Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.06.2016, Qupperneq 30
HEILSA Að taka stigann í stað lyftunnar getur skipt sköpum. Þótt þessi skrefvirðist kannski ekki svo mörg safnast þau saman. Öll hreyfing er góð
og alltaf betri en kyrrstaða.
Stigar eru heilsubót
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.6. 2016
Crossfit Regional-svæðamótið fór framum síðustu helgi í Madrid. Þar tókuþátt Evrópu- og Afríkubúar á svoköll-
uðu svæðamóti, en þau fara fram víðsvegar
um heiminn. Fimm efstu þátttakendurnir á
hverju móti fá þátttökurétt á heimsleikunum í
sumar. Björgvin Karl og Ragnheiður Sara
Sigmundsdóttir unnu keppnina sem haldin var
í Madrid um síðustu helgi. Þau tryggðu sér
þar með réttinn til að taka þátt í heimsmeist-
aramótinu ásamt þeim Annie Mist Þórisdótt-
ur, Katrínu Tönju Davíðsdóttur og Þuríði
Erlu Helgadóttur sem öllum hefur gengið vel
á svæðamótunum. Einnig tryggði liðið Cross-
fit XY sér sæti á leikunum sem haldnir verða í
Kaliforníu í júlí.
Æfingarnar vinnan þessa dagana
Björgvin Karl hefur verið að keppa í þessari
íþrótt frá árinu 2013 og hefur náð góðum ár-
angri en sigurinn um síðustu helgi var góður.
„Það var kominn tími á þetta, ég hef tekið þátt
þrisvar en aldrei náð toppnum fyrr en núna,“
segir Björgvin og er hann hvergi nærri hætt-
ur. Nú sé stefnan að standa sig vel á heims-
meistaramótinu. „Ég er að ná mér aðeins nið-
ur eftir síðustu helgi en nú fer ég að herða
æfingarnar aftur og gera mig kláran fyrir
mótið í sumar. Björgvin æfir fimm til sex sinn-
um í viku tvo til þrjá klukktíma í senn allan
ársins hring. Aðspurður hvort þetta sé ekki
mikið segir hann svo vera en hann hafi tíma í
þetta, hann vilji ná árangri á þessu sviði.
Heildarpakkinn þarf að vera í lagi
Þeir sem hafi hug á að vera með þeim bestu í
þessari grein þurfi að leggja heilmikið á sig
eins og á við um flestar aðrar íþróttagreinar,
segir Björgvin. Heildarpakkinn skipti mestu
máli hvað varðar árangurinn. Hugurinn og
löngunin til að standa sig vel, mataræðið og
æfingarnar skipta að sjálfsögðu máli og telur
hann að æfingarlengdin geri sitt fyrir árang-
urinn. Þjálfarinn hans er sá sami og þjálfar
Annie Mist. Varðandi ráðgjöf með mataræðið
er Björgvin með íþróttanæringarfræðing sér
til aðstoðar sem setur upp plan fyrir hann.
„Ég borða fimm máltíðir á dag, hæfilega
skammta af próteinum, fitu og kolvetnum, ég
þarf mikið af kolvetnum því ég æfi svo mikið.
En aðalmálið er að borða hreinan og hollan
mat og í réttum hlutföllum,“segir Björgvin.
Crossfit-stöðin Hengill hefur veitt honum
mikinn stuðning og aðstoð undanfarin ár, þar
æfir hann og kennir einnig crossfit. Tryggði sér sæti á heimsleikunum með frábærum árangri á Evrópuleikunum.
Mynd/CrossFit HQg
„Tími til kominn að taka þetta núna“
Björgvin K. Guðmundsson, ný-
krýndur Evrópumeistari í cross-
fit, segir áhugann skipta mestu
máli varðandi árangurinn. „Ég
fór með það markmið að vinna
keppnina í Madrid.“
Bergþóra Jónsdóttir bj@mbl.is
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir Evrópumeistari í crossfit árið 2016.Björgvin Karl fagnar frábærum árangri og sigri á mótinu.
Ummál mittis hefur áhrif á krabbamein í
blöðruhálskirtli. Rannsókn sem Oxford-
háskólinn í Englandi gerði á 140.000 karl-
mönnum frá átta Evrópulöndum leiddi í
ljós að ummál mittis hafi áhrif á krabba-
mein í blöðruhálskirtli.
Þeir sem voru með ummálið yfir 94 cm
voru í meiri hættu en aðrir. Rannsóknarað-
ilar skoðuðu tengsl á milli mittisummáls
karlmanna á sextugsaldri og blöðruháls-
kirtilskrabbameins yfir 14 ára tímabil. Á
þeim tíma greindust um 7.000 tilfelli
krabbameins í blöðruhálskirtli, þar af 934
banvæn.
Rannsakendur komust að því að menn
með háan líkamsþyngdarstuðul (BMI) og
rúmt mittismál voru í meiri hættu á því að
fá þessa tegund krabbameins. Karlar með
meira mittismál en 94 cm voru 13% líklegri
til að fá blöðruhálskirtilskrabbamein en
þeir sem voru með mittismálið 84 cm.
Þetta telja rannsakendur að gefi til kynna
að karlmenn sem séu með mittismál
stærra en 94 cm séu í meiri hættu á heilsu-
farsvandamálum en þeir sem hafa minna.
Ár hvert greinast 47.000 karlar í Bret-
landi með krabbamein í blöðruhálskirtli.
Meira en 10.800 deyja úr sama sjúkdómi
samkvæmt frétt af vef BBC.
Rannsakendur telja líklegt að hormón í
fitufrumum sé krabbameinsvaldandi en
það hefur ekki verið staðfest ennþá.
Dr Aurora Perez-Cornago frá Oxford-
háskólanum
segir að til þess að forðast aukna hættu
á að fá krabbameinið, sé einfaldlega best
að viðhalda heilbrigðri þyngd og eðlilegu
mittismáli og þeir sem séu í yfirþyngd ættu
að huga að því að gera eitthvað í mál-
unum.
Að safna kviðfitu getur verið hættuspil og nú er komið í ljós að þeir sem eru breiðari en
94 sentimetrar um sig miðja eru í meiri hættu á að fá krabbamein í blöðruhálskirtil.
Getty Images
TENGSL KVIÐFITU VIÐ KRABBAMEIN Í BLÖÐRUHÁLSKIRTLI
Mittismál hefur áhrif á heilsuna