Morgunblaðið - 10.06.2016, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 10.06.2016, Qupperneq 31
hjón með í ferðalögum kórsins innan lands sem utan. Fyrir hið dygga söng- og félagsstarf Sig- urðar hlaut hann heiðursmerki kórsins, gullhörpuna. Við mun- um ávallt minnast hans músík- alska þáttar og ljúfu söngraddar en þar lagði hann stein sem varðar árangur kórsins á 100 ára vegferð hans. Sigurður var einn 14 Fóst- bræðra og starfaði með þeim alla tíð. Þegar Sigurður hætti að syngja með starfandi kórnum gekk hann til liðs við Gamla Fóstbræður og söng með þeim síðustu árin og fór í söngferðir með þeim innan lands og utan. Við félagarnir í Gömlum Fóst- bræðrum þökkum Sigurði fyrir sönglega og félagslega samstarf- ið og minnumst hans með virð- ingu og þökk. Jafnframt sendum við Jónu eiginkonu hans, Eddu einkadótturinni og barnabörnum innilegar samúðarkveðjur. Einar Geir Þorsteinsson. Mér barst í vikunni sú fregn að skólabróðir minn og vinur, Sigurður Jóelsson, hefði gengið yfir landamærin miklu. Þar kvaddi góður og vænn drengur. Minningarnar streyma að. Ég kynntist Sigurði og ýmsum góð- um drengjum öðrum sem kvatt hafa þetta mannlíf þegar ég gekk í Kennaraskóla Íslands og nú er hann einnig horfinn sjón- um. Þannig háttaði til að Sigurður sat við næsta borð við mig í kennslu-stofunni. Fljótt kynntist ég hversu mikla gæðasál hann hafði að geyma. Ég man að við skemmtum okkur stundum í tímum hjá Bjarna Vilhjálmssyni við að skiptast á smákviðlingum, en slíkt truflaði á engan hátt kennsluna, nutum hennar ágæt- lega þrátt fyrir kveðskapinn. Sigurður var ágæta vel hag- mæltur og mátti ég því segja um hann: Að yrkja vísu er vinna ströng, svo vanda þarf til meðferðar. Þó duttu niður ljóðin löng og létt úr penna Sigurðar. Við Sigurður áttum líka ýmis samskipti utan skóla sem ánægja var að. Sigurður var skemmtilegur, hreinn og beinn, glaðlyndur, vænn drengur og vingóður hið bezta. Hann hafði einnig ljómandi söngrödd, var t.d. í Karlakórn- um Fóstbræðrum og lék ágæt- lega á hljóðfæri. Eftir kennara- prófið 1955 skildust leiðir um sinn. Sigurður fékk stöðu í Reykjavík, en ég fór að kenna úti á landi, en svo hittumst við aftur í Langholtsskóla eftir 1973. Þegar góður vinur hverfur verður eftir tómarúm – og þann- ig var það þegar Sigurður kvaddi. Ég samhryggist innilega eftirlifandi ástvinum hans og votta þeim samúð mína. Það er vissulega sárt þegar kær ástvin- ur kveður. Ég bið því góðan Guð að styðja og styrkja syrgjandi eiginkonu og aðra ástvini. Bless- uð sé minning Sigurðar Jóels- sonar. Björn G. Eiríksson. Leiðir okkar hjóna og Sigurð- ar lágu fyrst saman á ráðstefnu sem haldin var á vegum For- eldra- og styrktarfélags heyrn- ardaufra fyrir 45 árum í Reykja- vík. Þessari ráðstefnu var m.a. ætlað að kynna aðstæður heyrn- arlausra í samfélaginu til náms og atvinnuþátttöku sem var ekki vanþörf á á þessum tíma. Þessi ráðstefna var líka til að efla kynni og samstarf við félag heyrnarlausra. Sigurður og Jóna Sveinsdóttir, kona hans, voru þá mjög virk í Foreldrafélaginu og sameiginlegt happdrætti félag- anna gerði Félagi heyrnarlausra kleift að eignast sitt fyrsta hús- næði að Skólavörðustíg 21. Á þessum tíma áttum við Hervör mikið samstarf við ráðamenn Foreldrafélagsins og var ein- staklega ljúft að eiga kynni við þau hjón; Sigurð og Jónu alla tíð. Þar bar aldrei skugga á og er óhætt að segja að mörg fram- faraspor voru stigin á þessum árum heyrnarlausum til hags- bóta. Nokkrum árum síðar varð Jóna, kona Sigurðar formaður Öryrkjabandalags Íslands, sem m.a. stóð fyrir mikilli kynningu á ári fatlaðra sem skilaði sér vel