Morgunblaðið - 10.06.2016, Síða 10
ÍSAFJÖRÐUR
BÍLDUDALUR
HÚSAVÍK
AKUREYRI
SAUÐÁRKRÓKUR
SJÚKRAFLUTNINGAR Í LOFTI 2015
BLÖNDUÓS
GRÍMSEY
EGILSSTAÐIR
NORÐFJÖRÐUR
HORNAFJÖRÐUR
HÖFN
VESTMANNAEYJAR
10
149
96
4
30
17
3
15
105
33
58
93
112
1
REYKJAVÍK
KEFLAVÍK
ÞÓRSHÖFN
VOPNAFJÖRÐUR
110 SJÚKRAFLUTNINGAR MEÐ ÞYRLUM LANDHELGISGÆSLUNNAR
645 SJÚKRAFLUTNINGAR MEÐ FLUGVÉLUM MÝFLUGS
Kort/Njáll Trausti Friðbertsson
Sjúkraflug Njáll sem er í forystu Hjartans í Vatnsmýrinni hefur sett sjúkraflugið fram með myndrænum hætti.
flugi hér á landi flokkast undir svo-
nefnt F1- og F2-flug, en þá er átt við
að sjúklingurinn sé í lífsógn.
Hann bendir á að myndin sýni
mikinn mun á annars vegar austari
hluta landsins og hins vegar vestari
hluta þess. „Mér sýnist vera 10
manns í þyrlum í austurhluta lands-
ins. Þyrlurnar eru aðallega í næsta
nágrenni við höfuðborgina á Suð-
vestur- og Suðurlandi,“ segir Njáll,
en hver blár kall á myndinni stendur
fyrir einstakling sem hefur verið
fluttur með sjúkraflugi. Þeir rauðu
tákna þá sem þyrlur Landhelg-
isgæslunnar hafa sótt. „Flest slík til-
vik eru á hálendinu, en í horninu
vinstra megin má finna 25 tilfelli þar
sem sótt hefur verið út á sjó,“ út-
skýrir Njáll.
Fjölgun um 11% milli ára
„Aukningin hefur verið yfir helm-
ing á sjúkraflutningum á lofti á Ís-
landi síðasta áratuginn. Vöxturinn á
milli ára fyrstu fimm mánuðina núna
og í fyrra er 11%. Það er stöðugur
vöxtur í gangi,“ segir Njáll.
Aðspurður út í þann mikla fjölda
sem flýgur frá Reykjavík útskýrir
hann að þar sé um að ræða sjúkra-
flutninga á fólki til síns heima sem
hafa þegar fengið viðeigandi með-
ferð. „Yfirleitt er verið að flytja fólk-
ið í sína heimabyggð eftir að það nær
ákveðnum bata í Reykjavík.“
Árni Grétar Finnsson
agf@mbl.is
Njáll Trausti Friðbertsson, bæjar-
fulltrúi á Akureyri og annar af for-
mönnum Hjartans í Vatnsmýrinni,
segir að umræðan í kringum
Reykjavíkurflugvöll hafi knúið hann
til þess að setja fram með mynd-
rænum hætti mikinn mun á sjúkra-
flutningi Mýflugs og þyrlum Land-
helgisgæslunnar. „Þarna er hægt að
sjá þetta á einni mynd. Þetta er árið
2015 og niðri í horninu má sjá 645
flug hjá Mýflugi en 110 hjá þyrlum
Landhelgisgæslunnar. Þannig að
hlutfallið er 83 á móti 17,“ segir
Njáll. Helmingurinn af öllu sjúkra-
Sjúkraflug að langmestu
leyti farið með Mýflugi
Morgunblaðið/RAX
Neyðarbraut Ríkið þarf að loka svokallaðri neyðarflugbraut á Reykja-
víkurflugvelli innan 16 vikna, samkvæmt dómi Hæstaréttar sem féll í gær.
Erla María Markúsdóttir
Lára Halla Sigurðardóttir
Þorsteinn Ásgrímsson
„Niðurstaða Hæstaréttar í málinu
liggur fyrir. Hún er afgerandi, sýnist
mér. Ráðuneytið mun að sjálfsögðu
virða niðurstöðu Hæstaréttar,“ segir
Ólöf Nordal innanríkisráðherra um
niðurstöðu Hæstaréttar, sem stað-
festi í gær dóm Héraðsdóms Reykja-
víkur um að ríkinu væri skylt að loka
norðaustur-/suðvesturflugbrautinni
á Reykjavíkurflugvelli. Brautinni,
sem stundum er nefnd neyðarbraut,
ber að loka innan 16 vikna. Með
dómnum var dómur héraðsdóms frá
í mars á þessu ári staðfestur að
mestu leyti. Fimm dómarar Hæsta-
réttar dæmdu málið. Reykjavíkur-
borg hafði höfðað mál á hendur
innanríkisráðuneytinu vegna
ákvörðunar ráðherra um að neita að
loka NA-SV brautinni. Héraðs-
dómur hafði komist að þeirri niður-
stöðu að Hönnu Birnu Kristjánsdótt-
ur, fyrrverandi innanríkisráðherra,
hefði verið heimilt að gera sam-
komulag við borgina árið 2013 og
láta af hendi landsvæði sem er í eigu
ríkisins og brautin er á.
Dagur B. Eggertsson, borgar-
stjóri Reykjavíkur, er mjög ánægður
með niðurstöðu Hæstaréttar og seg-
ist hafa búist við að hún yrði á þenn-
an veg. „Mér finnst hún skýr og
þetta er fullnaðarsigur í málinu.
