Morgunblaðið - 10.06.2016, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016
Gengisskráning 9. júní 2016
Kaup Sala Mið
DOLLARI 122,27 122,85 122,56
STERLINGSPUND 176,67 177,53 177,1
KANADADOLLARI 95,92 96,48 96,2
DÖNSK KRÓNA 18,644 18,754 18,699
NORSK KRÓNA 14,976 15,064 15,02
SÆNSK KRÓNA 14,996 15,084 15,04
SVISSN. FRANKI 127,09 127,81 127,45
JAPANSKT JEN 1,148 1,1548 1,1514
SDR 172,79 173,81 173,3
EVRA 138,66 139,44 139,05
MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG 173,0856
Heimild: Seðlabanki Íslands
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Norska laxeldisfélagið Måsøval hefur
keypt 53,5% hlutafjár í íslenska félaginu
Laxa fiskeldi ehf. Gengið var frá samn-
ingum þess efnis í fyrradag. Laxa hefur
leyfi til árlegrar framleiðslu á 6.000
tonnum af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði,
Fáskrúðsfirði og Berufirði. Einnig hefur
Laxa keypt seiðaeldisstöðvar á Bakka og
Fiskalóni í Ölfusi. Um 1,3 milljónir seiða
eru nú í eldi og verða sett í sjókvíar í maí
að ári. Stefnt er að fyrstu slátrun í nóv-
ember 2018.
Måsøval var stofnað árið 1973 og hef-
ur framleiðslu sína í Noregi. Í tilkynningu
segir að með aðkomu félagsins skapist
góður rekstrargrundvöllur fyrir Laxa fisk-
eldi þar sem fjármögnun sé tryggð, auk
þess sem mannauði og þekkingu sé til
að dreifa hjá Måsøval sem nýtist vel.
Norskt félag kaupir
53,5% í Laxa fiskeldi
● Tilboð að fjárhæð 400 milljónir að
nafnvirði bárust í skuldabréfaflokk
Reykjavíkurborgar, RVKN 35 1. Var
ávöxtunarkrafan á bilinu 6,8%-7,25%.
Ákveðið var að taka tilboðum að nafn-
virði 260 milljónir og var ávöxtunar-
krafa 6,9%. Útistandandi í flokknum
fyrir voru 2,9 milljarðar að nafnvirði og
er heildarstærð skuldabréfaflokksins
nú tæplega 3,2 milljarðar að nafnvirði.
Reykjavík tekur til-
boðum í skuldabréf
STUTTAR FRÉTTIR ...
BAKSVIÐ
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Alls sóttu 26.985 Íslendingar um
miða á EM í Frakklandi í sumar,
en það nemur 8,15% af íslensku
þjóðinni. Björn Berg Gunnarsson,
fræðslustjóri VÍB, segir að sam-
kvæmt UEFA muni hver og einn
stuðningsmaður sem sækir Frakk-
land heim eyða að meðaltali 93
þúsundum króna. „Við vitum í
raun ekkert hverju Íslendingar
eiga eftir að eyða á mótinu og það
verður líka að hafa í huga að inni í
þessari tölu er ekki flug né miða-
verð á leiki.“
Hleypur á milljörðum króna
Dr. Sigurður Jóhannesson, for-
stöðumaður Hagfræðistofnunar
Háskóla Íslands, segir ljóst að
landsmenn muni eyða einhverjum
milljörðum en það hafi ekki nein
veruleg áhrif á hagkerfið.
„Íslendingar fara mikið til út-
landa í frí og ég hugsa að stór
hluti af þessu fólki hefði farið
hvort sem er, en auðvitað munar
um þetta,“ segir Sigurður en laus-
lega reiknað segir hann að áætla
megi að kostnaður Íslendinga sem
fylgja landsliðinu út verði á bilinu
fimm til sex milljarðar króna.
„Innflutningur okkar er ein-
hvers staðar á stærðargráðunni
þúsund milljarðar og fimm til sex
milljarðar í því vega ekki þungt.
