Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.04.2003, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 03.04.2003, Blaðsíða 14
Verslun og þjónusta á Suðurnesjum pket@vf.is Víkurfréttir gerðu verðkönnun miHl Kaskó og Bónus: Overulegur munur a voru- verði í Bónus og Kaskó Verðkönnun Víkurfrétta: Kaskó Bónus Coca Puffs 553 gr. 309 315 Sósujafnari, Maizena 250 gr 125 128 Fiskibollur, Ora 830 gr 1/1 dós 189 195 Mjólk 1 ltr. 77 77 G-mjólk 1/4 ltr. 39 40 Engjaþykkni, jarðabeija 72 75 Skólajógúrt m/súkkulaði og jarðabeijum 52 53 Sýrður tjómi 18 % 149 153 Camembert ostur 150 gr 218 215 Hvítur kastali 125 gr 185 189 Kotasæla 200 gr 105 108 Létt og laggott 400 gr 159 161 Rækjuostur 250 gr 189 195 Skinkumyija 250 ml 222 225 Smjörvi 300 gr 149 152 Aprikósur, Hagver 250 gr 155 179 Blandaðir ávextir, Hagver 250 gr 142 145 Bakaðar baunir, Heinz 420 gr 1/2 dós 57 48 Grænar baunir, Ora 450 gr 1/2 dós • 59 60 Flórsykur, Dansukker 500 gr 73 74 Italiensk Gryte, Toro 17 gr 183 185 PiparsósaToro 32 gr 65 69 Kjöt og grillkrydd, Knorr 88 gr 135 127 VaniIIudropar, Katla 46 47 Salt gróft 1 kg 64 49 Kaffi Braga, gulur 500 gr 299 289 Kaffi Gevalia, meðalbr. rauður 500 gr 299 299 Pepsi Cola 2 ltr. 156 157 Rauð epli 1 kg 145 149 Appelsínur 1 kg 108 93 Tómatar 1 kg 145 149 Vínber, græn 299 229 Kínakál 165 169 Paprika, rauð 208 209 samtals: 5042 5007 Verðmunur á vöruverði í Bónus í Hafnarfirði og Kaskó í Keflavík reyndist vera innan við 1% þegar bomar vom saman 34 tegundir matvara sem fengust í báðum verslunum. Bónus opnar verslun á Fitjum þar sem Hagkaup var áður til húsa nk. laugardag. Kaskó hefitr verið eina lágvöru- verðsverslunin á Suðumesjum um árabil en hún opnaði 1994. Af og til hafa heyrst raddir frá Bónusmönnum um að til stæði að opna verslun hér á svæðinu. Þegar ákveðið var að loka verslun Hagkaupa í vor var tekin ákvörðun um að opna Bónus- verslun í staðinn. Hagkaup opnaði í Njarðvík 1983 og var lengi harðui' keppinautur Sam- kaupa og fleiri verslana á svæðinu. Gangur verslunarinnar dalaði mjög síðustu ár sem endaði með fyrrgreindri lokun. Það er ljóst að Samkaup hf. sem m.a. rekur samnefhda stórverslun í Njarðvík og lágvöruverðsversl- unina Kaskó í Keflavík fær harðan keppinaut 1 nýrri Bónus- verslun. Guðjón Stefánsson segist hafa búist við einhvetjum breytingum á Fitjum í nokkum tíma. Samkeppni hafi alltaf verið mikil á Suðumesjum og verðlag oft á tíðurn verið með því lægsta á landinu. Samkaup sem reki verslanir víða um land, eigi víða í mikilli samkeppni bæði við Baug og önnur verslunarfyrirtæki. Mest segir Guðjón þó að kveði að samkeppninni við Baug vegna þess hversu gífurlega stórir þeir séu á matvöm markaðnum, líklega með um 50% af allri matvömverslun í landinu. „Það er ljóst að þessi innkoma mun hafa umtalsverð áhrif á mark- aðinn hér, en við hyggjumst mæta þessari samkeppni risans með fullri alvöm og einfaldlega gera okkar besta hér eftir sem hingað til. Starfsfólk Samkaupa heftir hingað til haft atvinnu af því að þjóna Suðumesjamönnum og hefur fúllan hug á því að halda því áffam sem allra best.