Morgunblaðið - 10.06.2016, Side 21

Morgunblaðið - 10.06.2016, Side 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016 Sjálfa Ferðamenn eru duglegir við að taka svokallaðar sjálfur, eða myndir af sjálfum sér, hvar sem þeir fara, og hún gerði það einmitt þessi unga kona sem heimsótti Gullfoss ásamt tuskudýri. Ómar Evrópumeist- aramótið í knatt- spyrnu (EM 2016 eða EURO 2016) hefst á Stade de France í París í dag. EM er þriðji mest sótti íþróttaviðburður í heimi á eftir Ólympíu- leikunum og heims- meistaramótinu í knattspyrnu. Í Frakk- landi teygir EM sig yfir fleiri daga en mótið hefur áður gert. Leikir fara fram í tíu borgum Frakklands og mótið stendur til 10. júlí, í fjórar vikur í stað þriggja áður vegna fjölgunar keppnisliða, nú eru leik- irnir 51 í stað 31 áður. Á heims- meistaramótinu eru leikirnir 64. Talið er að alls muni um 8 milljónir manna fara á vellina og sjá leikina. Líklegt er að í hópnum verði allt að 20.000 Íslendingar. Spáð er að sam- tals muni um 8 milljarðar manna horfa á útsendingar á leikjunum. Frakkar hafa alla burði til að halda þetta mikla mót með sóma. Mikið er í húfi. Má til dæmis nefna að Frakkar hafa sótt um að Ólymp- íuleikarnir verði í París árið 2024. Þeir keppa um tilnefninguna við Los Angeles, Róm og Búdapest. Umfang Ólympíuleikanna er tíu sinnu meira en EM 2016. Ráði Frakkar ekki við EM 2016 dregur það úr líkum á að þeim verði treyst til að skipuleggja Ólympíuleikana. Stjórnmálaspenna í Frakklandi Mikil spenna er í frönskum stjórnmálum um þessar mundir. Leiðtogar flokkanna búa sig undir prófkjör vegna for- setakosninga á næsta ári. Hart er tekist á innan flokka og milli þeirra. Sósíalistar undir forystu François Hol- landes forseta eiga verulega undir högg að sækja vegna nýrrar vinnulöggjafar sem miðar að því að auka frelsi á vinnumarkaði og slaka á kröfunni um 35 stunda vinnu- viku. Mótmæli og verkföll einkenna franskt þjóðlíf. Truflanir hafa verið á járnbrautarferðum og starfsmenn Air France hafa lagt niður vinnu. Í ýmsum atvinnugreinum nýta menn sér EM til að knýja á um kröfur sínar. Löng hefð er fyrir því í Frakklandi að unnt sé að ná ein- hverju fram með slíkum ofrík- isaðferðum. Manuel Valls forsætisráðherra hefur í meginatriðum staðist þrýst- inginn til þessa. Hann vill færa stjórnarflokkinn til hægri og jafn- vel fella tilvísun til sósíalisma úr nafni hans. Andstaða manna á vinstri væng flokksins er hörð. Skuggi hryðjuverka Skugginn af Ríki íslams (Daesh) hvílir yfir Frakklandi. Hryðju- verkasamtökin bera ábyrgð á að 147 manns féllu og rúmlega 430 særðust í árásum í París árið 2015. Knattspyrnuvöllurinn Stade de France var skotmark liðsmanna samtakanna 13. nóvember 2015. Mohamed Abrini sem er grunaður um aðild að nýlegum hryðjuverkum í París og Brussel hefur sagt að upphafleg áform hryðjuverkamann- anna hafi verið að vinna hryðjuverk á EM 2016. Í lok maí birtist yfirlýsing frá Daesh þar sem hvatt var til árása á Vesturlönd í ramadan-mánuðinum sem hófst mánudaginn 6. júní. „Undirbúið ykkur, verið tilbúnir til að standa að mánuði hörmunga alls staðar meðal trúlausra,“ segir í til- kynningu sem eignuð er Abou Mo- hammed al-Adnani, talsmanni hreyfingarinnar, hinni fyrstu í magra mánuði. Frönsk yfirvöld segjast ekki hafa vitneskju um neina sérgreinda að- gerð vegna EM 2016 en þau viti að Daesh skipuleggi nýjar árásir og Frakkland sé greinilega eitt af skotmörkunum. Bandaríska utanríkisráðuneytið sendi fyrir nokkrum dögum frá sér hættumat vegna EM 2016. Þar seg- ir að meiri líkur