Að sumu leyti má kannski segja að
þetta sé gott, því þetta tekur
mesta hitann af hagkerfinu þegar
ferðamannastraumurinn er mestur
hér á landi. Það þarf þá ekki að
sinna þessum tæpu 30 þúsund Ís-
lendingum sem fara á Evrópu-
meistaramótið.“
Í viðtali hjá BBC
Björn Berg verður í viðtali í
fréttaskýringarþættinum Outside
Source sem sýndur verður í beinni
útsendingu frá Frakklandi af BBC
News. Björn hefur verið fenginn
sem sérfræðingur í fjármálum og
viðskiptum tengdum Evrópumeist-
aramótinu í knattspyrnu og fjallar
m.a um áhrif mótsins á franskan
efnahag.
„Verið er að velta því fyrir sér
hvort Frakklandi komi fjárhags-
lega vel út úr mótinu eða ekki. Þá
verður rætt um það hverjir greiða
fyrir mótið að mestu og hverjir fái
tekjurnar,“ segir Björn. Á
fræðslufundi á vegum VÍB í gær
var þessum spurningum m.a. velt
upp en upptöku af fundinum og
eldri fræðslufundum um fjármál í
fótboltanum má finna á vib.is/fot-
bolti
Verkföll og hryðjuverkaógn
Ýmsir óvissuþættir eru í kring-
um stórmót á borð við EM og
bendir Björn t.d. á fjárfestingar í
innviðum sem oft er talið að hafi
góð efnahagsleg áhrif.
„Það spilar margt inn í vanga-
veltur um efnahagsáhrif. Því mið-
ur hafa t.d. tíð verkföll og núna
hryðjuverkaógn orðið til þess að
mikið er um afbókanir ferðamanna
til Frakklands, þó EM tempri það
kannski um tíma.“
Íslendingar eyða allt að sex
milljörðum á EM í sumar
AFP
Fótbolti Gífurlegur kostnaður fylgir því að halda stórmót á borð við EM en því fylgja líka töluverðar tekjur.
Peningarnir á EM
» Tæplega 27 þúsund Íslend-
ingar sóttust eftir miða á EM
eða yfir 8% þjóðarinnar.
» Kostnaður Íslendinga sem
fylgja landsliðinu nemur allt að
sex milljörðum króna.
» UEFA telur meðaleyðslu
hvers stuðningsmanns vera 93
þúsund krónur en það er utan
miðaverðs og flugs.
» Björn Berg Gunnarsson
fræðslustjóri VÍB mun ræða
efnahagsleg áhrif EM á BBC.
Yfir 8% þjóðarinnar fer til Frakklands til að fylgjast með íslenska landsliðinu
Landsvirkjun hefur samið við
Evrópska fjárfestingabankann
(EIB) um lán að fjárhæð 125 millj-
ónir evra, sem jafngildir nær 17,5
milljörðum króna. Lánið er án rík-
isábyrgðar. Er fjárhæðinni ætlað að
mæta kostnaði við hönnun, bygg-
ingu og rekstur 90 MW jarðvarma-
virkjunar Landsvirkjunar á Þeista-
reykjum. Þegar hafa verið boraðar
og prófaðar níu vinnsluholur á
Þeistareykjum, sem eru 30 kíló-
metra suðaustur af Húsavík.
Fyrsta verkefnið hér í fimm ár
Þetta er fyrsta verkefni Evr-
ópska fjárfestingabankans hérlend-
is frá árinu 2011 en þá lánaði bank-
inn 70 milljónir evra, jafngildi
tæpra 10 milljarða á núverandi
gengi, til byggingar Búðarhálsvirkj-
unar.
„Það er bankanum mikil ánægja
að geta stutt við þetta mikilvæga
orkuverkefni, sem er gott dæmi um
stuðning bankans við orkugeirann
um alla Evrópu,“ segir Cristian
Popa, framkvæmdastjóri og yfir-
maður verkefna fjárfestingabank-
ans í ríkjum EFTA, í tilkynningu
um lántökuna. Hann segir þekkingu
Íslendinga á þessu sviði vera í
fremstu röð og framkvæmdir á Ís-
landi séu fyrirmynd jarðvarmaverk-
efna um heim allan.
Stofnað var til Evrópska fjárfest-
ingabankans árið 1958 og lánar
hann til verkefna sem styðja mark-
mið Evrópusambandsins. Með
samningum við EFTA árið 1994,
hefur honum verið heimilt að lána
til verkefna hér á landi.
jonth@mbl.is
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Þeistareykir Fjármögnun hönn-
unar og byggingar kemur frá EIB.
EIB fjármagnar
Þeistareyki
Landsvirkjun
tekur um 17,5
milljarða króna lán
Feld
u
það