Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.06.2016, Síða 26
Fyrir 4
4-6 fiskibollur
500 g gulrætur
1 búnt Lambhagasalat
100 g beikon
30 g smjör
Skerið fiskibollurnar í 4-6 báta.
Skerið gulrætunar í svipaða
stærð og sjóðið í 10 mínúntur í
söltuðu vatni. Steikið beikonið
og skerið í fjóra hluta. Bætið á
pönnuna 30 g af smjöri og bræð-
ið. Rétt áður en smjörið verður
brúnt eru gulræturnar, fiskiboll-
urnar og beikonið sett út á pönn-
una, hitað og velt saman þangað
til að bollurnar eru orðnar heit-
ar í gegn. Setjið á disk, svartur
pipar mulinn yfir og 2-3 tsk. af
gráðostasósunni sett yfir. Borið
fram með baguette-brauði.
Gulrótarfiskibolluragú
400 g slaufupasta
100 g kokteiltómatar
3-4 beikonsneiðar
parmesanostur
ferskt basil
ólífuolía
Sjóðið pasta samkvæmt leið-
beiningum á pakka. Skerið
fiskibollurnar í báta. Steikið
beikonið eða ef þið eigið
ennþá steikt beikon frá kvöld-
inu áður getið þið notað það.
Skerið hverja beikonsneið í
fjóra hluta. Hitið bollurnar í
örbylgjunni. Blandið pastanu,
beikoninu, basil og nið-
urskornum tómötum saman
í skál ásamt 4 msk. af olífuolíu
og stráið vel af parmesanosti
yfir. Saltið og piprið eftir
smekk. Gott að hafa bagu-
ette-brauð með.
Ítalskt fiskibollusalat
Vínber eru dásamleg ein og sér, með ostum eða í mat. Þau geta verið
svört, blá, gyllt, græn, fjólublá og hvít. Sniðugt er að skera berin í
tvennt og setja í sumarsalatið. Það gefur því sætt og frískandi bragð.
Vínberin sætuMATUR
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.6. 2016
Hversdagsmatur þarf ekki að verahversdagslegur eins og Óskar sýnirokkur þegar hann galdrar fram ham-
borgara á nokkrum mínútum. Að þessu sinni
eru notaðar fiskibollur í stað kjöts og bragð-
bætt annars vegar með reyktum laxi og hins
vegar með beikoni. Til að gera þetta enn girni-
legra bræðir hann brie-ost með. Þannig geta
allir fengið eitthvað við sitt hæfi. Úr afgöngum
býr hann til ljúffenga rétti sem gott er að hafa
daginn eftir og sparar bæði tíma og fyrirhöfn.
Fiskibolluborgarar í nýjum hæðum
ÞESSA RÉTTI ER HÆGT AÐ BÚA TIL ÚR AFGÖNGUNUM
8 fiskibollur
150 g reyktur lax
8 beikonsneiðar
1 brie-ostur
piparrótarsósa
gráðostasósa
2 tómatar
1 búnt Lambhagasalat
1 gul paprika
1 laukur
1 cm piparrót (ef ekki til þá ½ tsk.
af svörtum pipar)
4 hamborgarabrauð eða brioche-
brauð
100-120 g kartöflur á mann
6 dropar af tabasco
Óskar býr til tvær gerðir af fiski-
bolluhamborgurum; með brie-
osti og beikoni annars vegar og
piparrót og reyktum laxi hins
vegar.
Skerið kartöflurnar í báta og
bakið í ofni í ólífuolíu í 40 mín-
útum á 200 gráðum. Beikoninu
er dreift á bökunarplötu eða
grind og sett í ofninn með kart-
öflunum.
Skerið grænmetið niður og
hafið tilbúið.
Bragðbætið piparrótarsós-
una með ferskri piparrót eða
pipar. Setjið nokkra dropa af
tabasco út í gráðostasósuna.
Skerið bollurnar í tvennt og
steikið í smjöri í nokkrar mín-
útur á „opnu“ hliðinni. Fjórum
fiskibollum er raðað saman og
sneiðar af brie-osti settar ofan
á þær ásamt beikonsneiðum.
Til að bræða ostinn hraðar er
gott að setja lok á pönnuna um
stund.
Hitið brauðið í ofni í smá-
stund og smyrjið svo annars
vegar með piparrótarsósunni
og fyllið með salati, papriku,
lauk, fiskibollum og vel af
reykta laxinum. Yfir þetta er
svo gott að setja enn meiri
sósu áður en borgaranum er
lokað.
Á hinn borgarann setjið þið á
brauðið gráðaostasósuna,
sama úrval af grænmeti og loks
fiskibollurnar með brædda
brie-ostinum og beikoni. Setjið
aðeins meira af sósunni áður
en borgaranum er lokað. Kart-
öflubátarnir eru teknir úr ofn-
inum og bornir fram ásamt
þessum snilldarborgurum.
Í nýjasta þætti af Kort-
er í kvöldmat skellur
Óskar Finnsson í
tvenns konar fiski-
bolluborgara. Báðir
eru girnilegir á að líta
og enn betri að bíta í.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Fiskibolluborgari með reyktum laxi.
Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir
Fiskibolluborgarar
í tveimur útgáfum
Þú færð öll hráefnin
úr þáttunum hjá okkur