Víkurfréttir - 08.05.2003, Page 34
11)1 KkJOIMHMI
HUGSAÐU ÞIG VEL UM!
- eftir Árna Sigfússon
Asíðustu dögum kosn-
ingabaráttunnar er
orðið erfitt að lesa í
tölur og línurit. Öllu ægir
saman. í slíkri stöðu er
tryggast að lesa það sem
hlutiausar alþjóðlegar grein-
ingarstofnanir segja um
stöðu okkar í samanburði
við aðrar þjóðir. Þær stað-
festa að á síðustu árum hefur
gífurlegur árangur náðst í cfnahagsmálum hér á
landi.
Nú eru forsendurtil
að bæta um betur!
Með þessari hagvaxtaraukningu hefur okkur einnig
tekist að láta kaupmátt lægstu launa hækka meira
en kaupmátt annarra launa og hækka bætur al-
mannatrygginga umfram meðallaun. Margt þarf þó
enn að bæta og þar tel ég mikilvægast að styrkja
stöðu þeirra sem minnst mega sín enn frekar. Þar
þurfa sveitarfélög og riki að standa saman og ekki
mun standa á okkur í Reykjanesbæ að leggja þar
hönd á plóginn.
Öflugir menn af okkar svæði
í 1. sæti og í 5. sæti á lista okkar sjálfstæðismanna
hér í Suðurkjördæmi eru menn með mikla reynslu
og þekkingu á aðstæðum á Reykjanesi. Ami Ragn-
ar Amason alþingismaður hefur 40 ára starfs- og
búsetureynslu á Suðurnesjum. Hann er þekktur á
þingi fyrir að vera vinnusamur. Hann verður ekki
sakaður um að vera „bara umræðu- eða fjöl-
miðlapólitíkus". Árni Ragnar hefur einnig öðlast
einstaka lífsreynslu vegna veikinda sinna og þekkir
vel til kosta og galla heilbrigðiskerfisins. Þar er verk
að vinna.
Böðvar Jónsson, formaður bæjarráðs Reykjanes-
bæjar hefur reynst mér afar mikilvæg stoð í upp-
byggingu bæjarins. Reynsla hans, þrátt fyrir ungan
aldur, dómgreind og heilindi skipta miklu máli. Það
stendur sem hann segir.
Ná mestum árangri fyrir okkur
í kosningunum framundan getur þú haft veruleg
áhrif á að Reykjanesið auki styrk sinn og þrótt. Að
við getum byggt sterkari stoðir í orkumálum svæð-
isins, varnarmálum, heilbrigðismálum, og flug-og
hafhsækinni starfsemi. Það er undirstaða þess að
við getum enn ffekar styrkt velferðarkerfi okkar.
Ef sterk ríkisstjórn er mynduð
Það er full ástæða til að taka mark á vönduðum
skoðanakönnunum. Þær sýna að forysta sjálfstæðis-
flokksins þarf öll atkvæði í höfn ef ekki á að skapa
hættu á glundroða í samfélaginu.
Eg geri ekki lítið úr einstaklingum á öðrum listum.
En atkvæði greidd öðrum en D-lista sjálfstæðis-
manna færa okkur fjær möguleika á myndun rikis-
stjómar undir forystu Sjálfstæðisflokksins. Því bið
ég þig að hugsa þig vel um.
Atkvæði merkt D listanum, í hvaða kjördæmi sem
er, getur skilað Sjálfstæðisflokknum þeim fjölda
þingmanna sem tryggir áframhaldandi forystu í rik-
isstjórn. Sterkur stuðningur við okkur sjálfstæðis-
menn í Suðurkjördæmi eykur enn frekar góðar líkur
á að Böðvar Jónsson nái inn á þing. Það er raunhæf-
ur möguleiki, aðeins ef við stöndum saman.
Við erum á réttri leið. Látum ekkert verða til þess
að við töpum þeim árangri sem náðst hefur og
áfram er í sjónmáli. Höfum hreinar línur,
Styðjum Sjálfstæöisflokkinn.
NÚ ER TÆKIFÆRIÐ
Kosningabaráttan fyrir
komandi kosningar
stendur nú sem hæst og
fyrir liggur hvað stjórnmála-
flokkarnir leggja áherslu á fyr-
ir kosningarnar 10.
maí. Kjósendur stan-
da nú frammi fyrir
skýrara vali en oft
áður þar sem regin-
munur er á stefnu
annarsvegar Samfylk-
ingarinnar og hins-
vegar stjórnarflokk-
anna sem verið hafa
við völd undanfarin 8
ár.