“ Aðspurður segir Guðjón í undir- búningi að bæta við Kaskó verslun í Reykjavík á næstunni. Um lítinn mun á verði í þessurn verslunum skv. könnuninni segir Guðjón það ekki koma sér á óvart. Hann hafi sjálfur talið að verðmunur gæti verið á bilinu 0- 3%. Eftir því sem Kaskó haft unnið sér fastari sess á markaðn- um hafi verðið lækkað, en mikil söluaukning hefur verið í versluninni síðustu misserin. Víkurfréttir ákváðu í ljósi mjög svo harðnandi samkeppni á matvörumarkaðinum að gera verðkönnun í Kaskó og Bónus og er stefnt að því að gera fleiri kannanir í ffamtíðinni til að fylgjast með harði samkeppni þessara aðila sem eflaust mun koma Suðumesjamönnum til góða i lægra vöruverði. Til hliðsjónar var höfð eldri verðkönnun á hefðbundinni matarkörfu sem gerð var af Neytendasamtökunum fyrir nokkmm ámm og inniheldur 77 algengar vörutegundir. Af þeim fengust 50 í Bónus, 46 í Kaskó og í 34 tilvikum fékkst sama vara í báðum verslunum og var borið saman verð á þeim. Af þeim fengust 25 vömtegundir ódýrari í Kaskó, 7 tegundir vom ódýrari í Bónus og tvisvar sinnum var um sama verð að ræða. I þeim tilfellum sem Bónus var með lægra verð var munurinn meiri en í þeim tilvikum sem Kaskó var með lægra verð. Guðmundur Marteinsson fram- kvæmdastjóri Bónuss segir að framkvæmdir við nýju Bón- usverslunina að Fitjum gangi vel, en búðin verður opnuð klukkan 10:00 nk. laugardag. Þegar Guð- mundur var spurður út i verð- könnun Víkurffétta á vöruverði 34 vörutegunda í Bónus og Kaskó þar sem kom í ljós að ein- ungis er um 0,7% verðmun að ræða sagði Guðmundur að niður- stöður kannana sem hann hefur látið gera séu allt aðrar. „Við erum búnir að láta gera verðkannanir með reglulegu millibili síðustu mánuði og í öll- um tilvikum hefur Bónus verið 5% ódýrari. Síðasta könnun var gerð 28. mars sl. og þá kom í ljós að Bónus er 5,41% ódýrari en Kaskó, fyrir utan ávexti og grænmeti þar sem Bónus er töluvert ódýrari," sagði Guðmundur í samtali við Víkur- fféttir. RÚMLEGA 20 MILUONA KRÓNA HAGNAÐUR HJÁ FMS Aðalfundur Fiskmarkaðs Suðurnesja hf. var haldinn 26. mars. Þar voru samþykktir ársreikn- ingur félagsins fyrir árið 2002. Félagið var rekið með 20,1 mkr. hagnaði á árinu 2002, samanborið við 32,2 mkr. hagnað árið áður. Samstæðuárs- reikningur félagsins fyrir árið 2002 hefur að geytna ársreikning félagsins og dótturfélaga þess sem voru tvö í árslok, íslandsmarkaður hf. og Mika ehf. Rekstrartekjur voru 344,6 mkr. og minnkuðu urn 14,6% á milli ára. Rekstratgjöld án afskrifta voru 298 mkr. og minnkuðu urn 10 % á milli ára. Hagnaður fyrir afskriftir var 46,6 mkr. samanbor- ið við 72,2 mkr. árið áður. Afskriftir voru 26,2 mkr. og höfðu minnkað um 0,8 mkr. á milli ára. Aðalfundur félagsins var haldinn 26. mars 2003. Stjóm félagsins samþykkti greiðslu 18% arðs. Ný stjóm félagsins sldpa: Ellert Eiriksson stjóm- arformaður, Þorsteinn Erlingsson varaformaður, Einar Þ. Magnússon, Bergþór Baldvinsson og Jón Steinn Eliasson. Framkvæmdastjóri er Ragnar H. Kristjánsson og skrifstofustjóri Þórður M Kjartansson. Fiskmarkaður Suðumesja hf. rekur starfsstöðvar á sjö stöðum á landinu, Grindavík, Sandgerði, Njarðvík, Hafnarfirði, ísafirði, Bolungarvík og Höfii í Homafirði. A síðasta ári seldi Fiskmarkaður Suðumesja hf á þessum stöðum samtals 25.610 tonn að verð- mæti 3,9 milljarðar. Meðalverð var 152,60 kr. á kg- Stærstu hluthafar Fiskmarkaðs Suðumesja em : Fiskmarkaður íslands hf. 31,46% Sparisjóðurinn í Keflavík 18,31 % Bergþór Baldvinsson 14,21 % Einar Þ. Magnússon 10,23% 14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.