Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.06.2016, Blaðsíða 45
Kópvogski rapparinn Herra hnetu-
smjör lofar „vígalegu sjói“ á laug-
ardegi Solstice-hátíðarinnar.
Hvernig tónlist spilarðu?
Illaða.
Hvaða erlenda nafni ertu
spenntastur fyrir á Solstice?
Klárlega M.O.P.
En bara almennt í tónlistarlíf-
inu í sumar?
Ég er að spila á húkkaraballinu
í Eyjum. Ég er spenntur fyrir
því. Svo ætla ég að sjá Bieber.
Hverjir eru mest spennandi í ís-
lensku senunni?
Joe Frazier, DJ Spegill og BINNIS.
Þetta er það heitasta frá Kópavogi
um þessar mundir.
Hvaða lag ertu mest að hlusta á þessa
dagana?
Feds Watchin með 2 Chainz.
Vígalegt
hnetusmjör Salka Sól syngur í sveitinni Amaba-dama og verður í góðu fjöri á Solstice.
Hvernig tónlist spilið þið?
Við spilum reggí, gleði og gaman.
Hvaða erlenda nafni ertu spenntust
fyrir á Solstice?
Ég er mjög spennt að sjá Die Antwo-
ord. Þetta eru mjög áhugaverðir kar-
akterar.
En bara almennt í tónlistarlífinu í sum-
ar?
Við verðum á ferð og flugi í allt sumar,
meðal annars á breskri hátíð sem heit-
ir Boomtown. Það er mjög spennandi.
Hverjir eru mest spennandi í íslensku
senunni?
Ég ætla að segja Úlfur úlfur.
Hvaða lag ertu mest að hlusta á þessa
dagana?
Ég hlusta mikið á Skepta þegar ég fer
út að hlaupa.
Reggí, gleði
og gaman
Nafnlausa tvíeykið Vaginaboys vill benda á veru sína á Spotify
og þarf að eigin sögn „Spotify-peninga til þess að halda áfram
að iðka bíllausan raw-vegan lífsstíl.“
Hvernig tónlist spilið þið?
Rómantíska raftónlist með kynlegum undirtónum. Dónatónar.
Hvaða erlenda nafni eruð þið spenntastir fyrir á Solstice?
Die Antwoord. Ef Kim Larsen væri að koma til landsins þá væri
það Kim Larsen.
En bara almennt í tónlistarlífinu í sumar?
Það verður gaman að sjá hvernig okkur gengur að klára plöt-
una. Við fengum styrk til þess að koma fram í Hörpu og hlökk-
um mikið til. Förum svo til New York í júní að hitta mennina.
Verðum í Brooklyn, hverfinu þar sem menn drekka kaffi og
spila brids.
Hverjir eru mest spennandi í íslensku senunni?
Það er eitthvað við rokkið hjá DJ Flugvél og Geimskip sem
heillar gríðarlega. Svo eru það skvísurnar í Gervisykur, þær eru
með feitt teip á leiðinni. Mælum líka með því að kíkja á Beat-
machinearon. Hann er stórstjarna.
Hvaða lag eruð þið mest að hlusta á þessa dagana?
Put That Away and Talk to Me með James Blake. Við viljum
meina að þetta lag sé samið um snjallsímavæðinguna sem hef-
ur tröllriðið samfélaginu á síðastliðnum árum en höfum ekki
fengið það staðfest.
Kynlegir dónatónar
Natalie Gunnarsdóttir kemur fram undir nafninu
Yamaho á Solstice ásamt ELO.
Hvernig tónlist spilarðu?
Blöndu af vandaðri hústónlist og teknó.
Hvaða erlenda nafni ertu spenntust fyrir á Solstice?
Það er ótrúlegt úrval af amerískri hústónlist. Ég er
mjög spennt að sjá menn eins og Kerri Chandler og
Derrick Carter. Carter er minn
maður.
En bara almennt í tónlistarlíf-
inu í sumar?
Það er búið að bæta fullt af
spennandi viðburðum í
senuna. Ég mæli til
dæmis með Taktfakt
núna um helgina.
Glæný hátíð í Grinda-
vík sem skartar fullt
af íslenskum lista-
mönnum í dans-
tónlistarsenunni.
Svona hátíðir
auðga íslenskt
tónlistarlíf.
Hverjir eru mest
spennandi í ís-
lensku senunni?
Mér finnst íslenskt
hip-hop vera að
brillera. Aron
Can, GKR, Sturla
Atlas og Alexand-
er Jarl eru mjög
flottir. Það er brjáluð
gróska í gangi.
Hvaða lag ertu
mest að hlusta á
þessa dagana?
Manstu ekki eft-
ir mér? með
Stuðmönnum.
Þú heldur að ég
sé að grínast en
ég hlusta mjög mikið á þetta lag.
Brjáluð gróska
og danstónlist
Hvað eru þau
að hlusta á?
Sunnudagsblaðið ræddi við nokkra íslenska tónlistarmenn
sem koma munu fram á tónlistarhátíðinni Secret Solstice.
Matthías Tryggvi Haraldsson mth@mbl.is
5.6. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45
Madonna saklaus
Madonna er saklaus af höfundarréttar-
brotum þrátt fyrir að í einu lagi hennar
megi heyra brot úr lagi annars listamanns.
Þetta var úrskurður bandarískra dómstóla.
Lagið sem um ræðir er smellurinn Vogue
sem kom út árið 1990, en í því má heyra ör-
stutt brot úr laginu Love Break með hljóm-
sveitinni Salsoul Orchestra.
Í rökstuðningi dómaranna sagði meðal
annars að brotið sem um ræðir væri styttra
en ein sekúnda og illgreinanlegt af almenn-
um hlustendum. Úrskurðurinn var hins-
vegar ekki óumdeildur, því einn dómari
sagði notkun brotsins jafngilda þjófnaði. Madonna er enginn þjófur.
AFP
Framvegis munu Stöð 3 og Gullstöðin svo-
kallaða vera sameinaðar undir merkjum
Stöðvar 3. Þetta var tilkynnt á vef 365
miðla, þar sem sagði að sameinuð stöð
myndi senda út nýtt og vandað efni í bland
við gamalt og gott. Sameiningin tók gildi
um mánaðamótin núna í vikunni. Gullstöðin
var sjónvarpsstöð sem átti að sýna brot af
því besta úr gullkistu Stöðvar 2, innlenda
þætti úr safni í bland við vinsæla og klass-
íska erlenda þætti frá Bandaríkjunum,
Bretlandi og Danmörku.
Gullstöðin og
Stöð 3 sameinaðar
Gamalt efni verður sýnt á Stöð 3.
Getty Images/iStockphoto