Viljum við festa í sessi þá stefhu
sem stjómarflokkamir hafa sýnt
okkur í verki að þeir vilja fýlgja.
Trúum við fögrum loforðum
þeirra, um að nú telji þeir komið
að hinum almenna launamanni,
að njóta í einhverju þess góðæris
sem ríkt hefur eða viljum við
raunverulegar breytingar á for-
gangsröðun í þjóðfélaginu?
Eg verð að segja að þegar ég fer
yfir verk þeirra fíokka sem
stjómað hafa landinu síðustu tvö
kjörtímabil, þá finnst mér blasa
við sú staðreynd að svigrúmið
sem orðið hefhr til í ríkisfjármál-
um hafi að mestu verið notað til
að hygla þeim sem betur mega
sín á kostnað þeirra sem minna
hafa. Mikil samþjöppun hefur
átt sér stað á auði og valdi og
hagsmunir stórfyrirtækja settir
ofar hagsmunum hins almenna
borgara.
Hér á Suðurnesjum höfum við
mörg dæmi um hvemig til heftir
tekist undir forystu þeirra sem
með landsstjórnina
hafa farið undanfarin
ár. Við búum við auk-
ið óöryggi á mörgum
sviðum ffá því sem var
og nægir þar að nefha
heilsugæslumálin, at-
vinnuleysið og minnk-
un veiðiheimilda á
svæðinu. Mikið hefur
verið rætt um það í
kosningabaráttunni að nauðsyn-
legt sé að viðhalda stöðugleika
sem náðst hafi. Viljum við við-
halda þvi ástandi sem nú er á
Suðumesjum?
Samfýlkingin hefur lagt meginá-
herslu á það í kosningabaráttunni
að nú sé komið að fjölskyldu-
fólki á lágum- og millitekjum að
njóta í einhveiju þess aukna svig-
rúms sem ríkissjóður hefur til
lækkunar á tekjuskatti og einnig
að dregið verði úr tekjutenging-
um ýmissa bóta þannig að fólki
sé ekki refsað fýrir það að auka
tekjur sínar með óhemju háum
jaðarsköttum. Við viljum að
opnað verði fýrir nýliðun í sjáv-
arútvegi þannig að Suðumes geti
aftur orðið _ein af megin ver-
stöðvum á Islandi með þeim
margföldunaráhrifum sem það
hefði á aðrar greinar atvinnulífs-
ins. Við höfhum því að íbúða-
lánasjóður og Lánasjóður Is-
lenskra námsmanna verði færðir
inn i bankakerfið og einungis
sjónamið um arð verði látin ráða
í rekstri þeirra eins og Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur lagt til.
Suðurnesin hafa alla möguleika á
því að eflast og dafna frá því sem
nú er. Við verðum að komast út
úr þeirri stöðu sem ríkir í at-
vinnumálum og krafan hlýtur að
vera að svæðið njóti sömu mögu-
leika og stöðu og aðrir hlutar
landsbyggðarinnar. Það hefur
ekki verið tryggt í tíð núverandi
ríkisstjórnar og nægir að nefna
þá milljarða sem nú hafa verið
sendir norður og austur í aðdrag-
anda kosninga, en ráðherrar rik-
isstjómarinnar hafa á undanföm-
um vikum skrifað undir fjölda
samninga á þeim svæðum í til-
raun til að ná sér í atkvæði.
Við verðum að tryggja að rödd
Suðurnesja verði eins sterk og
mögulegt er á Alþingi, því aðeins
þannig verður hægt að gæta
hagsmuna kjördæmisins í sam-
keppni við aðra hluta landsins.
Notum tækifærið og styðjum
Samfýlkinguna til góðra verka í
komandi rikisstjórn, einstakling-
um og fjölskyldum til heilla.
Með baráttukveðjum,
Jón Gunnarsson
Skipar 4. sætið á lista Samfylk-
ingarinnar í Suðurkjördæmi
/Ultingiskosningíir 2003
Hjálmar Árnason skrifar:
VERÐUR HERINN
REKINN ÚR LANDI?
1700 störf í húfi
Suðurnesjamenn standa
nú frammi fyrir þeirri
staðreynd að ný ríkis-
stjórn kann að grípa til
þeirra aðgerða að Vamarliðið
taki saman og
hverfi úr landi - á
tiltölulegu skömm-
um tíma. Við það
tapa um 1.700 ís-
lendingar störfum -
auk allra aðila sem
selja vöru og þjón-
ustu til Varnarliðs-
ins. Þessi staða hef-
ur nú komið upp í
aðdraganda kosninganna.