til aðildarfélaganna. Árið 1981 gerðist Félag heyrnarlausra aðili að Öryrkjabandalaginu en þá var Sigurður einmitt formaður Foreldra- og styrktarfélags heyrnarlausra. Hann skrifaði um stefnumál og megináherslur fé- lagsins sem honum voru hug- leikin, í kynningarbæklingi orð- rétt: „Í lögum félagsins segir m.a. að auka verði kynni meðal foreldra heyrnarskertra barna og efla samstarf í þágu heyrn- arskertra á öllum aldri. Þá er bent á að kynna verði almenn- ingi mál er varða heyrnarskerta sérstaklega og styrkja beri starf Heyrnleysingjaskólans“. Fyrstu ár félagins var mest kapp lagt á að vinna stjórnvöld til fylgis við nýjan Heyrnleysingjaskóla. Var þessu máli fylgt fast eftir í góðri samvinnu við skólastjórn Heyrn- leysingaskólans. Skólinn flutti í nýju húsakynnin 12. febrúar 1971. Mörg baráttumál eiga enn við daginn í dag þó að skóla- málin séu með öðrum hætti en var. Við Hervör þökkum Sigurði áratuga samvinnu. Við sendum Jónu og Eddu og allri fjölskyld- unni hlýjar samúðarkveðjur Hervör Guðjónsdóttir, fyrrverandi formaður félags heyrnarlausra, og Guðmundur Egilsson. Hugurinn leitar til baka um áratugi, þegar kvaddur er kær skólabróðir. Kynnin hófust í Kennaraskóla Íslands veturinn 1952-53, hann þá í öðrum bekk, ég í fjórða. Hugþekkari og betri skólafélaga var varla unnt að hugsa sér, en við Ólafur vinur okkar Einarsson vorum einmitt að rifja upp þessi mætu kynni á dögunum.Við vorum nokkrir skólafélagar og vinir sem stofn- uðum innan skólans lítinn en samhentan hóp sem hafði það að markmiði að efla félagskennd okkar með upplestri, málefna- umræðu, ritgerðaflutningi og svo var lagið tekið af hjartans lyst. Honum Sigurði okkar Jóels- syni áttum við það að þakka að við gátum glatt geð okkar þann- ig. Hann settist við hljóðfærið og lék hvert sönglagið á fætur öðru og við reyndum allt hvað við gát- um að fylgja honum eftir. Sjálfur söng hann gjarnan með enda átti hann þá framundan mestan söngframa af okkur félögum sem hinn tónvísi söngvari Fóst- bræðra um áraraðir. Eftir próf fórum við hver sína leið, en við vissum alltaf af hvor öðrum. Og svo endurnýjuðust kynni okkar þegar ég átti farsæla samleið með eiginkonu hans, Jónu Sveinsdóttur, hjá Öryrkjabanda- laginu, þar sem heldur betur munaði um hennar atfylgi. Má þá ekki gleyma því hversu gíf- urlega mikið og fengsælt starf þau hjónin unnu fyrir málstað heyrnarskertra, ómetanlegt í raun. En umfram allt þá er minningin um hann Sigurð Jó- elsson frá mótunarárum sem og síðar ógleymanleg og í mikilli þökk fyrir allt er hann kært kvaddur um leið og hugheilar samúðarkveðjur eru sendar Jónu og öllu þeirra fólki. Þessum fáu línum fylgir kær samúðar- kveðja til hennar Jónu, mætrar samstarfskonu um árabil, og hennar fólks frá Ólafi Einarssyni Þar gekk drengur góður um göt- ur lífsins. Blessuð sé hin bjarta minning. Helgi Seljan. MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016 ✝ Lillian KristinSöberg Andr- ésson fæddist 25. september í Kaup- mannahöfn. Hún lést 3. júní 2016. Foreldrar henn- ar voru Þóra Svanhvít Gísla- dóttir, er fæddist á Íslandi 1898, og Sigurd Olsen Sö- berg, sem fæddist í Noregi 1895. Hálfbróðir hennar var Eiríkur Gíslason, alsystkini Sveinn, John og Ásta Söberg. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Sverrir Andrésson frá Þrándarholti í Gnúpverja- hreppi, f. 30. mars 1930. For- eldrar hans voru Andrés Sig- urðsson, f. 1900, og Halldóra Hansdóttir, f. 1905, stúpfaðir c. Irena, d. Karin, e. Oliver. 4. Þórir, f. 1956. 