Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.06.2016, Blaðsíða 48
SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 2016
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Natuzzi Ítalía Capriccio Model 2896
Lengd 195 cm. Áklæði ct.70. Verð 275.000,-
▲
Natuzzi Italia Borghese Model 2826
Lengd 220 cm. Leður ct.15. Verð 515.000,-
▲
Natuzzi Italia Quadro Model 2849
Lengd 200 cm. Leður Ct.10. Verð 475.000,-
Lengd 167 cm. Leður Ct.10. Verð 435.000,-
▲
▲ Natuzzi Italia Duse Model 2829
Lengd 206 cm. Áklæði ct.83. Verð 399.000,-
Flottir sófar í
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
Natuzzi
Churchill-klúbburinn á Íslandi í samstarfi við Minjar og sögu
verður með fyrirlestur um einn þekktasta forsætisráðherra
Bretlands, sir Winston Churchill, laugardaginn 4. júní í Safna-
húsinu við Hverfisgötu.
Dr. David Freeman, aðalritstjóri alþjóðlegu Churchill-
samtakanna, flytur fyrirlesturinn en hann er vinsæll ræðumað-
ur og hefur skrifað fjölda greina um Churchill. Allir áhugasamir
um sögu ættu að hafa fyrirlesturinn í huga enda Churchill einn
af áhrifavöldum 20. aldarinnar. Hann hóf feril sinn sem riddara-
liðsforingi í tíð Viktoríu Bretadrottningar og endaði sem leiðtogi
kjarnorkuveldis og fyrsti forsætisráðherra Elísabetar, núver-
andi Bretadrottningar. Þá má ekki gleyma þætti hans í síðari
heimsstyrjöldinni þar sem hann talaði kjark í bresku þjóðina á
erfiðustu tímum hennar.
Fyrirlestur dr. Davids Freeman fer fram í Safnahúsinu við Hverfisgötu sem flestir þekkja þó kannski sem Þjóðmenningarhúsið.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Maðurinn sem allir þekkja
Winston Churchill neitaði að gefast upp fyrir
öfgastefnu fasisma í Evrópu og vann stríðið.
Fyrirlestur um Winston Churchill
í Safnahúsinu við Hverfisgötu
„Nú liggja fyrir endanlegar tölur
um mannfjölda hér á landi 1. des-
ember 1979. Samkvæmt tölum
Hagstofunnar bjuggu hér þá sam-
tals á Íslandi 226.724 manns.“
Með þessum orðum hófst frétt
í Morgunblaðinu 17. júní 1980.
Fyrir tölvuskráningar hefur taln-
ing tekið töluvert lengri tíma en
vert er að geta þess að í dag,
2016, eru Íslendingar 332.529
talsins.
„Í Reykjavík bjuggu þá 83.536
manns. 40.558 karlar og 42.978
konur. Í öðrum kaupstöðum
landsins bjuggu þá samtals
87.249 manns og er Kópavogur
kaupstaðanna fjölmennastur
með 13.533 íbúa. Akureyri
13.137 og Hafnarfjörður 12.158,
en í öðrum kaupstöðum var
íbúafjöldinn meira en helmingi
minni. Samtals bjuggu í sýslum
landsins 55.939 manns.“
Íslendingum fjölgaði lítillega
árið 1979 en í sömu grein segir
að Íslendingum hafi fjölgað um
1,04% það herrans ár. Fæstir íbú-
ar það ár voru í Austur-Barða-
strandarsýslu eða 429 manns.
GAMLA FRÉTTIN
Flestir í
Reykjavík
Íslendingum hefur fjölgað um rúm 100 þúsund síðan 1979.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Luka Modric
knattspyrnumaður
Johan Cruyeff
knattspyrnumaður
Róbert, Robbie, Sigurðsson
íshokkímaður