Morgunblaðið - 10.06.2016, Page 21
21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016
Sjálfa Ferðamenn eru duglegir við að taka svokallaðar sjálfur, eða myndir af sjálfum sér, hvar sem þeir fara, og hún gerði það einmitt þessi unga kona sem heimsótti Gullfoss ásamt tuskudýri.
Ómar
Evrópumeist-
aramótið í knatt-
spyrnu (EM 2016 eða
EURO 2016) hefst á
Stade de France í
París í dag. EM er
þriðji mest sótti
íþróttaviðburður í
heimi á eftir Ólympíu-
leikunum og heims-
meistaramótinu í
knattspyrnu. Í Frakk-
landi teygir EM sig yfir fleiri daga
en mótið hefur áður gert. Leikir
fara fram í tíu borgum Frakklands
og mótið stendur til 10. júlí, í fjórar
vikur í stað þriggja áður vegna
fjölgunar keppnisliða, nú eru leik-
irnir 51 í stað 31 áður. Á heims-
meistaramótinu eru leikirnir 64.
Talið er að alls muni um 8 milljónir
manna fara á vellina og sjá leikina.
Líklegt er að í hópnum verði allt að
20.000 Íslendingar. Spáð er að sam-
tals muni um 8 milljarðar manna
horfa á útsendingar á leikjunum.
Frakkar hafa alla burði til að
halda þetta mikla mót með sóma.
Mikið er í húfi. Má til dæmis nefna
að Frakkar hafa sótt um að Ólymp-
íuleikarnir verði í París árið 2024.
Þeir keppa um tilnefninguna við
Los Angeles, Róm og Búdapest.
Umfang Ólympíuleikanna er tíu
sinnu meira en EM 2016. Ráði
Frakkar ekki við EM 2016 dregur
það úr líkum á að þeim verði treyst
til að skipuleggja Ólympíuleikana.
Stjórnmálaspenna
í Frakklandi
Mikil spenna er í frönskum
stjórnmálum um þessar mundir.
Leiðtogar flokkanna búa sig undir
prófkjör vegna for-
setakosninga á næsta
ári. Hart er tekist á
innan flokka og milli
þeirra.
Sósíalistar undir
forystu François Hol-
landes forseta eiga
verulega undir högg
að sækja vegna nýrrar
vinnulöggjafar sem
miðar að því að auka
frelsi á vinnumarkaði
og slaka á kröfunni
um 35 stunda vinnu-
viku.
Mótmæli og verkföll einkenna
franskt þjóðlíf. Truflanir hafa verið
á járnbrautarferðum og starfsmenn
Air France hafa lagt niður vinnu. Í
ýmsum atvinnugreinum nýta menn
sér EM til að knýja á um kröfur
sínar. Löng hefð er fyrir því í
Frakklandi að unnt sé að ná ein-
hverju fram með slíkum ofrík-
isaðferðum.
Manuel Valls forsætisráðherra
hefur í meginatriðum staðist þrýst-
inginn til þessa. Hann vill færa
stjórnarflokkinn til hægri og jafn-
vel fella tilvísun til sósíalisma úr
nafni hans. Andstaða manna á
vinstri væng flokksins er hörð.
Skuggi hryðjuverka
Skugginn af Ríki íslams (Daesh)
hvílir yfir Frakklandi. Hryðju-
verkasamtökin bera ábyrgð á að
147 manns féllu og rúmlega 430
særðust í árásum í París árið 2015.
Knattspyrnuvöllurinn Stade de
France var skotmark liðsmanna
samtakanna 13. nóvember 2015.
Mohamed Abrini sem er grunaður
um aðild að nýlegum hryðjuverkum
í París og Brussel hefur sagt að
upphafleg áform hryðjuverkamann-
anna hafi verið að vinna hryðjuverk
á EM 2016.
Í lok maí birtist yfirlýsing frá
Daesh þar sem hvatt var til árása á
Vesturlönd í ramadan-mánuðinum
sem hófst mánudaginn 6. júní.
„Undirbúið ykkur, verið tilbúnir til
að standa að mánuði hörmunga alls
staðar meðal trúlausra,“ segir í til-
kynningu sem eignuð er Abou Mo-
hammed al-Adnani, talsmanni
hreyfingarinnar, hinni fyrstu í
magra mánuði.
Frönsk yfirvöld segjast ekki hafa
vitneskju um neina sérgreinda að-
gerð vegna EM 2016 en þau viti að
Daesh skipuleggi nýjar árásir og
Frakkland sé greinilega eitt af
skotmörkunum.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
sendi fyrir nokkrum dögum frá sér
hættumat vegna EM 2016. Þar seg-
ir að meiri líkur séu á að hættulegt
atvik verði á „skemmtistað“ en á
knattspyrnuvelli. Breska utanrík-
isráðuneytið tók næstum orðrétt
undir þetta í viðvörun þriðjudaginn
7. júní.