5. Bragi, f. 1958, eiginkona hans er Svava Davíðsdóttir, börn: a. Kristín Arna, b. Davíð Örn, c. Aron. 6. Linda, f. 1960, eigin- maður hennar er Sigurjón Reynisson, börn: a. Sverrir, kvæntur Karitas Ottesen, b. Sævar Ingi, c. Steinar. 7. Sæv- ar, f. 1963, eiginkona hans er Auður Svala Heiðarsdóttir, börn: a. Heiðrún Ósk, b. Birta Sif. 8. Inga Dóra, f. 1964, börn: a. Helga Lillian, b. Lena Rut, c. Helena, d. Linda. Barnabarnabörnin eru 20 talsins. Lillian var alin upp í Kaup- mannahöfn til 12 ára aldurs er hún fluttist til Íslands. Hún settist að á Selfossi með eig- inmanni sínum og bjó þar alla tíð, síðast til heimilis að Bakkatjörn 3. Lengst af vann hún í Sundhöll Selfoss. Hún lést eftir skamma dvöl á Ljósheimum á Selfossi. Út- för hennar verður gerð frá Selfosskirkju í dag, 10. júní 2016, klukkan 11. hans var Ingvar Jónsson, f. 1898. Lillian og Sverr- ir gengu í hjóna- band 25. febrúar 1956 og héldu á þessu ári upp á demantsbrúðkaup sitt. Börn: 1. Sig- urður Reynir, f. 1951, börn: a. Vernharður Reyn- ir, kvæntur Ingi- björgu Birgisdóttur, b. Þór- mundur, kvæntur Margréti B. Davíðsdóttur, c. Stefán Jökull, kvæntur Steinunni Skúladótt- ur, d. Christian, e. Lisa Katr- íne, f. Jakob. 2. Pia, f. 1952, eiginmaður hennar er Frank, börn: a. Bjarke, kvæntur Leu, b. Sidsel Kristin. 3. Sveinn, f. 1953, börn: a. Benedikt, b. Skarphéðinn kvæntur Rebecu, Í dag kveð ég yndislegustu manneskju sem ég hef kynnst. Þessi kona er mamma mín og á ég henni svo endalaust margt að þakka. Það var svo óskaplega gott að leita til hennar, hún átti alltaf til ráð við öllu. Það er svo margt sem hún kenndi mér um lífið og tilveruna, ég væri ekki sú manneskja sem ég er í dag ef ég hefði ekki átt hana að. Ég á margar góðar minningar úr æsku og oft minnist ég þess þegar mamma spilaði fyrir okk- ur gömlu góðu vínylplöturnar. Villi Vill og Svanhildur voru í miklu uppáhaldi hjá henni. Hún spilaði líka mikið danskar plötur og ég man að ég söng oft með hástöfum án þess að hafa hug- mynd um hvað textarnir þýddu. Mamma sönglaði mikið og var nánast alltaf flautandi. Hún kenndi mér ansi margt og þar á meðal að prjóna en ég hafði bara ekki þessa sömu þolinmæði og hún. Oftast endaði það nú svo að ég byrjaði á einhverri peysu og alltaf var það mamma sem kláraði hana. Ég á margar fallegar útprjónaðar peysur eft- ir hana, bæði sem hún prjónaði handa mér og einnig dætrum mínum. Það var alltaf stutt í húmorinn og góða skapið hjá mömmu. Hún var gædd þeim hæfileika að sjá alltaf björtu hliðarnar á öllu. Aldrei nokkurn tíma man ég eftir að hafa heyrt hana kvarta. Stundum þegar eitthvað var að hrjá hana þá átti hún það til að segja: „Það eru svo margir sem hafa það miklu verra en ég.“ Mamma hafði oft orð á því hvað hún væri heppin með af- komendur sína. Ég held að ég geti alveg verið sammála henni þar. Samheldnin í fjölskyldu okkar er mikil. Undanfarin ár höfum við systkinin, börn og makar alltaf reynt að hittast í vöfflukaffi hjá mömmu og pabba á hverjum föstudegi. Ég veit að þetta hef- ur gefið foreldrum okkar mikið og ekki síður okkur börnunum, tengdabörnum og barnabörn- um. Mamma var mjög heimakær og gátum við fjölskyldan alltaf gengið að henni vísri heima við. Hún var alltaf til staðar fyrir fólkið sitt, alltaf tilbúin að gefa af tíma sínum og spjalla við okk- ur um hvað það sem okkur lá á hjarta. Hjónaband þeirra mömmu og pabba var alveg óskaplega fallegt og einkenndist af mikilli virðingu og væntum- þykju. Ég naut þess að gera allt sem ég gat fyrir hana mömmu, hún kunni svo vel að meta það. Enda átti hún það sannarlega inni hjá mér eftir allt það sem hún gerði fyrir mig. Stóllinn sem þú sast svo oft í, ég horfi á hann oft á dag. Bara ég gæti fengið þig til baka þá