Morgunblaðið - 10.06.2016, Síða 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016
Vatnskæld
kælitæki
Einstaklega hljóðlát
tæki fyrir t.d. kerfis-
loft eða á vegg
hitataekni.is
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 - hitataekni@hitataekni.is
0
10
20
30
40
50
60
70
80
0
500
1,000
1,500
2 ,000
2,500
3,000
Fjárframlög ríkja til ESB árið 2014, í milljörðum evra
Bretland í Evrópusambandinu
Heimildir: Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
Íbúafjöldi
(milljónir)
Þýskaland
Frakkland
Frakkland
Ítalía
Ítalía
Spánn
Spánn
Pólland
Rúmenía
Holland Holland
Svíþjóð
Pólland
Belgía
Belgía
Grikkland
Önnur Önnur
Bretland 64,3
Bretland
2.254
Lands-
framleiðsla
í milljörðum
evra
Þýskaland
Bretland
11,3
Frakkland
Ítalía
Spánn
Svíþjóð
Belgía
Pólland
Danmörk
Grikkland
Önnur
lönd
Finnland
Portúgal
19,6
14,4
9,9
3,8
Holland
6,4
3,7
3,5
2,2
Austurríki
2,7
1,8
1,8
1,6
Þýskaland
25,8
Segja Brexit ógna
einingu Bretlands
Sir John Major og Tony Blair vara við úrsögn úr ESB
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Sir John Major og Tony Blair, fyrr-
verandi forsætisráðherrar Bret-
lands, vöruðu í gær við því að úrsögn
landsins úr Evrópusambandinu,
Brexit, myndi „ógna einingu Bret-
lands“ og grafa undan friði á
Norður-Írlandi.
Sir John og Blair heimsóttu Norð-
ur-Írland tveimur vikum fyrir
þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild
Bretlands að ESB og sögðu að ein-
ing landsins væri í veði í þjóðarat-
kvæðinu. Sir John sagði að „alvarleg
hætta“ væri á nýrri þjóðaratkvæða-
greiðslu í Skotlandi um sjálfstæði frá
Bretlandi og hann taldi líklegt að
skoskir aðskilnaðarsinnar færu þá
með sigur af hólmi ef Bretar gengju
úr ESB en meirihluti Skota væri
hlynntur aðild að sambandinu.
Sir John var forsætisráðherra
stjórnar Íhaldsflokksins á árunum
1990 til 1997 en Blair fór fyrir stjórn
Verkamannaflokksins 1997 til 2007.
Þeir gegndu mikilvægu hlutverki í
viðræðum sem leiddu til friðarsamn-
ings á Norður-Írlandi árið 1998.
Forsætisráðherrarnir fyrrverandi
sögðu í heimsókninni í gær að úr-
sögn Bretlands úr ESB myndi
stefna hagsæld og „framtíð Norður-
Írlands“ í hættu með því að grafa
undan friðinum. Bill Clinton, fyrr-
verandi forseti Bandaríkjanna, hélt
því sama fram í grein sem birt var í
tímaritinu New Statesman.
„Mjög ábyrgðarlaust“
Theresa Villiers, Norður-Írlands-
málaráðherra ríkisstjórnar breska
Íhaldsflokksins, hafnaði þessari við-
vörun í gær. Villiers, sem er hlynnt
úrsögn Bretlands úr ESB, sagði að
stuðningur Norður-Íra við friðar-
samkomulagið væri „bjargtraustur“.
„Það verður ekki afturhvarf til ófrið-
ar fortíðarinnar á Norður-Írlandi,
hver sem niðurstaða þjóðaratkvæð-
isins verður, og að halda öðru fram
væri mjög ábyrgðarlaust,“ sagði ráð-
herrann.
AFP
Berjast gegn úrsögn Sir John Major og Tony Blair ganga yfir Friðarbrúna
í Derry á Norður-Írlandi í gær þegar þeir fóru þangað í heimsókn.