séu á að hættulegt atvik verði á „skemmtistað“ en á knattspyrnuvelli. Breska utanrík- isráðuneytið tók næstum orðrétt undir þetta í viðvörun þriðjudaginn 7. júní. „Við gerum allt í okkar valdi til að hindra árás hryðjuverkamanna og búum okkur einnig undir að svara henni,“ segir Bernard Caze- neuve, innanríkisráðherra Frakka, sem hefur virkjað 77.000 lög- reglumenn og björgunarliða. Auk þess sem þúsundir hermanna eru við öryggisgæslu. Fótboltabullur Fótboltabullur eru sérstakt vandamál í tengslum við EM 2016 eins og aðra stórleiki í knattspyrnu. Í bandaríska hættumatinu er sér- staklega vikið að upphafsleik Eng- lendinga á EM 2016 vegna þess að áhangendur enska liðsins kunni að verða til vandræða. Leikurinn verð- ur að kvöldi laugardags 11. júní á Stade Velodrome í Marseille og keppa Englendingar við Rússa. Lið þessara tveggja þjóða tókust á í riðlakeppni EM 2007 og kepptu þá í London og Moskvu þar sem kom til harðra átaka milli stuðnings- manna liðanna. Minnt er á að æði hafi runnið á stuðningsmenn Englands á heims- meistarakeppninni 1998 eftir leik við Túnis í Marseille. Vegna slíkra atvika hafi bresk stjórnvöld meðal annars gripið til þess ráðs að svipta fótboltabullur vegabréfum þeirra og hindrað þannig ferðir þeirra til útlanda. Stundum hafi hinir vega- bréfalausu skipt þúsundum en nú séu þeir nokkur hundruð. Frá 13. nóvember 2015 hafa um 35 milljónir manna sætt skoðun við komuna til Frakklands á landa- mærunum, á flugvöllum og í höfn- um. Rúmlega 18.000 hefur verið bannað að fara inn í Frakkland. Sérstök athygli beinist að 2.355 ein- staklingum sem eru kallaðir „of- beldisfullir stuðningsmenn“, það er fótboltabullur, í heimalöndum sín- um. Til að fylgjast sérstaklega með annarra landa mönnum óskaði franska innanríkisráðuneytið eftir að hvert ríki sem á lið á mótinu sendi að minnsta kosti átta lög- reglumenn til Frakklands. Tveir þeirra eru tengslafulltrúar gagn- vart frönskum yfirvöldum en sex úr liðinu hafa eftirlit á leikvellinum og þar sem áhangendur liða koma saman auk þess á brautarstöðvum og flugvöllum. Héðan fara átta lögreglumenn og samþykkti ríkisstjórnin allt að 20 milljóna króna aukafjárveitingu vegna farar þeirra. Ótti við óttann Mánudaginn 6. júní skýrði yf- irmaður leyniþjónustu Úkraínu frá því að franskur maður hefði verið handtekinn við landamæri Póllands með magn vopna og sprengjuefni. Hann ætlaði að nota þetta gegn 15 skotmörkum í Frakklandi í tengslum við EM 2016. Vildi hann mótmæla straumi ólöglegra inn- flytjenda til Frakklands og út- breiðslu íslams þar. Tveimur dögum síðar birtust fréttir um að ef til vill væri ekki allt sem sýndist í þessu máli. Spurning væri hvort þarna hefði verið vopnasali eða hryðjuverka- maður á ferð. Í Frakklandi hefði enginn grunur fallið á þennan 25 ára gamla mann, Grégoire M., bóndason og kúasæðingarmann. Í sex ár hefði hann búið í 80 manna smáþorpi í Meuse í Norðaustur- Frakklandi og almennt getið sér gott orð. Vegna fréttarinnar var minnt á að ástæðulaust væri að láta ótta við óttann við hryðjuverk ná tökum á sér vegna EM 2016. Allt í kringum mótið er risavaxið. Illvirkjum má ekki takast að spilla gleðinni, góðu mennirnir hafa betur og besta liðið sigrar. Eftir Björn Bjarnason » Frakkar hafa gripið til mikillar öryggis- gæslu vegna EM 2016. Skuggi hryðjuverkanna í París 2015 þar sem 147 féllu, hvílir enn yfir landi og þjóð. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. EM 2016: Öryggisáskorun fyrir Frakka

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.