Morgunblaðið - 10.06.2016, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 10.06.2016, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016 Saltkaup ehf | Cuxhavengata 1 | 220 Hafnarfjörður Sími: 560 4300 | www.saltkaup.is Kíktu á heimasíðunawww.saltkaup.is Tunnurnar fást hjá okkur. 60 lítra 220 lítra 120 lítra Blómastampur 30 lítra 116 lítra trétunna Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Útsýnispallurinn við Gullfoss var þétt skipaður þegar ljósmyndara bar að garði í vikunni. Ferða- mennirnir voru vel búnir, bæði tækjum og fatn- aði í öllum regnbogans litum. Mávur sem átti leið hjá ákvað að setja svip sinn á landslagið og gripu gestir tækifærið og smelltu af. Ráðlegt er að halda í regnjakkann næstu daga, til öryggis, en spáð er austlægri átt og lítilsháttar rigningu öðru hverju sunnan- og vestanlands. Mávur myndaður í fyrirsætustörfum Morgunblaðið/Ómar Margt ber fyrir augu ferðamanna við Gullfoss Benedikt Bóas Lára Halla Sigurðardóttir „Kennarar felldu samninginn og því erum við komin aftur á byrjunarreit, það er ljóst,“ segir Inga Rún Ólafs- dóttir, formaður samninganefndar sveitarfélaga, en kennarar felldu í gær nýjan kjarasamning. Á kjörskrá voru 4.453, en 65,84% þátttaka var í atkvæðagreiðslunni. Já við samningunum sagði 741, eða 25,27%, en nei sögðu 2.118 manns, eða 72,24%. Auðir seðlar voru 73 talsins, eða 2,49%. Formaður Félags grunnskólakennara, Ólafur Lofts- son, telur vantraust grunnskóla- kennara í garð sveitarfélaganna helstu ástæðu þess að kjarasamn- ingar stéttarinnar voru felldir. Ekki hafi verið staðið nógu vel að út- færslu ákveðinna atriða í núgildandi samningi og því hafi kosningin farið á þennan veg. Spurð um gagnrýni Ólafs segist Inga Rún vera að heyra hana í fyrsta sinn. „Ég hef ekki heyrt það áður. Ég get ekki svarað fyrir kenn- ara í þeim efnum. Nú förum við yfir þessi mál með þeim og við ætlum að gera það.“ Óskýr texti Spurður hvort niðurstaðan hafi komið á óvart segir Ólafur svo ekki vera. Eftir að samningurinn hafi verið kynntur hafi hann verið rædd- ur meðal kennara og þar hafi óánægjan skinið í gegn. „Árið 2014 sömdum við um nokk- ur atriði er lutu að breytingu á vinnuumhverfi, gæslumálum, breyttri viðveru og öðru slíku. Á þeim tíma fóru sveitarfélögin mjög illa að ráði sínu hvað varðar fram- kvæmdina á kjarasamningnum og þetta hefur verið mjög erfiður vetur. Sum sveitarfélög hreinlega misnot- uðu ákvæði um gæsluna,“ segir Ólaf- ur. Hann segir að í samningnum sem grunnskólakennarar höfnuðu sé kveðið á um launahækkanir en ein- hverjir hafi talið að þær væru ekki nógu miklar. „Síðast en ekki síst fannst mönnum textinn varðandi vinnuumhverfið ekki nógu skýr. Þegar menn upplifðu það ofan í þetta vantraust fór bara sem fór,“ segir Ólafur. Deilendur munu hittast í dag til að fara yfir stöðuna. „Við þurfum, eðli málsins samkvæmt, að halda áfram að ræða saman. Nú er boltinn svolít- ið hjá sveitarfélögunum,“ segir Ólaf- ur. Inga Rún segir að samnings- aðilar muni hittast með opnum huga. Spurð hvort stefni í kennaraverkfall segir hún: „Ég get ekki svarað fyrir kennara. Þeir hafa verkfallsrétt en vonandi náum við að leysa úr þessu.