Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.06.2016, Qupperneq 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.06.2016, Qupperneq 21
5.6. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21 fá oft vægt áfall þegar ég segi þeim hvar ég bý, hér í jaðri mesta glæpa- hverfis borgarinnar.“ Íbúð Steinunnar í Akkra er í lítilli kommúnu ungs fólks frá öllum heimshlutum. „Göturnar eru ekki malbikaðar og ræsin opin. Stundum er ekkert rafmagn, og stundum ekkert vatn, og verður maður þá að þola það í nokkra daga,“ lýsir Stein- unn og kveðst ekki óttast smá- glæpamennina. „Núna þekkja þess- ir smákrimmar mig og myndu aldrei gera mér mein, ólíkt því þeg- ar ég varð á vegi þeirra fyrir þrem- ur árum í einu af ríku hverfunum. Það er þangað sem þeir fara til að ræna og rupla.“ Þrátt fyrir allt þetta og að auki erfiðar samgöngur, spillta embætt- ismenn og ýmsa sjúkdóma sem herjað geta bæði á gesti og heima- menn þá vega kostirnir þyngra en gallarnir. Segir Steinunn að fólkið sé yndislegt og samfélagið heillandi. „Ef mér líður illa þarf ég ekki annað en að halda út úr húsi og ganga um göturnar, og þá fer mér að líða bet- ur. Það er fólk alls staðar, og ynd- isleg og brosandi börn að leik hvert sem litið er. Lífið er einfalt en þau gera sér að góðu það sem til er, og ef ekki er til fótbolti má skemmta sér lengi við að rúlla dekki eftir göt- unni. Það eru vitaskuld svartir sauðir inn á milli eins og alls staðar annars staðar í heiminum, en fólkið hér er gott, hjálpsamt og hugsar vel um hvert annað.“ Maturinn er líka góður, að sögn Steinunnar, og hægur og þægilegur hraði á lífinu. „Það tekur langan tíma að elda og eitthvert tímaleysi sem maður finnur fyrir. Ég upplifi þessa ró svo vel þegar ég heimsæki handverksmennina sem finna má víða í borginni, og fylgist með þeim vefja körfur og stóla af mikilli list. Ég reyni að læra af þeim og munar þá ekkert um að svara mér og út- skýra þó stundum finnist þeim spurningarnar fyndnar frá þessari forvitnu hvítu konu. Þetta er fólk sem aldrei hefur farið í skóla, en kann samt svo mikið, og hefur margt fallegt að gefa.“ Ljósmyndir/úr einkasafni Aðstæður kalla á frumlegar lausnir. Meðal þess sem arkitektar vinna að í Gana er að minnka hættu vegna flóða. Jarðvegur er þéttur og rigningarvatn safnast upp og getur skemmt mikið. Leirinn er hentugt byggingarefni á en heimamönnum finnst hann ekki nógu fínn. ’ Ef mér líður illa þarfég ekki annað en aðhalda út úr húsi og gangaum göturnar Ofan á allt þurfa arkitektar að glíma við óskilvirkt og spillt embættismannakerfi. Steinunn segir það hafa tekið langan tíma að átta sig á hvernig póli- tíkin virkar en alþjóðlegar mæl- ingar sýna að Gana er eitt af spilltustu ríkjum álfunnar. „Hér gera stjórnmálamenn ekkert nema það gagnist þeim sjálfum og það sést t.d. á því að þegar ráðist er í framkvæmdir er þess vandlega gætt að hafa myndir uppi af þeim stjórn- málamanni sem vill fá heið- urinn af verkinu, og skilaboðin nánast þau að nýr vegur eða skóli sé gjöf frá honum til íbú- anna. Raunin er auðvitað að framkvæmdirnar eru fjár- magnaðar með sköttum, og hefur þá mikið skattfé þegar horfið í vasa pólitíkusa.“ Steinunn vill ekki taka þátt í spillingarleiknum. „Stundum fallast mér hreinlega hendur, en ég læt mig þó hafa það á endanum að borga engum neitt, þó það taki þá meiri tíma og meiri fyrirhöfn að fá öll leyfi og stimpla. Allt sem tengist leyfum getur verið ótrúlega flókið, nema maður eigi pening og sé tilbúinn að borga: þá er hægt að fá leyfi fyrir hverju sem er í hvelli. Svona mega hlutirnir ekki ganga fyrir sig, og þó að við sem erum betur megandi getum þolað svona svona kerfi þá er útkoman fyrir þá fátæku sú að þeir hafa engin réttindi.“ Glíma við spillt kerfi N ýbýlavegur8.-200 Kópavogur-S:527 1717 - dom usnova@ dom usnova.is -w w w .dom usnova.is Frítt verðmat Viltu vita hvað þú færð fyrir fasteignina þína ? Fasteignasala venjulega fólksins... Fagljósmyndun Traust og góð þjónusta alla leið

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.