Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.03.2003, Síða 12

Víkurfréttir - 20.03.2003, Síða 12
Sandgerði: Lokun bræðslunnar eins og þruma úr heiðskíru lofti Framtíð fiskimjölsverk- smiðju Sfldarvinnslunn- ar í Sandgerði mun ráð- ast á stjórnarfundi í fyrir- tækinu sem hófst nú eftir há- degið. Starfsmönnum fyrir- tækisins var tilkynnt um uppsagnir á föstudag og á Bylgjunni var sagt að þær hafi komið eins og þruma úr heiðskíru lofti yfir starfs- menn verksmiðjunnar og bæjaryfirvöld í Sandgerði. Komið hefur fram að ráðist hefði verið í miklar fram- kvæmdir við höfnina i Sand- gerði fyrir nokkru í því augna- miði að stærri skip gætu landað afla til bræðslunnar. Þá er skammt síðan bræðslan var endurbyggð að stórum hluta en þær ffamkvæmdir kostuðu um 400 milljónir króna. Björgólfiir Jóhannsson forstjóri Síldarvinnslunnar vildi ekki staðfesta nú rétt fyrir hádegið að loka ætti verksmiðjunni fyrir fullt og allt og sagðist ekkert geta sagt um það fyrr en að loknum stjómarfiindi sem hald- inn verður eftir hádegið. Frá þessu var greint í Auðlindinni í Ríkisútvarpinu. Fimm fastir starfsmenn hafa verið við fiski- mjölsverksmiðjuna í Sandgerði og 12-13 yfir loðnuvertíð í um eins til tveggja mánaða tima ár hvert. Þorsteinn Már Baldvinsson, stjómarformaður Síldarvinnsl- unnar, sagði við RUV að eftir samruna SR-Mjöls og Síldar- vinnslunnar þyrfti að fækka fiskimjölsverkmiðjum. Bræðslu hefitr þegar verið hætt í verksmiðjunni á Reyðarfirði og nú bætist Sandgerði við. Engin loðna hefur borist til bræðslu í Sandgerði frá ára- mótum en á síðasta ári tók verksmiðjan á móti 27.000 tonnum. Einingar úr verksmiðjunni verða nýttar í verksmiðjum Síldarvinnslunnar annars staðar á landinu. Samvinna í atvinnumálum á Suðurnesjum /r fundi bæjarstjórnar Sandgerðis í síðustu viku lagði Ólafur Þór Ólafsson bæjarfuiltrúi Sand- gerðislistans fram eftirfar- andi tillögu sem samþykkt var í bæjarstjórn: „Bæjar- stjórn Sandgerðisbæjar legg- ur til við stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum að hún skipi starfshóp með fulltrúum frá sveitarstjórn- um, fyrirtækjum, hagsmuna- aðilum og stofnunum á svæð- inu til að skiia tillögum um sameiginlegar aðgerðir í at- vinnumáium.“ I greinargerð sem lögð var ffam með tillögunni segir: „Á opn- um fitndi sem Sandgerðislistinn hélt á Veitingahúsinu Vitanum 23.01.2003 um atvinnumál í Sandgerði var eftirfarandi ályktun samþykkt: Opinn fitndur Sandgerðislistans haldinn á Veitingahúsinu Vitan- um í Sandgerði 23. janúar2003 hvetur Suðumesjamenn til auk- innar samvinnu til eflingar at- vinnulífs á svæðinu. Þingmenn, sveitarstjómir, fyrir- tæki og hagmunasamtök þurfa að taka höndum saman til að nýta þau sóknarfæri sem bjóð- ast á Suðumesjum. Sóknarfær- in er m.a. að finna í sjávarút- vegi, ferðaþjónustu og orkuiðn- aði. Þá eru tækifærin sem fylg- ja nálægð við alþjóðlegan flug- völl og batnandi samgöngum nær óteljandi. Þessi sóknarfæri þarf að nýta! I ljósi þessarar ályktunnar, sem m.a. var samþykkt af nokkrum þingmönnum og sveitarstjóma- mönnum af svæðinu, og þess sem kom ffam á góðum fundi í Safnaðarheimilinu í Sandgerði 06.03.2003 er greinilegt að menn álíta samvinnu lykilatriði í atvinnumálum á Suðurnesj- um. Dæmin sanna að með sam- vinnu er hægt að ná miklum ár- angri. Stjóm Sambands sveitar- félaga á Suðurnesjum er i lykil- aðstöðu til að stilla strengi Suð- urnesjamanna saman og því eðlilegt að sameiginleg stefhu- mótunarvinna í atvinnumálum fari ffam á hennar vegum. Það er eðlilegt að kalla saman þá aðila sem starfa að atvinnu- og sveitarstjómamálum