“ Deilan aftur á byrjunarreit  Kennarar felldu kjarasamning með miklum meirihluta  Ekki var staðið nógu vel að útfærslu ákveðinna atriða  Leysist vonandi svo ekki komi til verkfalls Í hnút Kennarar felldu samning. Morgunblaðið/Golli Liðlega 7.600 umsóknir um grunn- og framhaldsnám bárust Háskóla Íslands fyrir komandi skólaár, en umsóknarfrestur um grunnnám rann út 5. júní. Að þessu sinni bár- ust 4.500 umsóknir um grunnnám og rúmlega 3.100 um framhalds- nám. Flestar umsóknir í grunnnám bárust heilbrigðisvísindasviði, eða 1.135. Í þeim hópi eru 297 nem- endur sem hafa skráð sig í inntöku- próf í læknisfræði og sjúkraþjálfun í læknadeild; 246 í læknisfræði og 51 í sjúkraþjálfun. Flestir sóttu þó um nám í viðskiptafræði, alls 390, en greinin hefur um nokkurt skeið verið sú vinsælasta innan skólans. Nærri 560 umsóknir bárust menntavísindasviði að þessu sinni. Athygli vekur að flestar þeirra voru í íþrótta- og heilsufræði, eða 112. Háskólaráð Háskóla Íslands ákvað á fundi sínum í febrúar fyrr á árinu að flytja námsbrautina til Reykjavíkur og verður kennt í fyrsta sinn í Reykjavík nú í haust. Til samanburðar voru umsóknir 34 í fyrra. Samkvæmt upplýsingum frá deildinni er ekki hægt að stað- festa hvort um metfjölda umsókna í íþrótta- og heilsufræði er að ræða. „Þetta segir okkur að það er vilji til að stunda þessa námsleið í bæn- um,“ segir Védís Grönvold íþrótta- kennari, sem var ráðin verkefna- stjóri í tengslum við flutning náms- leiðarinnar til Reykjavíkur. Háskóli Íslands mun leigja að- stöðu í Laugardalnum, svo sem í Laugardalshöll og Laugardalslaug. „Þetta er betri aðstaða en var fyrir austan. Við erum með mjög hæfa og vel menntaða kennara sem geta komið þekkingu sinni vel á fram- færi í þessari nýju aðstöðu,“ segir Védís. Hún telur einnig aukinn áhuga á heilsurækt stuðla að fleiri umsókn- um í námið. erla@mbl.is Aðsókn eykst í íþróttafræði Morgunblaðið/Sigurður Bogi Laugarvatn Íþrótta- og heilsufræði verður kennd í Reykjavík í haust.  112 sóttu um nám í íþróttafræði  Fagið kennt í Reykjavík Ingi Björn Inga- son og Jakob Við- ar Grétarsson voru í gær dæmdir í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir hópnauðgun sem átti sér stað í apr- íl árið 2014. Sam- kvæmt því sem fram kemur í dómnum nauðguðu þeir í sameiningu konu á heimili Inga Björns. Fram kemur í dómnum að konan hafi verið að skemmta sér á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi þegar hún hafi orðið viðskila við vini sína en hitt Inga og Jakob. Hún sagðist ekki muna hvernig hún hefði endað með þeim í leigubíl fyrir utan staðinn en skyndilega hefði hún ver- ið komin í ókunnugt hús. Mennirnir neita báðir sök en í dómnum segir að framburður þeirra hafi ekki verið á einn veg. Þá kemur fram að Jakob hafi tekið upp myndskeið á síma sinn sömu nótt og atburðurinn átti sér stað. Auk þess að vera dæmdir í þriggja ára fangelsi voru mennirnir dæmdir til að greiða konunni miska- bætur og allan sakarkostnað. Dæmdir fyrir hóp- nauðgun Héraðsdómur Reykjavíkur  Tveir menn fengu þriggja ára dóm Flugfreyjufélag Íslands og Ice- landair hafa gert með sér kjara- samning, en samningar höfðu verið lausir frá því í september. Samning- urinn var undirritaður á miðviku- dag, sama dag og lög voru sett á að- gerðir flugumferðarstjóra þegar Alþingi samþykkti frumvarp til laga um kjaramál Félags íslenskra flug- umferðarstjóra. Samningurinn var kynntur flug- freyjum í gær. Að sögn Bryndísar Hlöðversdóttur ríkissáttasemjara gekk ferlið ágætlega. „Þessu lauk með samningi, sem er alltaf besta leiðin.“ Flugfreyjur eiga einnig í kjaraviðræðum við WOW air og Flugfélag Íslands. Ekki hefur verið skrifað undir samninga við þau fé- lög. Ríkissáttasemjari fundaði með félaginu og Flugfélagi Íslands í gær. Bryndís er bjartsýn á það samtal sem stendur yfir og verður næsti fundur í þarnæstu viku. Samið við flugfreyjur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.