Nokkrir helstu talsmenn
Samfylkingarinnar hafa tal-
að skýrt í þessu máli.
Eftir að íslendingar voru settir
á lista með öðrum þjóðum um
stuðning við Bandaríkjamenn
við að steypa Saddam Hussein
af stóli hafa nokkrir í forystu
Samfýlkingar lýst því yfir að
þeir muni hafa það eitt sitt fýrs-
ta verk í ríkisstjórn að strika
okkur af listanum. Þetta kom
fram i sjónvarpsviðtali og blaða
við Ingibjörgu Sólrúni, Össur
hefur stagast á þessu, Þórunn
Sveinbjarnardóttir (fulltrúi
þeirra í utanríkismálanefnd),
Mörður Árnason (í Morgun-
blaðsgrein) og aðrir helstu for-
ystumenn SF hafa tekið undir
þetta. Hvaða afleiðingar myndi
þetta hafa fýrir Suðumes?
Enginn er fylgjandi stríði í sjál-
fu sér. Enginn er heldur fylgj-
andi harðstjórum á borð við
Saddam. Þegar Bandaríkja-
menn í raun settu okkur afar-
kosti um stuðning áttum við
vart annarra úrkosta. Hefðum
við neitað þarf varla
að spyrja um fram-
haldið. Um þessar
mundir er verið að
loka tveimur her-
stöðvum í Þýskalandi
og færa starfsemina
til Póllands og Tékk-
lands - frá þeim sem
ekki vildu styðja
Bandaríkjamenn til
þeirra sem fylktu sér að baki
þeim. Varnarsamningurinn er
nú til endurskoðunar. Banda-
ríkjamenn munu taka afstöðu
Samfylkingarmanna sem
fjandskap við sig og samnings-
staða okkar verður engin og
ætla má að stöðinni hér verði
lokað.
Suðumesjamenn þurfa að spyr-
ja sjálfa sig að því hvort þeir
telji atvinnuástandið þola 1.700
manns inn á atvinnuleysisskrá
á næstu vikum. Samfylkingin,
sem virðist vilja loka stöðinni,
hefur heidur ekki svarað því
hvernig hún ætli að tryggja
varnir landsins eða atvinnu
þeirra þúsunda sem hafa störf
og tekjur af störfum þar. Suð-
urnesjamenn vita hins vegar
hveijar afleiðingamar verða.
Hjálmar Árnason,
alþingismaður.
VIÐ Þ0RUM. Þ0RIR ÞÚ?
Ungir Jafnaðarmenn á
Suðurnesjum börðust
hart fyrir því að fá full-
trúa ungs fóíks á Suðurnesjum
ofarlega á framboðslista Sam-
fylkingarinnar. Það
var hlustað á unga
fólkið í Samfylking-
unni og við fengum
það í gegn. Brynja
Magnúsdóttir er
fimmti maður á S -
lista í Suðurkjör-
dæmi. Ef Samfylk-
ingin í Suðurkjör-
dæmi nær fjórða
manni inn á þing þá er það
góður sigur fyrir Suðurnesja-
menn því fjórði maður á listan-
um er Jón Gunnarsson. Það er
enn stærri sigur fyrir unga
Suðurnesjabúa því þá er hin 25
ára Brynja Magnúsdóttir, for-
maður UJ á Suðurnesjum,
fyrsti varaþingmaður Samfylk-
ingarinnar í Suðurkjördæmi.
Ekki má hcldur gleyma því að í
þriðja sæti situr annar fulltrúi
ungs fólks; Björgvin G. Sig-
urðsson sem barðist hart gegn
samræmdum stúdentsprófum
á Alþingi. Samfylkingin setur
málefni ungs fólks á oddinn og
er ekki hrædd við að
setja ungt fólk ofar-
lega á framboðslista
hvarvetna.
Lækkum meðalaldur á
Alþingi. Leiðréttum
stjórnkerfi núverandi
ríkisstjómar í fiskveið-
um og menntamálum.
Kjósum rökréttar
breytingar. Gerum Jón Gunnars-
son, Suðurnesjamann að þing-
manni okkar. Gerum Brynju
Magnúsdóttir, fiilltrúa ungs Sam-
fylkingarfólks, að fyrsta vara-
manni Samfylkingarinnar í Suð-
urkjördæmi.
Við þorum. Þorir þú? X-S
Hallbjörn V. Rúnarsson
Situr í stjórn Ungra jafnaðar-
manna á Suðumesjum
34
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!