á svæðinu til að vinna hugmyndir um sameiginlegar aðgerðir. Niður- stöður slíks starfshóps geta ver- ið gott veganesti fyrir nýjan at- vinnuráðgjafa S.S.S. í þeirri vinnu sem er ffamundan vegna nýlegs samnings sambandsins við Byggðastofnun." Þorsteinn Erlingsson framkvæmdastjóri Saltvers ræðir um sjávar mgpótid Þorsteinn Erlingsson er að verða sextugur, en hann hefur komið að sjávarútvegi frá unga aldri. Ásamt fjölskyldu sinni hefur hann rekið fyrirtækið Saltver sl. 20 ár og hefur reksturinn gengið með ágætum. Þorsteinn var skipstjóri á árum áður og hann hefur verið viðloðandi loðnuna frá 1965, fyrst sem skipstjóri, síðan útgerðarmaður og nú er hann f loðnuvinnslu. Þorsteinn segir að loðnu- vertíðin í ár verði svipuð hjá Saltveri og í fyrra: „Loðnan kom seint vestur eftir og þegar hún kom voru bátarnir langt komnir með kvótann. Síldarvinnslan hefur verið með bát frá Grænlandi í við- skiptum en hann á töiuverðan kvóta eftir. 77/ að stytta löndun úr bátnum sem venjulega tekur um sólarhring höfum við dælt upp úr honum í tanka og þaðan tökum við loðnuna til vinnslu, en þetta datt yfirmönnum Síldarvinnslunnar í hug. Við erum í sjö klukkutíma að landa upp úr bátnum í stað sólarhrings og það skiptir máli. Hann er búinn að landa þrisvar sinnum á tveimur sólarhring- um,“ segir Þorsteinn og bætir við að hann búist við að hrognavinnslan verði svipuð og í fyrra: „í fyrra vorum við að vinna á milli 700 og 800 tonn af hrognum og ég býst við að í ár verði þetta svipað, “ segir Þorsetinn. Þorsteinn hefur verið rnikið spurður að því hver staða loðnu- verksmiðjunnar í Helguvík er eftir sameiningu Sildarvinnsl- unnar og SR-mjöls: „Það er bara kjaftæði að verksmiðjan verði lögð niður, enda erum við með bestu hafnaraðstöðu á Islandi. Síldarvinnslan, með 1120 hlut- höfum er mjög sterkt fyrirtæki og mér líst ágætlega á samein- ingu fyrirtækjanna og ég vænti áffamhaldandi góðrar samvinnu við þá aðila sem þar koma að rekstri, enda þekki ég þessa menn. Eg var reyndar hluthafi í SR-mjöli í upphafi," segh Þor- steinn. Lítið að gera í rækjunni Fyrirtæki Þorsteins og fjöl- skyldu hans, Saltver hefur verið atkvæðamikið í rækjuvinnslu en síðustu 3 árin hafa rækjuveiðar og rækjuvinnsla gengið mjög illa sökum lækkandi verðs á mörkuðum. 1 dag eru 10 fast- ráðnir starfsmenn hjá Saltveri og á milli 60 og 70 manns á meðan á loðnuvinnslunni stendur: „Saltver var aðallegá í rækju- vinnslu og var sú vinnsla rekin 8 til 9 mánuði á ári, en það hefur verulega dregið úr þeirri starf- semi. Það hefur engin rækju- veiði verið við Eldey og í Kolluál síðustu ár. í sumar verð- ur rækjuvinnsla í tvo mánuði, nema veiði hefjist á ný við Eld- ey. En gárungarnir í greininni segja að Saltver sé best rekna fyrirtækið í rækjuiðnaðinum vegna þess að dregið hefur úr vinnslunni," segir Þorsteinn. Saltver gerði einnig út bátinn Erling sem er orðinn 47 ára gamall: ,,Hann er orðinn það gamall að hann stenst ekki leng- ur ýtrustu kröfur. Við höfum verið að gera bátinn út á rækju og net um það leiti sem loðnan kemur og hrognavinnsla hefst. En á þessum tíma er svo bijálað að gera að við önnum ekki salt- fiskvinnslunni. Við erum bara i hrognunum núna og sú vinna stendur fram í maí,“ segir Þor- steinn en ákvörðun verður tekin innan Saltvers hvort kaupa eigi linubát eða litinn togara á næsta ári. Saltver ekki að hætta Þorsteinn segir að þær sögu- sagnir hafi gengið fjöllum hærra að Saltver væri að sameinast eða Þorsteinn ásamt tengdasyni sínum, Guðmundi J. Guðmundssyni vörubílstjóra. 12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.