Morgunblaðið - 10.06.2016, Side 23

Morgunblaðið - 10.06.2016, Side 23
UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016 SKEMMTUN FYRIR ALLA! www.smarativoli.is / Sími 534 1900 / Smáralind Sýnum EM leikina á skjá á Sportbarnum okkar FRÍTT INN ÁFRAM ÍSLAND Tilboð á tímakortum á leikdögum Hlökkum til að sjá ykkur! Opnunartími: Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 14 til 22 Föstudaga frá kl. 14 til 23 Laugardaga frá kl. 12 til 23 Sunnudaga frá kl.13 til 22 - með morgunkaffinu göng sem liggja undir kirkjuna. Þaðan var síðan gengið æ dýpra. Þarna í undirdjúpunum gengum við um götur fyrri alda og sáum hvern- ig fólk á fyrri tíð hafði útbúið grafir forfeðra sinna. Mikil listaverk, lág- myndir og styttur prýða marga grafreitina sem fyrir augu ber þarna, sumir eru þó einfaldari og á enn öðrum eru aðeins legsteinar með minningarorðum um látna ást- vini. Og listaverkin eru bæði frá kristnum tíma og tímanum fyrir kristni. Þar má sjá egypsku guðina Hórus, Ísis og Ósíris í bland við gríska og rómverska guði og kristna dýrlinga. Áfram lá leiðin í gegnum borg hinna dauðu þar til við komum loks að hvelfingu við undirstöður grafhýsanna fyrir ofan okkur. Þá staðnæmdist leið- sögumaðurinn og benti okkur á lítið op í marmaranum þar sem greina mátti horn af fornum kistli, skríni því sem talið er að Pétur postuli hafi verið jarðsettur í. Fannst það beint undir hinni fornu Péturskap- ellu, en kapelluna höfðu menn reist yfir legstæði Péturs. Okkur setti hljóð á þessum forna og helga stað og erfitt er að lýsa þeim hugsunum sem að ferðalangi frá Íslandi sóttu. Eftir stutta stund opnuðust dyr hvelfingarinnar á ný og við héldum frá Pétri postula, upp gegnum jarð- lög og forn kirkjugólf þar til við aft- ur vorum komin í hvelfingarnar sem eru kjallarar núverandi Pét- urskirkju. Þar eru miklar kapellur gulli og dýrum gripum prýddar og listaverkum aldanna. Loks opnaði leiðsögumaðurinn dyr og við geng- um út úr þessum mikla, forna og helga heimi og inn í nútímann. Ferðin í undirdjúp Vatíkansins að gröf Péturs var á enda. Og úti beið ítalska sólskinið, bjart sem aldrei fyrr. Höfundur er prestur og leiðsögumaður um Rómaborg. Sumir virðast álíta að forseti Íslands geti mótað embættið að eigin vild. Það er ekki. Aftur á móti setur sér- hver forseti svip á embættið eftir hæfi- leikum og getu. Núver- andi forseti fór fyrstur forseta lýðveldisins inn á nýjar brautir til þess að auka pólitískt áhrifavald sitt – án þess nokkur fengi rönd við reist – vegna mót- sagnarkenndra ákvæða í gildandi stjórnarskrá, auk þess sem núver- andi forseti var fyrsti forseti lýð- veldisins sem hlotið hafði uppeldi í pólitískri refskák og átakastjórn- málum. Ný stjórnarskrá Brýn þörf er því á nýrri stjórnar- skrá sem hæfir lýðræðisríki á 21. öld, ekki bótasaumi sem stundaður hefur verið. Ekki síst þarf að setja skýr ákvæði um þar, hversu lengi forseti getur setið og ákvæði um að enginn geti orðið forseti nema hafa meirihluta greiddra atkvæði að baki sér. Ný stjórnarskrá þarf einnig að auka beint lýðræði í kjölfar auk- innar menntunar og aukins jafn- ræðis, t.a.m. með skýrum ákvæðum um þjóðaratkvæði í mikilsverðum málum. Þá ættu viðræður um stjórnarmyndn að fara fram fyrir opnum tjöldum – án aðkomu forseta, auk þess sem fulltrúar fram- kvæmdavaldsins eiga að sjálfsögðu