf- endur að kynnast persónuleika leik- mannanna; hliðum sem þeir hafa kannski ekki séð áður en erlenda út- gáfan gengur út á að svara spurning- unni sem brennur á mörgum: „Hvernig fóru þeir að þessu?“ Hvernig getur 330.000 manna þjóð komið liði á EM þegar milljónaþjóðir eiga í basli með það? „Ég tengdi vel við þessa mynd út af nokkrum atriðum. Ég er alin upp í handboltanum, pabbi minn, Ólafur H. Jónsson, var atvinnumaður í handbolta, ég bjó í Þýskalandi þegar hann var að spila þar og þekki því at- vinnumennskuna vel. Og ég hef sjálf farið í gegnum það áður í heimildar- myndinni Town of Runners hvernig lítið samfélag getur fætt af sér af- reksfólk. Sú mynd fjallaði um eþíóp- ískar stelpur í 16.000 manna bæ sem dreymdi um að verða maraþonhlaup- arar og keppa á Ólympíuleikunum. Það hafa 8 gullverðlaunahafar komið frá þessu þorpi og við fylgdumst með þeim og reyndum að svara spurning- unni hvað það var sem fékk þær til að stefna svona hátt og hvernig svona fámennt þorpi gæti gefið af sér svona marga gullverðlaunahafa.“ Æskuvinkonur sem gátu stutt hvor aðra Kristín er stundum spurð að því hve- nær hún ætli að koma svo í „kvik- myndirnar“. „Við því er einfalt svar – ég er ekkert á leiðinni þangað. „Heimildarmyndir eru mín ástríða. Ég fíla raunveruleikann, ég er heill- uð af honum. Að geta kafað ofan í einstök málefni, gert þeim góð skil á listrænan hátt með hæfileikafólki úr öllum áttum. Og koma því sem mér liggur á hjarta á framfæri.“ Hjartans mál Kristínar lítur dags- ins ljós í InnSæi sem fjallar eins og nafnið gefur til kynna – um innsæi okkar og hvernig við notum það, eða kannski – hvort við séum yfirhöfuð að nýta það eins og hægt er til að leysa smærri og stærri áskoranir lífsins og gera heiminn að betri stað. „Það eru allir með innsæi en í þessu áreiti sem við lifum í í dag get- ur það oft gleymst. Við Hrund ferð- uðumst um allan heim; til Bandaríkj- anna, Bretlands, Mjanmar, áður Búrma, og hittum stórmerkilegt fólk sem hefur verið að spá og spekúlera í þessu fyrirbæri sem innsæið er; listamenn, taugalíffræðing, andlega leiðtoga, vísindamenn og viðskipta- fræðiprófessor úr Harvard.“ Kristín segist síðustu 15-20 árin hafa verið meðvituð um mikilvægi þess að hlusta á innsæi sitt en á þessu ferðalagi hafi hún uppgötvað fullt af nýjum hlutum. „Það var magnað að kynnast sýn þessa fólks sem við tókum viðtöl við og maður lærði fullt af því. Myndin hefði þess vegna getað verið fjórir tímar, það er svo ótrúlega margt áhugavert við þetta efni. Við skoðum hvernig hægt er að tengja meira inn á við og nýta það sem býr innra með okkur betur, svo sem í menntakerf- inu, friðarviðræðum milli þjóða, dag- legu lífi og vinnu. Hvernig erum við að mennta börnin okkar? Höfum við tekið út ákveðna þætti í lífi okkar sem er svo bráðnauðsynlegt að séu með? Þetta er mjög persónuleg saga og var æðislegt ferðalag sem ég lærði mikið af. Við hlökkum mikið til að deila þessari mynd með öðrum.“ Myndin hefur verið forsýnd fyrir litla hópa en í lok júní verður hún heimsfrumsýnd í Berlín og svo sýnd Heilluð af raun- veruleikanum Kvikmyndaframleiðandinn Kristín Ólafsdóttir er með mörg járn í eldinum en þrjár heimildamyndir úr hennar smiðju líta dagsins ljós á árinu. Hún er gjarnan spurð hvort hún sé ekki á leið í „kvikmyndirnar“ en hún segist ekkert vera á leiðinni þangað. Raunveruleikinn sé hennar tebolli. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is „Ég hef meðvitað viljað búa til teymi kvenna vegna þess að konur verða að fá starfsreynslu og verða að fá að koma hug- myndum sínum á framfæri. Og ég er orðin þreytt á því að það sé ekki meira í boði af kvikmyndaefni sem konur heillast af,“ segir Kristín Ólafsdóttir kvikmyndaframleiðandi. ’Svo spilaði sterktinn í að strákarnirmínir hafa þrálátlegabeðið mig um að gera mynd sem þeir gætu tengt við. Þeir elska fótbolta – þannig að það smellpassaði Kristín með leikstjórum myndarinnar Jökullinn logar; Sölva Tryggvasyni og Sævari Guðmundssyni. Þeir hafa fylgt strák- unum eftir síðastliðin tvö ár við undirbúning myndarinnar en Kristín kom inn í verkefnið með þeim í janúar. Morgunblaðið/Ófeigur VIÐTAL

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.