Meginniðurstaðan er að þessir
samningar halda og brautinni verður
lokað,“ segir Dagur.
Uppbygging hefjist í Vatnsmýr-
inni eftir 11 ára baráttu
Niðurstaða Hæstaréttar þýðir
meðal annars að Valsmenn hf., sem
hafa fengið framkvæmdaleyfi og haf-
ið framkvæmdir á Hlíðarendasvæð-
inu, geta haldið áfram með fram-
kvæmdir sínar án þess að eiga á
hættu að uppbygging þar skarist við
aðflug að neyðarbrautinni.
„Þetta hefur verið 11 ára barátta
og nú ætti ekki að vera neitt í veg-
inum fyrir því að uppbygging í
Vatnsmýrinni hefjist,“ segir Brynjar
Harðarson, formaður Valsmanna hf.
Hæstiréttur breytti dómi héraðs-
dóms að því leyti að ríkinu bæri að
loka brautinni innan 16 vikna frá
uppkvaðningu þessa dóms, en áður
hafði verið miðað við 16 vikur frá
uppkvaðningu héraðsdóms, sem var
í mars á þessu ári. Brynjar segir
þetta ekki breyta miklu fyrir fram-
kvæmdirnar. Til að byrja með verði
unnið að sökklum sem nái 4-5 metra
ofan í jörðina. Mögulega tefji þetta
að hægt sé að setja byggingakrana í
fulla hæð en Brynjar segir það ekki
munu tefja framkvæmdir.
Brynjar segist gera ráð fyrir því
að næsta sumar verði framkvæmdir
komnar langt á tveimur reitum á
Hlíðarendasvæðinu, eftir 18 mánuði
verði fyrstu íbúðirnar tilbúnar og í
framhaldinu muni fyrstu íbúarnir
flytja inn.
Spurður hvort hann telji þetta
þýða að flugvellinum verði lokað seg-
ir Brynjar að í raun sé málið líka sig-
ur fyrir stuðningsmenn flugvallar-
ins. Segir hann að nú geti menn farið
að snúa sér að því að þróa og þroska
völlinn. Niðurstaða Hæstaréttar
kalli hins vegar ekki á að völlurinn sé
færður. „Hann verður í fullri notkun
eins og undanfarin ár,“ segir
Brynjar.
Alþingi grípi til lagasetningar
Samtökin Hjartað í Vatnsmýrinni
telja að ekki komi til álita að loka
flugvellinum fyrir fullt og allt. „Þetta
eflir okkur frekar í afstöðunni að
taka þennan slag,“ segir Njáll
Trausti Friðbertsson, annar af for-
mönnum samtakanna Hjartans í
Vatnsmýrinni. „Við munum halda
áfram ótrauð í baráttunni fyrir
Reykjavíkurflugvelli í núverandi
mynd og teljum að ekkert hafi
breyst með tilliti til mikilvægis flug-
vallarins, hvort sem litið er til
sjúkraflutninga eða almannaflugs í
landinu.“
Samkvæmt aðalskipulagi Reykja-
víkur sem samþykkt var árið 2013 er
áætlað að loka norður-suður flug-
brautinni árið 2024. „Ef það gengur
eftir eru nýtingarhlutföll vallarins
hrunin. Það er því áhyggjuefni að
núverandi meirihluti í borginni
stefnir á að loka flugvellinum fyrir
fullt og allt,“ segir Njáll. Samtökin
hvetji því til inngrips Alþingis. „Það
er orðið óhjákvæmilegt að Alþingi
grípi til lagasetningar sem tryggi
framtíð sjúkraflugs og almannaflugs
til að forða óbætanlegu tjóni sem
hefur áhrif á öryggi allrar þjóðarinn-
ar.“
Flugfélagið Mýflug sinnir nær öllu
sjúkraflugi innan Íslands samkvæmt
samningi við heilbrigðisráðuneytið
og segir Leifur Hallgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Mýflugs, að lokun
neyðarbrautarinnar sé fyrst og
fremst sorgleg.
„Auðvitað er það öryggismál að
þessari braut sé lokað.“ Leifur telur
að lokunin muni fyrr eða síðar hafa
afleiðingar. „Það er sorglegt að það
sé ekki meiri skilningur hjá þeim
sem ráða málunum á að þörf sé á
þessari braut.“ Leifur segir að Mý-
flug muni áfram sinna þeim verkefn-
um sem því verði gert að sinna.
„Þegar ekki má lenda lengur á þess-
ari braut þurfa menn að laga sig að
því.“
Neyðarbraut-
inni lokað inn-
an 16 vikna
Ráðuneytið virðir niðurstöðu Hæsta-
réttar Samtökin Hjartað í Vatnsmýr-
inni vilja að Alþingi grípi inn í
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016
LANGVIRK
SÓLARVÖRN
ÞOLIR SJÓ, SUND
OG LEIK.
BARNIÐ ÞITT Á SKILIÐ 5 STJÖRNUR
SÓLARVÖRNIN SEM HÚÐLÆKNAR MÆLA MEÐ
Grunnformúlan er læknisfræðilega skráð.
Engin paraben, engin nanótækni, ilm- eða litarefni.
Sölustaðir | Öll apótek, Nettó, Hagkaup, Fjarðarkaup, Fríhöfninni og víðar | www.proderm.is