Morgunblaðið - 10.06.2016, Side 8

Morgunblaðið - 10.06.2016, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016 Af ástæðum sem eru í senn óljós-ar og dularfullar var undir- ritað samkomulag á milli ríkis og borgar árið 2013 um lokun einnar af brautum Reykjavíkurflugvallar. Þetta var eftir kosningar 2013, sem gerir málið enn undarlegra en ella.    Áhöld hafaverið uppi um hvort þetta samkomulag hafi haft þá þýðingu sem borgaryfirvöld hafa haldið fram, sem sagt að loka þyrfti neyðarbraut vallarins.    Nú segir hæstiréttur að svo séog viðbrögð innanríkisráð- herra eru þau að þá þurfi ekki að spyrja frekar og málið sé úr sög- unni.    Höskuldur Þórhallsson, formað-ur umhverfis- og skipulags- nefndar Alþingis, bregst við á ann- an hátt. Hann ætlar að leggja fram frumvarp í ágúst þess efnis að völl- urinn verði óbreyttur nema þingið ákveði annað.    Hvort sem verður er ljóst aðborgaryfirvöld hafa unnið áfangasigur. Borgarstjóri talar reyndar um fullnaðarsigur en það er frekar reigingur en raunveru- leiki.    Málið er engu að síður graf-alvarlegt því að núverandi borgaryfirvöld, þvert á vilja borgarbúa og landsmanna allra, hafa það að markmiði að loka flug- vellinum að fullu. Það væri fulln- aðarsigur.    Mikilvægt er að þeir sem viljaflugvöllinn þar sem hann er bregðist nú ákveðið við og tryggi að áfangasigurinn verði ekki að fullnaðarsigri. Flugvöllurinn er nú í stórhættu STAKSTEINAR Guðni Einarsson gudni@mbl.is Meðal loftþrýstingur fyrstu átta daga júnímánaðar hefur aðeins einu sinni verið sjónarmun hærri en nú í Reykjavík. Það var árið 1897. Loft- þrýstingur var nærri því eins hár og nú sömu júnídaga árin 1931, 1971 og 2009, að sögn Trausta Jónssonar veðurfræðings. Hann segir að eitt- hvað muni meðaltalið síga næstu daga, en það gerði loftþrýstingurinn í hinum árunum líka – nema árið 1971. Óvenju langvarandi þurrkatíð hef- ur verið á Suðausturlandi í vor og sumar. Trausti sagði að á Suðausturlandi þyrfti líklega að fara aftur til vorsins 2005 til að finna ámóta þurrviðrakafla og þar fyrir aftan til voranna 1979 og 1958. „Segja má að þurrkurinn nú hafi staðið frá því viku af apríl í Horna- firði og austur í Breiðdal. Í Nes- kaupstað og á Seyðisfirði hefur lítið rignt í mánuð. Í Mýrdal og þar fyrir vestan rigndi nokkuð í síðustu viku maí, eins og hér í Reykjavík, en úr- koma hefur í allt vor samt verið mjög lítil þar miðað við það sem venjulegt er á þeim slóðum,“ sagði Trausti. Hann sagði að ekki væri spáð mik- illi úrkomu næstu tíu daga, mestri þó vestast á landinu. Langvinnur háþrýstingur í borginni  Óvenjulangt þurrkatímabil hefur verið á Suðausturlandi í vor og sumar Morgunblaðið/Eggert Blíða Bjartviðri hefur verið í Reykjavík og Nauthólsvíkin alltaf vinsæl. Veður víða um heim 9.6., kl. 18.00 Reykjavík 13 alskýjað Bolungarvík 17 skýjað Akureyri 14 skýjað Nuuk 21 léttskýjað Þórshöfn 9 skýjað Ósló 17 skýjað Kaupmannahöfn 15 skýjað Stokkhólmur 14 skýjað Helsinki 10 skýjað Lúxemborg 24 heiðskírt Brussel 15 heiðskírt Dublin 18 skýjað Glasgow 22 skýjað London 22 heiðskírt París 23 heiðskírt Amsterdam 20 heiðskírt Hamborg 19 léttskýjað Berlín 23 heiðskírt Vín 20 skýjað Moskva 11 rigning Algarve 34 heiðskírt Madríd 34 heiðskírt Barcelona 26 léttskýjað Mallorca 27 heiðskírt Róm 21 léttskýjað Aþena 23 léttskýjað Winnipeg 24 heiðskírt Montreal 8 rigning New York 19 heiðskírt Chicago 19 skýjað Orlando 29 rigning Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 10. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:03 23:53 ÍSAFJÖRÐUR 1:36 25:29 SIGLUFJÖRÐUR 1:16 25:16 DJÚPIVOGUR 2:19 23:36 Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þéri i Veitingastaðir, kaffihús ísbúðir & booztbarir velja Vitamix blandara

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.