Morgunblaðið - 10.06.2016, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Kanadíski læknirinn Gabor Maté
mun næstkomandi sunnudag halda
fyrirlestra á sviði ávanabindingar í
Silfurbergi í Hörpu í Reykjavík.
Maté er einkum þekktur fyrir
rannsóknir sínar á fíkn og þær með-
ferðir sem hann beitir, en einnig
fyrir athuganir á athyglisbresti,
þroska og hegðun barna og orsök-
um og meðferð streitu.
„Ég hef mikla reynslu af því að
vinna með heilbrigðisvandamál á
borð við fíkn og hef gefið út fjöl-
mörg fræðirit því tengd auk þess
sem ég hef sinnt kennslu á því
sviði,“ segir Maté í samtali við
Morgunblaðið og bendir á að hann
sæki reynslu sína víða. Þannig vann
Maté meðal annars um árabil á
heilsugæslustöð í miðborg Vancouv-
er þar sem hann kynntist og sinnti
fjölmörgum einstaklingum sem lent
höfðu í klóm ávana- og fíkniefna.
Margir þeirra voru einnig haldnir
alvarlegum sjúkdómum á borð við
geðsjúkdóma.
Æskan geymir ástæðu fíknar
„Flestir líta svo á að fíkn sé annað
hvort bein afleiðing af röngum eða
slæmum ákvörðunum einstaklings
eða að um sé að ræða einhvers kon-
ar sjúkleika í heila,“ segir Maté og
heldur áfram: „Þegar fólk ánetjast
einhverju er það vanalega að flýja
tilfinningasársauka. Fyrsta spurn-
ingin er því ekki: Af hverju fíkn?
heldur: Af hverju sársauki? Og
sársaukinn stafar af einhverju sem
átti sér stað í æsku,“ segir hann og
bætir við að fíkn eigi því uppruna
sinn í áfalli í æsku.
Aðspurður segir Maté þá fíkn
sem hann talar um ekki einungis
tengjast notkun viðkomandi á vímu-
efnum á borð við áfengi og fíkniefni.
Fíknin getur, að hans sögn, einnig
komið fram sem spila-, matar- og
kynlífsfíkn eða kaupfíkn. „Öll fíkn,
hvort sem hún tengist efnum eða
hegðun viðkomandi, er tilraun til að
flýja andlega vanlíðan og streitu. Til
að skilja ástæðuna þurfum við að
skoða líf viðkomandi og hvað henti
hann í æsku,“ segir hann.
Þétt og mikil dagskrá
Dagskráin í Hörpu hefst klukkan
10 með stuttri kynningu á starfi og
verkum Maté. Að því loknu hefst
fyrsti fyrirlestur hans af þremur og
mun sá taka til fíknar og stríðsins
gegn fíkniefnum. Að loknu hádegis-
hléi hefst annar fyrirlestur hans
sem fjallar um tengsl áfalla í æsku
við geðsjúkdóma og fíkn. Lokafyrir-
lestur Maté verður um skaða-
minnkandi aðgerðir fyrir ein-
staklinga með alvarlegan vímu-
efnavanda, en öllum fyrirlestrum
lýkur með umræðum og spurn-
ingum úr sal.
„Ég á von á því að fulltrúar frá
Rauða krossinum mæti, heilbrigðis-
starfsfólk og einstaklingar sem
sjálfir glíma við fíknivanda,“ segir
Maté en nálgast má frekari upplýs-
ingar um viðburðinn og Gabor Maté
á heimasíðu Hörpu.
Rót fíknar má rekja
til æsku viðkomandi
Gabor Maté heldur fyrirlestra um fíknivanda í Hörpu um
helgina Skoða þarf líf fólks til að finna ástæðu fíknar
Ljósmynd/Wikipedia
Fræðimaður Gabor Maté mun um
helgina flytja ávörp í Hörpu.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Píratar halda aðalfund um helgina.
Fundurinn verður settur um hádegi
á morgun í Rúgbrauðsgerðinni í
Reykjavík. Fundinum á svo að ljúka
kl. 18.00 á sunnudag.
Búist er við um 150 fundargestum.
Skráðir gestir hafa forgang að fund-
argögnum, sætum og veitingum.
Fundurinn er öllum opinn svo lengi
sem húsrúm leyfir. Fólk getur skráð
sig til þátttöku á heimasíðu Pírata
(piratar.is). Einnig er hægt að skrá
sig við komuna á fundinn. Húsið
verður opnað kl. 11.00 á morgun.
Á dagskrá aðalfundarins er m.a.
Pírataskóli, kynning á starfsmönn-
um flokksins og grasrót Pírata. Þá
mun framkvæmdaráð fara yfir árið
og greina frá skýrslu stjórnar og
fjármálum. Þá munu borgarfulltrúi
og þingflokkurinn vera með fram-
sögu á fundinum.
Kosið verður nýtt sjö manna fram-
kvæmdaráð á fundinum og jafn
margir til vara. Framkvæmdaráðið
ber ábyrgð á rekstri félagsins. Fimm
aðalmenn og jafn margir varamenn
eru kosnir úr hópi fólks sem hefur
gefið kost á sér til setu í fram-
kvæmdaráðinu og skilað inn hags-
munaskráningu. Síðan eru tveir að-
almenn og tveir varamenn
slembivaldir úr hópi fundarmanna
og annarra sem gefa kost á sér í
slembivalið. Einnig verða kosin úr-
skurðarnefnd og trúnaðarráð, þrír
fulltrúar í hvora nefnd.
Auk þess verða afgreiddar laga-
breytingatillögur sem liggja fyrir
fundinum.
Aðalfundur Pírata er haldinn á
hverju ári og ber að halda hann fyrir
lok september. Sigríður Bylgja Sig-
urjónsdóttir, framkvæmdastjóri Pí-
rata, sagði að ákveðið hefði verið að
flýta fundinum nú vegna alþingis-
kosninga í haust.
Píratar flýttu
aðalfundinum
Morgunblaðið/Þórður
Píratar Aðalfundur hefst á morgun.
Myndin var tekin á aðalfundi 2015.
Fundurinn er öllum opinn Skráðir
gestir njóta forgangs að gögnum og mat
STORMUR EHF | KLETTHÁLSI 15 | S: 577 1717 | WWW.STORMUR.IS
Verð frá 1.690.000 kr.
Fjórhjól
Buggy bílar
Vinnubílar
Vorum að fá sendingu