„Við gerum allt í okkar valdi til
að hindra árás hryðjuverkamanna
og búum okkur einnig undir að
svara henni,“ segir Bernard Caze-
neuve, innanríkisráðherra Frakka,
sem hefur virkjað 77.000 lög-
reglumenn og björgunarliða. Auk
þess sem þúsundir hermanna eru
við öryggisgæslu.
Fótboltabullur
Fótboltabullur eru sérstakt
vandamál í tengslum við EM 2016
eins og aðra stórleiki í knattspyrnu.
Í bandaríska hættumatinu er sér-
staklega vikið að upphafsleik Eng-
lendinga á EM 2016 vegna þess að
áhangendur enska liðsins kunni að
verða til vandræða. Leikurinn verð-
ur að kvöldi laugardags 11. júní á
Stade Velodrome í Marseille og
keppa Englendingar við Rússa. Lið
þessara tveggja þjóða tókust á í
riðlakeppni EM 2007 og kepptu þá
í London og Moskvu þar sem kom
til harðra átaka milli stuðnings-
manna liðanna.
Minnt er á að æði hafi runnið á
stuðningsmenn Englands á heims-
meistarakeppninni 1998 eftir leik
við Túnis í Marseille. Vegna slíkra
atvika hafi bresk stjórnvöld meðal
annars gripið til þess ráðs að svipta
fótboltabullur vegabréfum þeirra
og hindrað þannig ferðir þeirra til
útlanda. Stundum hafi hinir vega-
bréfalausu skipt þúsundum en nú
séu þeir nokkur hundruð.
Frá 13. nóvember 2015 hafa um
35 milljónir manna sætt skoðun við
komuna til Frakklands á landa-
mærunum, á flugvöllum og í höfn-
um. Rúmlega 18.000 hefur verið
bannað að fara inn í Frakkland.
Sérstök athygli beinist að 2.355 ein-
staklingum sem eru kallaðir „of-
beldisfullir stuðningsmenn“, það er
fótboltabullur, í heimalöndum sín-
um.
Til að fylgjast sérstaklega með
annarra landa mönnum óskaði
franska innanríkisráðuneytið eftir
að hvert ríki sem á lið á mótinu
sendi að minnsta kosti átta lög-
reglumenn til Frakklands. Tveir
þeirra eru tengslafulltrúar gagn-
vart frönskum yfirvöldum en sex úr
liðinu hafa eftirlit á leikvellinum og
þar sem áhangendur liða koma
saman auk þess á brautarstöðvum
og flugvöllum.
Héðan fara átta lögreglumenn og
samþykkti ríkisstjórnin allt að 20
milljóna króna aukafjárveitingu
vegna farar þeirra.
Ótti við óttann
Mánudaginn 6. júní skýrði yf-
irmaður leyniþjónustu Úkraínu frá
því að franskur maður hefði verið
handtekinn við landamæri Póllands
með magn vopna og sprengjuefni.
Hann ætlaði að nota þetta gegn 15
skotmörkum í Frakklandi í
tengslum við EM 2016. Vildi hann
mótmæla straumi ólöglegra inn-
flytjenda til Frakklands og út-
breiðslu íslams þar.
Tveimur dögum síðar birtust
fréttir um að ef til vill væri ekki
allt sem sýndist í þessu máli.
Spurning væri hvort þarna hefði
verið vopnasali eða hryðjuverka-
maður á ferð. Í Frakklandi hefði
enginn grunur fallið á þennan 25
ára gamla mann, Grégoire M.,
bóndason og kúasæðingarmann. Í
sex ár hefði hann búið í 80 manna
smáþorpi í Meuse í Norðaustur-
Frakklandi og almennt getið sér
gott orð.
Vegna fréttarinnar var minnt á
að ástæðulaust væri að láta ótta við
óttann við hryðjuverk ná tökum á
sér vegna EM 2016. Allt í kringum
mótið er risavaxið. Illvirkjum má
ekki takast að spilla gleðinni, góðu
mennirnir hafa betur og besta liðið
sigrar.
Eftir Björn
Bjarnason » Frakkar hafa gripið
til mikillar öryggis-
gæslu vegna EM 2016.
Skuggi hryðjuverkanna
í París 2015 þar sem
147 féllu, hvílir enn yfir
landi og þjóð.
Björn Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
EM 2016: Öryggisáskorun fyrir Frakka