Morgunblaðið - 10.06.2016, Side 10

Morgunblaðið - 10.06.2016, Side 10
ÍSAFJÖRÐUR BÍLDUDALUR HÚSAVÍK AKUREYRI SAUÐÁRKRÓKUR SJÚKRAFLUTNINGAR Í LOFTI 2015 BLÖNDUÓS GRÍMSEY EGILSSTAÐIR NORÐFJÖRÐUR HORNAFJÖRÐUR HÖFN VESTMANNAEYJAR 10 149 96 4 30 17 3 15 105 33 58 93 112 1 REYKJAVÍK KEFLAVÍK ÞÓRSHÖFN VOPNAFJÖRÐUR 110 SJÚKRAFLUTNINGAR MEÐ ÞYRLUM LANDHELGISGÆSLUNNAR 645 SJÚKRAFLUTNINGAR MEÐ FLUGVÉLUM MÝFLUGS Kort/Njáll Trausti Friðbertsson Sjúkraflug Njáll sem er í forystu Hjartans í Vatnsmýrinni hefur sett sjúkraflugið fram með myndrænum hætti. flugi hér á landi flokkast undir svo- nefnt F1- og F2-flug, en þá er átt við að sjúklingurinn sé í lífsógn. Hann bendir á að myndin sýni mikinn mun á annars vegar austari hluta landsins og hins vegar vestari hluta þess. „Mér sýnist vera 10 manns í þyrlum í austurhluta lands- ins. Þyrlurnar eru aðallega í næsta nágrenni við höfuðborgina á Suð- vestur- og Suðurlandi,“ segir Njáll, en hver blár kall á myndinni stendur fyrir einstakling sem hefur verið fluttur með sjúkraflugi. Þeir rauðu tákna þá sem þyrlur Landhelg- isgæslunnar hafa sótt. „Flest slík til- vik eru á hálendinu, en í horninu vinstra megin má finna 25 tilfelli þar sem sótt hefur verið út á sjó,“ út- skýrir Njáll. Fjölgun um 11% milli ára „Aukningin hefur verið yfir helm- ing á sjúkraflutningum á lofti á Ís- landi síðasta áratuginn. Vöxturinn á milli ára fyrstu fimm mánuðina núna og í fyrra er 11%. Það er stöðugur vöxtur í gangi,“ segir Njáll. Aðspurður út í þann mikla fjölda sem flýgur frá Reykjavík útskýrir hann að þar sé um að ræða sjúkra- flutninga á fólki til síns heima sem hafa þegar fengið viðeigandi með- ferð. „Yfirleitt er verið að flytja fólk- ið í sína heimabyggð eftir að það nær ákveðnum bata í Reykjavík.“ Árni Grétar Finnsson agf@mbl.is Njáll Trausti Friðbertsson, bæjar- fulltrúi á Akureyri og annar af for- mönnum Hjartans í Vatnsmýrinni, segir að umræðan í kringum Reykjavíkurflugvöll hafi knúið hann til þess að setja fram með mynd- rænum hætti mikinn mun á sjúkra- flutningi Mýflugs og þyrlum Land- helgisgæslunnar. „Þarna er hægt að sjá þetta á einni mynd. Þetta er árið 2015 og niðri í horninu má sjá 645 flug hjá Mýflugi en 110 hjá þyrlum Landhelgisgæslunnar. Þannig að hlutfallið er 83 á móti 17,“ segir Njáll. Helmingurinn af öllu sjúkra- Sjúkraflug að langmestu leyti farið með Mýflugi Morgunblaðið/RAX Neyðarbraut Ríkið þarf að loka svokallaðri neyðarflugbraut á Reykja- víkurflugvelli innan 16 vikna, samkvæmt dómi Hæstaréttar sem féll í gær. Erla María Markúsdóttir Lára Halla Sigurðardóttir Þorsteinn Ásgrímsson „Niðurstaða Hæstaréttar í málinu liggur fyrir. Hún er afgerandi, sýnist mér. Ráðuneytið mun að sjálfsögðu virða niðurstöðu Hæstaréttar,“ segir Ólöf Nordal innanríkisráðherra um niðurstöðu Hæstaréttar, sem stað- festi í gær dóm Héraðsdóms Reykja- víkur um að ríkinu væri skylt að loka norðaustur-/suðvesturflugbrautinni á Reykjavíkurflugvelli. Brautinni, sem stundum er nefnd neyðarbraut, ber að loka innan 16 vikna. Með dómnum var dómur héraðsdóms frá í mars á þessu ári staðfestur að mestu leyti. Fimm dómarar Hæsta- réttar dæmdu málið. Reykjavíkur- borg hafði höfðað mál á hendur innanríkisráðuneytinu vegna ákvörðunar ráðherra um að neita að loka NA-SV brautinni. Héraðs- dómur hafði komist að þeirri niður- stöðu að Hönnu Birnu Kristjánsdótt- ur, fyrrverandi innanríkisráðherra, hefði verið heimilt að gera sam- komulag við borgina árið 2013 og láta af hendi landsvæði sem er í eigu ríkisins og brautin er á. Dagur B. Eggertsson, borgar- stjóri Reykjavíkur, er mjög ánægður með niðurstöðu Hæstaréttar og seg- ist hafa búist við að hún yrði á þenn- an veg. „Mér finnst hún skýr og þetta er fullnaðarsigur í málinu. Meginniðurstaðan er að þessir samningar halda og brautinni verður lokað,“ segir