myndi allt komast aftur í lag. Minningar um þig um huga minn reika, margar góðar eru í skjóðunni þar. Við áttum svo marga góða tíma. Já, mikið um gleði hjá okkur þá var. Ávallt gat ég til þín leitað, aldrei hunsaðir þú mig, reyndir alltaf mig að hugga. Ó, hve sárt er að missa þig! Þitt bros og þína gleði aldrei sé ég á ný. Ég vil bara ekki trúa að þitt líf sé fyrir bí. Ég vildi að við hefðum haft meiri tíma, þú og ég. Við áttum svo mikið eftir að segja. Ó, hvað veröldin er óútreiknanleg. Ég veit að þú munt yfir mér vaka, verða mér alltaf nær. Þú varst og ert alltaf mér best, elsku móðir mín kær. (Katrín Ruth) Ég kveð hana mömmu mína með sárum söknuði, en í hjarta mínu mun hún alltaf lifa. Inga Dóra Sverrisdóttir. Elsku mamma, Ljósið flæðir enn um ásýnd þína: yfir þínum luktu hvörmum skína sólir þær er sálu þinni frá sínum geislum stráðu veginn á. Myrkur dauðans megnar ekki að hylja mannlund þína, tryggð og fórnarvilja – eftir því sem hryggðin harðar slær hjarta þitt er brjóstum okkar nær. Innstu sveiflur óskastunda þinna ennþá má í húsi þínu finna, þangað mun hann sækja sálarró, sá er lengst að fegurð þeirra bjó. Börnin sem þú blessun vafðir þinni búa þér nú stað í vitund sinni: alla sína ævi geyma þar auðlegðina sem þeim gefin var. Þú ert áfram líf af okkar lífi: líkt og morgunblær um hugann svífi ilmi og svölun andar minning hver – athvarfið var stórt og bjart hjá þér. Allir sem þér unnu þakkir gjalda. Ástúð þinni handan blárra tjalda opið standi ódauðleikans svið. Andinn mikli gefi þér sinn frið. (Jóhannes úr Kötlum) Hvíldu í friði, elsku mamma mín, Minning þín lifir í hjörtum okkar. Þín Linda. Þá er hún farin hún mamma, kona sem ég bar mikla virðingu fyrir og leit alltaf upp til. Það er af nógu að taka úr minninga- bankanum þegar ég hugsa til baka. Alltaf var gott að kíkja í kaffi til mömmu og spjalla. Dýravinur var hún mikill og mátti ekkert illt sjá gagnvart dýrum. Ósjaldan komum við systkinin heim með vængbrot- inn fugl, kettlinga og fleiri dýr, allt var tekið í fóstur. Mikið var gott að þú leyfðir mér að vera hjá þér síðustu andartökin og að ég skuli hafa fengið að kveðja þig í hinsta sinn á afmælidaginn minn. Það verður tómlegt í föstu- dagskaffinu þegar þú verður ekki til staðar. Þín verður sárt saknað. Þinn sonur, Sævar Lillian tengdamamma er fall- in frá. Margar góðar og ljúfar minningar koma upp í hugann þegar horft er til baka, enda samfylgdin orðin rétt rúm 30 ár. Fljótlega eftir að ég kom inn í fjölskylduna á Eyrarveginum fann ég að við áttum ýmislegt sameiginlegt eins og til dæmis lestur góðra bóka. Endalaust gátum við rætt söguþráðinn í nýjustu bókinni hennar Camillu Läckberg, enda fannst okkur báðum þær endalaust spenn- andi. Lillian var vel lesin og las eiginlega allt á milli himins og jarðar, hún var vel upplýst og fylgdist vel með. Hún hafði skoðanir á hlutunum og stund- um var ekki hægt að snúa henni, sama hvað maður reyndi. Það var alltaf gott að koma í eldhúsið hjá tengdó, fá kaffi- bolla og ræða daginn og veginn, jafnvel dýpstu hjartans mál, því það var ekkert málefni sem ekki var hægt að ræða við Lillian. Veiðiferðirnar inn í Ljótapoll eru líka ógleymanlegar en þang- að brunaði öll fjölskyldan um hverja helgi á sumrin þar sem veiddur var silungur. Þar var Lillian, ættmóðirin, hrókur alls fagnaðar því hún hafði mikla kímnigáfu og sló á létta strengi. Þau hjónin, Sverr- ir og Lillian, voru dugleg við að kalla saman fjölskylduna og á hverjum föstudegi komu þeir sem voru lausir í kaffi og vöfflur í Bakkatjörn. Þetta eru dýr- mætar minningar sem gott er að eiga. Samheldni fjölskyld- unnar