Morgunblaðið - 10.06.2016, Side 11

Morgunblaðið - 10.06.2016, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Stefnt er að því að auglýsa lýsingu fyrir deiliskipulag Landmannalauga í næsta mánuði. Þá er vonast til að hægt verði að auglýsa skipulagið og ganga frá því næsta vetur þannig að hægt verði að hefjast handa við framkvæmdir á næsta ári. „Það er ótrúlega góð sátt um þetta. Okkur tókst að finna sáttaflöt með öllum sem hagsmuna eiga að gæta,“ segir Þorgils Torfi Jónsson, oddviti Rangárþings ytra, eftir fund starfshóps sem stýrir gerð deili- skipulags fyrir Landmannalaugar. Unnið er að deiliskipulaginu á grundvelli tillögu VA arkitekta og Landmótunar sem vann fyrstu verð- laun í samkeppni um skipulag Land- mannalauga. Fyrirtækin vinna að þarfagreiningu og deiliskipulagi fyr- ir svæðið. Ákveðið var í gær að halda opinn kynningarfund um stöðu skipulagsins eftir að lýsing deili- skipulagsins verður auglýst. Fái sinn fyrri lit Mikið álag er á Landmannalaug- um. Talið er að þangað leggi leið sína um 130 þúsund manns á ári, aðallega yfir sumarmánuðina. Svæðið er á rauðum lista Umhverfisstofnunar yfir svæði sem eru í hættu. Hugmyndirnar sem unnið er með ganga út á það að létta álagi af þessu fjölsótta svæði og stýra umferð. Laugarnar sjálfar haldi sér og skáli Ferðafélags Íslands en bílaumferð þangað verði takmörkuð. Gert er ráð fyrir að byggja upp aðstöðu fyrir laugargesti norðan við laug- arsvæðið, við Námskvísl. Þar verði skiptiaðstaða, snyrtingar, aðstaða fyrir göngufólk til að borða nesti og hugsanlega einnig afdrep fyrir land- vörð. Þorgils Torfi reiknar með að fyrst verði ráðist í uppbyggingu á þeirri aðstöðu og sér fyrir sér að samvinna verði um það. Innheimt verði gjöld fyrir veitta þjónustu til að standa undir uppbyggingu og rekstri. Öll önnur uppbygging í þágu ferðamanna verði á nýju þjón- ustusvæði, norðan Námshrauns. Þar er gert ráð fyrir lóðum fyrir ferða- þjónustu, tjaldsvæðum og bílastæð- um. Það er um hálfan annan kíló- metra frá skála Ferðafélagsins. Þangað verður fólksflutningum beint. „Ásýnd Landmannalauga mun gjörbreytast. Svæðið við laugina verður fyrst og fremst hugsað fyrir gangandi ferðafólk. Þessar breyt- ingar eru hugsaðar til þess að Land- mannalaugar komist af rauðum lista Umhverfisstofnunar og geti orðið sjálfbærar á ný,“ segir Þorgils Torfi. Umhverfisstofnun hefur skipt fjármagni sem fékkst til að auka landvörslu á Suðurlandi. Í fyrstu var gert ráð fyrir 17 vikum í vörslu í frið- landi að Fjallabaki en ríflega 6 vik- um hefur verið bætt við. Landverðir verða starfandi frá 20. júní til 24. september. Framkvæmdir geti hafist á næsta ári  Gangur í skipulagsvinnu fyrir Landmannalaugar Teikning/VA arkitektar ehf. Þjónustuhús Fólksflutningum verður beint að nýju ferðaþjónustusvæði, norðan við Námshraun, til að létta álagi á Landmannalaugum. Anna Sigríður Einarsdóttir Árni Grétar Finnsson Ákvörðun Sigríðar Bjarkar Guðjóns- dóttur, lögreglustjóra á höfuðborgar- svæðinu, um að víkja lögreglufulltrúa í fíkniefnadeild lögreglunnar frá störfum hefur verið kærð til innanrík- isráðuneytisins. Héraðssaksóknari felldi niður mál lögreglufulltrúans í fyrradag, en málið hafði verið til rannsóknar hjá embættinu í nærri hálft ár. Í málum sem þessum er sérstök nefnd sem metur hvort forsendur hafi staðið til að leysa viðkomandi starfs- mann frá störfum. Lögreglufulltrúinn ákvað þó, í samráði við Kristján B. Thorlacius, lögmann sinn, að kæra ákvörðunina til ráðuneytisins. Það er mat þeirra að ekki sé samræmi á milli þess hvernig viðbrögð voru í þessu máli og öðrum. „Grundvöllurinn fyrir því sem við settum í kærunni til inn- anríkisráðuneytisins var að lögreglu- stjóraembættið gætti ekki að reglun- um um meðalhóf og jafnræði þegar það tók þessa ákvörðun,“ sagði Krist- ján í samtali við mbl.is í gær. Ekki sambærilegt LÖKE-máli Kristján