ekki að sitja á löggjaf- arþinginu. Grundvallaratriði í lýðveldi með þing- bundna stjórn er að löggjafarþing, sem kosið er með jöfnu at- kvæðavægi allra kjós- enda, ráði för og forseti sé sameiningartákn – ekki sérstakur stjórn- málaflokkur, eins og við höfum orðið að horfa upp á. Mótsagnir í stjórnarskránni Undarlegt verður að telja hversu miklar mótsagnir er enn að finna í stjórnarskránni frá 1944. Skýringa er ef til vill að nokkru að leita í því, að stjórnarskráin frá 1944 eru leifar dönsku stjórnarskrárinnar eða stjórnarskrárinnar frá 1874. Í gild- andi stjórnarskrá segir t.a.m. að for- seti lýðveldisins sé ábyrgðarlaus á stjórnarathöfnum og lætur ráðherra framkvæma vald sitt. Engu að síður skal forseti skipa ráðherra og veita þeim lausn, ákveða tölu þeirra og skipta störfum með þeim. Þetta er alger mótsögn – hrein rökleysa. Í stjórnarskránni segir einnig, að forseti lýðveldisins veiti þau emb- ætti, er lög mæla fyrir um, og geti vikið úr embætti þeim sem hann hefur veitt embætti og flutt embættismenn úr einu embætti í annað. Forseti geri samninga við önnur ríki, rjúfi þing og geti lagt fyrir Alþingi frumvörp til laga og ákveðið að saksókn fyrir afbrot skuli niður falla, ef ríkar ástæður eru til, og náði menn og veiti almenna upp- gjöf saka – en er samt ábyrgðarlaus í stjórnarathöfnm. Þetta er alger mótsögn – hrein rökleysa. Sameiningartákn Í upphafi var litið svo á, að forseti væri sameiningartákn þjóðarinnar. Með því er átt við, að í embættis- verkum sínum kæmi hann fram fyr- ir hönd þjóðarinnar allrar, sýndi hlutlægni og hógværð í störfum og gengi ekki erinda einstakra hagsmunahópa. Að auki er forseta ætlað að tala til þjóðarinnar þegar við á til að stuðla að einingu og efla virðingu Íslendinga fyrir landinu, sögu þjóðarinnar og tungu, þáttum sem gera Íslendinga að sérstakri þjóð. Kjör Vigdísar Finnbogadóttur 1980 vakti heimsathygli, enda var hún fyrsta konan í heiminum sem kjörin var í embætti þjóðhöfðingja. Margir nutu góðs af hylli sem hún naut erlendis vegna yfirvegunar, lát- leysis og hógværðar sinnar. Núver- andi forseti gerðist aftur á móti for- mælandi íslenskra fyrirtækja sem vildu hasla sér völl erlendis og ferð- aðist á þeirra vegum og lofaði dugn- að íslenskra fyrirtækja, kjark og þor útrásarvíkinganna! Varð forsetinn eins konar ráðherra verslunar og viðskipta erlendis, enda þótt óvíst sé nú, hver raunverulegur árangur varð af því starfi – en tjón útrásar- víkinganna skildi eftir sig djúp spor, sárindi og skugga. Braut þetta gegn hlutlægni forseta í störfum. Nýr forseti Þjóðin þarf nú forseta sem getur orðið sameiningartákn, sýnt hlut- lægni í störfum og komið fram fyrir hönd þjóðarinnar allrar og markað í starfi sínu stefnu sem sameinar alla þegnana á tímum alþjóðahyggju og með því eflt sjálfsvirðingu þjóðar- innar og virðingu fyrir öðrum þjóð- um við gerbreyttar aðstæður og stuðlað að því að skapa samfélag sem byggist á heiðarleika, réttlæti, virðingu og jafnrétti. Hlutverk forseta Íslands – ný stjórnarskrá Eftir Tryggva Gíslason » Forseti þarf að geta eflt sjálfsvirðingu þjóðarinnar og virðingu fyrir öðrum þjóðum og skapað samfélag sem byggist á réttlæti, virð- ingu og jafnrétti. Tryggvi Gíslason Höfundur er fyrrverandi skólameistari Menntaskólans á Akureyri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.