er einstök og ég er inni- lega þakklát fyrir að vera hluti af henni. Við áttum líka sameiginlegan áhuga á hundum en Lillian hef- ur alltaf átt hund. Tíkin mín hændist að Lillian og fannst gott að koma í föstudagskaffið á Bakka. Alltaf átti tengdó góðan bita handa henni og gott klapp. Lilli- an var einstök manneskja, tók alltaf upp hanskann fyrir þá sem minna máttu sín og aldrei man ég eftir að hún hafi hall- mælt nokkrum manni. Elsku Lillian, það er komið að kveðjustund. Ég vil þakka þér fyrir samfylgdina og tryggðina. Mikið eigum við öll eftir að sakna þín. Guð geymi þig. Þín tengdadóttir, Svava Davíðsdóttir. Það er svo margt sem kemur upp í hugann þegar við hugsum um elsku ömmu. Við eigum svo ótalmargar yndislegar minning- ar um hana. Það var t.d. svo gaman að hlusta á ömmu þegar hún var að segja sögur frá því hún var lítil stelpa og bjó í Kaupmannahöfn á stríðsárun- um. Hún hafði séð svo margt og gert svo margt. Hún var algjör ofuramma sem hafði meira að segja séð Hitler! Okkur fannst allt svo merkilegt og alveg ótrú- legt allt það sem hún hafði upp- lifað. Húmorinn var alltaf til staðar hjá henni og mikið sem við gátum oft hlegið með henni. Hún gerði líka óspart grín að sjálfri sér og mörg gullkorn eig- um við til eftir hana sem við höf- um svo oft flissað yfir. Amma var mikill dýravinur. Hún elskaði öll dýr og mest af öllu hundana sína. Það fengu alltaf allir hundar eitthvað gott að borða hjá henni þegar þeir komu í heimsókn. Hún átti líka stóra bók með öllum helstu hundategundum og gat hún lýst fyrir manni hverri einustu teg- und sem var í bókinni. Við systurnar ólumst upp við það að eiga bara eina ömmu en hún tók það hlutverk að sér að vera á við tvær og gerði það með miklum sóma. Það var allt- af svo gott að leita til hennar, hvort sem það var með hjálp í dönsku í skólanum, að fá góð ráð eða bara til þess að spjalla um daginn og veginn. Hún var gædd þeim eiginleikum að dæma aldrei nokkurn mann. Hún talaði ávallt fallega um alla og sá það góða í öllum. Hún sá jákvæðu hliðarnar á öllu og var svo þakklát fyrir allt sitt. Hún kenndi okkur svo ótal margt og hugsunarháttur hennar er eitt- hvað sem allir ættu að taka sér til fyrirmyndar. Við munum sannarlega reyna að tileinka okkur þá frábæru kosti sem hún hafði. Amma var líka sú manneskja sem hrósaði okkur óspart. Við fundum alltaf hvað hún var stolt af okkur, hvort sem það var í skólanum, fimleikum, fótbolta eða bara lífinu almennt. Hún vissi alltaf hvað við voru að gera og fylgdist auðvitað spennt með því öllu saman. Við erum óendanlega þakk- látar fyrir að hafa átt hana fyrir ömmu, betri ömmu er ekki hægt að hugsa sér. Takk fyrir allt, elsku amma, þú gerðir líf okkar sannarlega betra á allan hátt. Þín verður sárt saknað en minning þín mun lifa í hjörtum okkar alla tíð. Helga Lillian, Lena Rut, Linda og Helena Guðmundsdætur. Ég leit eina lilju í holti, hún lifði hjá steinum á mel. Svo blíð og svo björt og svo auðmjúk en blettinn sinn prýddi hún vel. (Þorsteinn Gíslason) Traust, fyndin, dýravinur, falleg að innan sem utan en fyrst og fremst góð amma eru orðin sem koma upp í hugann þegar ég hugsa um þig. Ófá voru spjöllin og stundirnar sem ég átti með þér og óteljandi minningar. Ég datt sko í lukku- pottinn þegar ég fékk þig sem ömmu! Þú varst fyrirmynd mín í einu og öllu og það var alltaf hægt að leita til þín með hvað sem er. Þakklát er ég fyrir að hafa setið þér við hlið þegar þú tókst síðustu andartökin. Elsku amma mín, það sem ég mun sakna þín. Þín, Heiðrún Ósk. Lillian Kristin Söberg Andrésson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.