telur að mál lögreglu- mannsins Gunnars Scheving Thor- steinssonar, sem oft er nefnt LÖKE- málið, sé ekki sambærilegt þessu máli. „Þar var Gunnar t.d. ekki leyst- ur frá störfum fyrr en það var búið að gefa út ákæru. Hann var sendur heim á launum, en það var ekki notuð sama aðferð í máli míns umbjóðanda. Hann var leystur frá störfum á hálfum grunnlaunum 14. janúar sl. og síðan er málið búið að taka næstum fimm mánuði,“ sagði Kristján og bætti við að flestir geti ímyndað sér að slíkar tekjur dugi skammt. Krafa um ígrundaða ákvörðun Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, tek- ur undir að meðalhófs hafi ekki verið gætt við ákvarðanatöku lögreglu- stjóra. „Ákvörðunin hefur í för með sér íþyngjandi áhrif á viðkomandi starfsmann. Það er lagaáskilnaður um að stjórnvaldsákvarðanir megi ekki ganga lengra en góðri meðal- hófsreglu gegnir. Þau tilvik sem við skoðum í þessu sambandi eru þess eðlis að þau bera með sér að það sé ekki gætt að meðalhófsreglu og að þetta sé mjög handahófskennd ákvarðanataka. Út á það gengur kær- an,“ segir Snorri. Nú mun málið fara fyrir sérstaka nefnd sem starfar samkvæmt 27. gr. laga um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins. Nefndin mun meðal annars meta hvort ákvörðunin hafi verið lögmæt á þeim tíma sem hún var tekin og hvaða gögn hafi legið til grundvallar ákvörðuninni. „Við höf- um dæmi þess að þessi nefnd hafi komist að því að ákvarðanir lögreglu- stjóra hafi ekki verið réttmætar. Nefndin mun fjalla um málið og ljúka athugun sinni á því óháð niðurstöðu héraðssaksóknara.“ Gæti verið fordæmisgefandi Snorri segir að málið geti vel verið fordæmisgefandi fyrir aðra starfs- menn lögreglunnar. „Það er skemmst frá því að segja að Aldís Hilmarsdótt- ir var færð til í starfi af því er hún tel- ur vegna eindregins stuðnings síns við þennan tiltekna lögreglufulltrúa. Það eru fleiri einstaklingar sem hafa orðið fyrir áhrifum af þessari rann- sókn,“ segir Snorri. Morgunblaðið/Eggert Lögreglumenn Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglu- manna, segir málið geta haft víðtæk áhrif innan lögregluembættisins. „Handahófs- kennd ákvarð- anataka“ Lögreglufulltrúi » Rannsókn héraðssaksókn- ara á máli lögreglufulltrúans hófst fyrir um hálfu ári síðan. » Búið er að kæra ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborg- arsvæðinu að víkja lögreglu- fulltrúanum frá störfum. » Formaður Landssambands lögreglumanna segir ákvörð- unina hafa verið handahófs- kennda.  Ákvörðun lögreglustjóra um brott- vikningu kærð til innanríkisráðuneytis Jóhann Hjartarson gerði jafntefli við Guðmund Kjartansson í 9. um- ferð Skákþings Íslands í gær og deilir nú toppsætinu með Héðni Steingrímssyni og Braga Þorfinns- syni, sem unnu sínar skákir. Þre- menningarnir hafa hlotið sex og hálfan vinning. Teflt er í Tónlistar- skóla Seltjarnarness en mótinu lýk- ur á morgun. benedikt@mbl.is Mikil spenna á toppnum í skákinni „Okkur líst betur á að fara í þá vinnu að gera svæðið austan við Þjórsá og inn í Skaftafellssýslur að þjóðgarði. Hafa hann ekki stærri en það,“ segir Þorgils Torfi Jónsson um hugmyndir um einn þjóðgarð á miðhálend- inu. Myndi friðland að Fjallabaki falla inn í hann. Hann segir að þjóðgarðurinn yrði ansi kröftug- ur. Hann myndi snýast um fimm eldfjöll, Torfajökulseldstöðina, Heklu, Tindfjöll, Eyjafjallajökul og Kötlu. Tekur Þorgils Torfi fram að ekki hafi verið kannað formlega hvort áhugi sé á þessu hjá hinum sveitarfélögunum. Kröftugur þjóðgarður FRIÐLAND AÐ FJALLABAKI Mikið úrval af sumarfatnaði Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:781-5100 Opið: Mán-fim: 12-18 - fös: 12-16 www.facebook.com/spennandi Vertu upplýstur! blattafram.is VIÐ HÖFUM TÆKIFÆRI TIL AÐ KOMA Í VEG FYRIR ATBURÐ SEM FELUR Í SÉR OFBELDI. NOTUM VIÐ TÆKIFÆRIN?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.