Þúsundir manna komu saman til að
kveðja Muhammad Ali á bæna-
samkomu sem haldin var að ísl-
ömskum sið í heimaborg hnefa-
leikakappans, Louisville í
Kentucky-ríki, síðdegis í gær.
Ali varð þrisvar sinnum heims-
meistari í hnefaleikum og var einn-
ig þekktur fyrir baráttu sína fyrir
réttindum blökkumanna í Banda-
ríkjunum. Hann hét Cassius Clay en
breytti nafni sínu í Muhammad Ali
eftir að hann snerist til íslamstrúar
árið 1964. Hann lést á föstudaginn
var, 74 ára að aldri, eftir að hafa
þjáðst af parkinsonsveiki, hægfara
taugasjúkdómi, í áratugi.
Bænasamkoman í gær stóð í 30
mínútur og var haldin í íþróttahúsi
þar sem síðasta hnefaleikaeinvígi
Alis í heimaborginni fór fram.
Líkkistu hans verður síðan ekið
um Louisville í dag. Meðal annars
verður farið að æskuheimili hans í
borginni og safni sem kennt er við
hann og um Muhammad Ali-
breiðstræti áður en hann verður
borinn til grafar að viðstöddum
ættingjum hans og vinum. Á meðal
líkmannanna verða leikarinn Will
Smith, sem lék Ali í kvikmynd, og
Lennox Lewis, fyrrverandi heims-
meistari í hnefaleikum.
Ennfremur verður minningar-
athöfn um Ali á íþróttaleikvangi í
Louisville síðdegis í dag. Bill Clin-
ton, fyrrv. forseti Bandaríkjanna,
og gamanleikarinn Billy Crystal,
flytja þá ræður. Meðal viðstaddra
verður Recep Tayyip Erdogan, for-
seti Tyrklands, sem vottaði minn-
ingu Alis virðingu sína í gær, sagði
að hann hefði ekki aðeins verið
hnefaleikakappi, heldur einnig
frelsishetja sem hefði barist „í þágu
allra kúgaðra manna í heiminum“.
Hnefaleikakappinn Muhammad Ali kvaddur á bænasamkomu í Louisville í gær og verður borinn til grafar í heimaborginni í dag
AFP
Þúsundir manna
báðu fyrir Ali
Stjórnvöld í Ísrael afturkölluðu í gær
ferðaheimildir yfir 80.000 Palestínu-
manna á Vesturbakkanum og
bjuggu sig undir að senda þangað
hundruð hermanna eftir að tveir pal-
estínskir byssumenn skutu fjóra Ísr-
aela til bana og særðu fimm í kaffi-
húsi í Tel Aviv.
Á myndum úr eftirlitsvélum sáust
árásarmennirnir ganga rólega inn í
kaffihúsið áður en þeir tóku upp
byssurnar og hófu skothríð. Flestir
gesta veitingastaðarins hlupu burt í
ofboði en nokkrir veittu árásar-
mönnunum mótspyrnu.
Ríkisstjórn Ísraels sagðist hafa
afturkallað ferðaleyfi um 83.000 Pal-
estínumanna í föstumánuði múslíma
og talið er að það auki spennuna sem
hefur verið á Vesturbakkanum síð-
ustu mánuði, að sögn fréttaveitunn-
ar AFP. Vinnuleyfi 204 ættingja
árásarmannanna í Ísrael voru einnig
afturkölluð. Stjórnin sagði að ör-
yggissveitir landsins myndi grípa til
frekari aðgerða til að koma í veg fyr-
ir fleiri árásir. Talsmaður Hamas,
samtaka íslamista sem eru við völd á
Gaza-svæðinu, fagnaði árásinni og
lýsti henni sem „hetjudáð“.
AFP
Blóðsúthellingar Ísraelar faðmast eftir skotárás í kaffihúsi í Tel Aviv.
Urðu fjórum að
bana í kaffihúsi
Ferðaleyfi Palestínumanna afturkölluð