Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.06.2003, Síða 9

Víkurfréttir - 05.06.2003, Síða 9
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja upplýsingar um þjónustu, tímabókanir og símatíma Reykjanesbær Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja að Skólavegi 6 í Reykjanesbæ er veitt öll almenn heilbrigðisþjónusta; veitt er bráðaþjónusta allan sólarhringinn auk ýmiss konar sérfræðiþjónustu. Allar tímabókanir eru í síma 422-0500 frá kl. 08.00-16.00 virka daga, nema annað sé tekið fram. Almenn læknisþjónusta er veitt alla virka daga frá kl. 08.00-16.00 og á vakt frá kl. 17.00-19.00. I sumar er heilsugæslumóttakan fullmönnuð. Því er nú unnt að bóka fram í tímann sem er óneitanlega mikið hagræði. Öllum bráðatilfellum er sinnt strax. Hjúkrunarfræðingar sinna einnig almennri móttöku alla virka daga. Mæðravernd bókar í alla sína tíma. Símatími er alla virka daga nema föstudaga kl. 09.00-09.30. Sími mæðraverndar er 422-0572 (Halldóra Kristinsdóttir) og 422-0573 (Hulda Bjarnadóttir og Steina Þórey Ragnarsdóttir). Ung- og smábarnavernd er bókuð í móttöku en símatími þar er alla virka daga nema miðvikudaga kl. 09.00-09.30. Einnig er tekið við tímapöntunum í eftirfarandi sérgreinum: * barnalækningum * almennum skurðlækningum * bæklunarlækningum * þvagfæraskurðlækningum * háls-, nef- og eyrnalækningum » kvensjúkdómum * almennum lyflækningum * blóðsjúkdómum * lungnalækningum « ofnæmislækningum * meltingarlækningum * krabbameinslækningum Allar beiðnir um endurnýjun lyfja eru mótteknarfrá kl. 10.00-12.00 og 14.00-15.00 virka daga í síma 422-0500. I Grindavík er einnig heilsugæslustöð. Þar er læknismóttaka alla virka daga. Hjúkrunarfræðingar og Ijósmóðir sinna móttöku, mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heimahjúkrun. Tímapantanir eru í síma 422-0750. Símatími heilsugæslulækna er samkvæmt samkomulagi. Panta þarf símatíma frá kl. 08.30-16.00 daglega. Önnur þjónusta sem veitt er á HSS: sjúkraþjálfun iðjuþjálfun • félagsráðgjöf • heyrnarvernd endurkomur á slysastofu sálfræðiþjónusta • næringarráðgjöf sykursýkismóttaka • krabbameinsleit hjá konum • símatímar lækna símatímar hjúkrunarfræðinga Heilsugæsluselin í Garði, Sandgerði og Vogum verða opnuð á ný 10. júní. í Sandgerði verður móttaka þriðjudaga og fimmtudaga fyrir hádegi frá kl. 09.00-12.00. ( Garði verður móttaka þriðjudaga og fimmtudaga eftir hádegi frá ki. 13.00-16.00. í Vogum verður móttaka á miðvikudögum frá kl. 09.00-12.00 og 13.00-16.00. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja HSS VfKURFRÉTTIR I 22.TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 5. JÚNf 2003 I9

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.