Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.06.2016, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.6. 2016
MATUR
Það er næstum hægt að finnalyktina af hafinu þegar komiðer inn í Messann í Lækjar-
götunni og stemningin er notaleg.
Hugmyndin var að færa Reykvík-
ingum og erlendum ferðamönnum
fiskiþorpsandrúmslofið beint í höf-
uðborgina en staðurinn er í anda
Tjöruhússins á Ísafirði. Þar er rekið
í einu elsta húsi landsins veitinga-
staður þar sem kokkurinn Magnús
Hauksson eldar það ferskasta úr
sjónum hverju sinni og ber það fram
í pönnunni. „Maggi fær fisk frá
trillukörlunum. Þetta er mjög róm-
antískt og „rustigt“ dæmi og óhefð-
bundið. Þetta er æðislegt af því að
þetta er svo hrátt. Við erum að færa
þessa hugmynd á annað plan hingað
til Reykjavíkur,“ segir Snorri Sig-
finnsson, yfirkokkur á Messanum.
Akkeri og kýrauga
Mikið er lagt upp úr því að hafa útlit-
ið í samræmi við hugmyndina. „Við
erum búin að gera staðinn flottan.
Borðin eru sérsmíðuð og diskarnir
eru keyptir á skransölum í Belgíu og
víðar,“ segir Snorri en staðurinn er í
anda fiskiskips með akkeri og kýr-
auga. Allur matur er borinn fram
sjóðheitur í fallegum koparpönnum.
„Hugmyndin er að fólk fái fiskinn á
pönnu og deili þá kannski einni
pönnu. Á pönnunni eru líka kartöflur
og meðlæti. Þetta er dáldið kósí,“
segir hann.
Fiskur í aðalhlutverki
Á matseðlinum er aðallega fiskur en
hægt verður að fá grænmetisrétt
sem er líka borinn fram á pönnu en
einnig verða forréttir og eftirréttir.
Um helgar verður boðið upp á
„brunch“-matseðil. „Ég verð með
ommelettur og lummur og ég ætla
að gera allt frá grunni. Og þetta
verður allt á pönnu líka.“
Rómantík
á pönnu
Messinn er nýr veitingastaður sem var opnaður í vikunni í Lækjargötu í
Reykjavík. Yfirkokkurinn Snorri Sigfinnsson ætlar að bera fram
glænýjan fisk í koparpönnum í anda Tjöruhússins á Ísafirði.
Texti og myndir: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
’Hugmyndin er að fólkfái fiskinn á pönnu ogdeili þá kannski einnipönnu. Á pönnunni eru
líka kartöflur og meðlæti.
Þetta er dáldið kósí.
Í gegnum kýrauga er
hægt að fylgjast með
kokkunum í eldhúsinu.
Umhverfið er notalegt og
minnir á sjómennsku.
Jón Mýrdal Harðarson eigandi
Messans og Snorri Sigfinnsson
yfirkokkur eru spenntir að
bjóða upp á glænýjan fisk í
fallegum koparpönnum.
Fyrir 15-20 skálar
100 ml nýmjólk
75 g sykur
75 g eggjarauður (ca.)
250 g hvítt súkkulaði
brætt í vatnsbaði
6 stykki stór gelatínblöð
400 g hreint skyr
300 ml þeyttur rjómi
1 sítróna
bláber
Hitið saman á lágum
hita mjólkina, sykurinn
og eggjarauðurnar þar
til það þykknar. Bræðið
súkkulaðið í heitu
vatnsbaði. Látið gelat-
ínplöturnar í kalt vatn
þar til þær eru linar.
Veiðið þær upp úr og
hristið vatnið af. Setjið
út í súkkulaðið og
blandið. Hrærið skyrinu
varlega saman við. Í
lokin skaltu hræra
þeytta rjómanum sam-
an við og kreista eina
sítrónu yfir og hræra.
Setjið í litlar skálar og
setjið í kæli í sex
klukkutíma. Takið út og
berið fram með bláberj-
um.
Hvítsúkkulaði
skyrmús