Dagur. Uppbygging hefjist í Vatnsmýr- inni eftir 11 ára baráttu Niðurstaða Hæstaréttar þýðir meðal annars að Valsmenn hf., sem hafa fengið framkvæmdaleyfi og haf- ið framkvæmdir á Hlíðarendasvæð- inu, geta haldið áfram með fram- kvæmdir sínar án þess að eiga á hættu að uppbygging þar skarist við aðflug að neyðarbrautinni. „Þetta hefur verið 11 ára barátta og nú ætti ekki að vera neitt í veg- inum fyrir því að uppbygging í Vatnsmýrinni hefjist,“ segir Brynjar Harðarson, formaður Valsmanna hf. Hæstiréttur breytti dómi héraðs- dóms að því leyti að ríkinu bæri að loka brautinni innan 16 vikna frá uppkvaðningu þessa dóms, en áður hafði verið miðað við 16 vikur frá uppkvaðningu héraðsdóms, sem var í mars á þessu ári. Brynjar segir þetta ekki breyta miklu fyrir fram- kvæmdirnar. Til að byrja með verði unnið að sökklum sem nái 4-5 metra ofan í jörðina. Mögulega tefji þetta að hægt sé að setja byggingakrana í fulla hæð en Brynjar segir það ekki munu tefja framkvæmdir. Brynjar segist gera ráð fyrir því að næsta sumar verði framkvæmdir komnar langt á tveimur reitum á Hlíðarendasvæðinu, eftir 18 mánuði verði fyrstu íbúðirnar tilbúnar og í framhaldinu muni fyrstu íbúarnir flytja inn. Spurður hvort hann telji þetta þýða að flugvellinum verði lokað seg- ir Brynjar að í raun sé málið líka sig- ur fyrir stuðningsmenn flugvallar- ins. Segir hann að nú geti menn farið að snúa sér að því að þróa og þroska völlinn. Niðurstaða Hæstaréttar kalli hins vegar ekki á að völlurinn sé færður. „Hann verður í fullri notkun eins og undanfarin ár,“ segir Brynjar. Alþingi grípi til lagasetningar Samtökin Hjartað í Vatnsmýrinni telja að ekki komi til álita að loka flugvellinum fyrir fullt og allt. „Þetta eflir okkur frekar í afstöðunni að taka þennan slag,“ segir Njáll Trausti Friðbertsson, annar af for- mönnum samtakanna Hjartans í Vatnsmýrinni. „Við munum halda áfram ótrauð í baráttunni fyrir Reykjavíkurflugvelli í núverandi mynd og teljum að ekkert hafi breyst með tilliti til mikilvægis flug- vallarins, hvort sem litið er til sjúkraflutninga eða almannaflugs í landinu.“ Samkvæmt aðalskipulagi Reykja- víkur sem samþykkt var árið 2013 er áætlað að loka norður-suður flug- brautinni árið 2024. „Ef það gengur eftir eru nýtingarhlutföll vallarins hrunin. Það er því áhyggjuefni að núverandi meirihluti í borginni stefnir á að loka flugvellinum fyrir fullt og allt,“ segir Njáll. Samtökin hvetji því til inngrips Alþingis. „Það er orðið óhjákvæmilegt að Alþingi grípi til lagasetningar sem tryggi framtíð sjúkraflugs og almannaflugs til að forða óbætanlegu tjóni sem hefur áhrif á öryggi allrar þjóðarinn- ar.“ Flugfélagið Mýflug sinnir nær öllu sjúkraflugi innan Íslands samkvæmt samningi við heilbrigðisráðuneytið og segir Leifur Hallgrímsson, fram- kvæmdastjóri Mýflugs, að lokun neyðarbrautarinnar sé fyrst og fremst sorgleg. „Auðvitað er það öryggismál að þessari braut sé lokað.“ Leifur telur að lokunin muni fyrr eða síðar hafa afleiðingar. „Það er sorglegt að það sé ekki meiri skilningur hjá þeim sem ráða málunum á að þörf sé á þessari braut.“ Leifur segir að Mý- flug muni áfram sinna þeim verkefn- um sem því verði gert að sinna. „Þegar ekki má lenda lengur á þess- ari braut þurfa menn að laga sig að því.“ Neyðarbraut- inni lokað inn- an 16 vikna  Ráðuneytið virðir niðurstöðu Hæsta- réttar  Samtökin Hjartað í Vatnsmýr- inni vilja að Alþingi grípi inn í 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016 LANGVIRK SÓLARVÖRN ÞOLIR SJÓ, SUND OG LEIK. BARNIÐ ÞITT Á SKILIÐ 5 STJÖRNUR SÓLARVÖRNIN SEM HÚÐLÆKNAR MÆLA MEÐ Grunnformúlan er læknisfræðilega skráð. Engin paraben, engin nanótækni, ilm- eða litarefni. Sölustaðir | Öll apótek, Nettó, Hagkaup, Fjarðarkaup, Fríhöfninni og víðar | www.proderm.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.