Morgunblaðið - 10.06.2016, Side 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016
Smáauglýsingar
Dýrahald
Maltese hvolpar til sölu
3 maltese-rakkar, fæddir 08.04.2016
til sölu. Verða tilbúnir til afhendingar
17. júní 2016. Þeir verða með ættbók
frá HRFÍ, bólusettir, heilsuskoðaðir,
tryggðir hjá VÍS, örmerktir. Startpakki
fylgir einnig með. Fleiri upplýsingar
má fá í síma 8464221 eða e-mail
laudia92@hotmail.com
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Rotþrær-vatnsgeymar-
lindarbrunnar.
Rotþrær og siturlagnir.
Heildar lausnir - réttar lausnir.
Heitir Pottar.
Lífrænar skolphreinsistöðvar.
Borgarplast.is,
Mosfellsbæ, sími 561 2211
Iðnaðarmenn
Ýmislegt
TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ
AÐHALDSbuxur S,M,L,XL á
kr. 2.500,-
AÐHALDSbuxur í S,M,L,XL á
kr. 2.500,-
Laugavegi 178
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Sendum um allt land
Erum á Facebook.
Veiði
EM
- við leikum með
Höfðabakka 1, 110 Reykjavík
s. 555 6090 - www.heimavik.is
Í júní og júlí, meðan
íslendingar leika á
evrópumótinu, fylgir
aukaglaðningur hverju
seldu silunganeti
Bílar
Renault Traffic árg. 2006.
VSK bíll. Ekinn 160 þús. í góðu
ástandi til sölu.
Uppl. í s. 5444333 og 8201070.
Hjólbarðar
Matador heilsársdekk tilboð
215/70 R 16 kr. 21.990
235/60 R 18 kr. 31.890
255/55 R 18 kr. 33.100
255/50 R 19 kr. 38.900
275/40 R 20 kr. 49.900
Framleidd af Continental í Slóvakíu
Frábær dekk á góðu verði
Kaldasel ehf., dekkjaverkstæði
Dalvegur 16 b, 201 Kópavogur
s. 5444333
✝ IngibjörgSveinsdóttir
fæddist á Ósabakka
á Skeiðum 6. ágúst
1933. Hún lést á
Landakoti 3. júní
2016.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Auð-
björg Káradóttir
frá Ósabakka á
Skeiðum, f. 20. júní
1899, d. 1988, og
Sveinn Gestsson frá Húsatóftum
á Skeiðum, f. 31. ágúst 1890, d
1964.
Ingibjörg átti tíu systkini og
eru þau Lilja Sveinsdóttir, f.
20.3. 1922, d. 21.8. 1943, Guð-
mundur Sveinsson, f. 12.2. 1923,
d. 3.4. 2011, Kristín Sveins-
dóttir, f. 14.2. 1924, d. 12.2.
2015, Kári Sveinsson, f. 14.7.
1925, d. 12.5. 1997, Helgi Sveins-
son, f. 18.2. 1928, d. 8.9. 2015,
Valgerður Sveinsdóttir, f. 12.7.
1929, d. 27.8. 2003, Guðrún
Sveinsdóttir, f. 6.3. 1931, Skarp-
héðinn Sveinsson, f. 5.10. 1934,
Bjarni Sveinsson, f. 29.11. 1939,
Reyni Stefánsson, f. 5.6. 1998,
og Arngrím Stefánsson, f. 16.5.
2003. Sveinn Arngrímsson, f.
18.1. 1969, kvæntur Elísabetu
Ingu Marteinsdóttur, f. 21.1.
1979.
Sveinn á tvö börn frá fyrra
hjónabandi, Stefni Sveinsson, f.
31.1. 1994, og Areyju Ingibjörgu
Sveinsdóttur, f. 12.11. 2003, og
með Elísabetu Martein Elí
Sveinsson, f. 16.3. 2011. Elísabet
á Gyðu Stefaníu Halldórsdóttur,
f. 6.5. 2002, úr fyrra sambandi.
Auðbjörg Arngrímsdóttir, f.
31.7. 1970. Auðbjörg á Köru
Guðmundsdóttur, f. 6.4. 1993.
Ingibjörg ólst upp á Ósa-
bakka á Skeiðum. Hún gekk
fyrst í Brautarholtsskóla á
Skeiðum, en svo fór hún í gagn-
fræðanám við Laugarvatns-
skóla. Að loknu náminu fluttist
hún til Reykjavíkur og vann þar
á saumastofu. Einnig bjó hún
um skeið í Danmörku og vann
við sömu iðn þar. Eftir að heim
var komið vann hún við ört
stækkandi heimili sitt í Reykja-
vík meðan börnin uxu úr grasi.
Um nokkurra ára skeið vann
hún við skrifstofustörf hjá RA-
RIK. Hún hafði gaman af hand-
iðn og málaði sem og skar út fal-
lega muni. Útför hennar fer
fram frá Bústaðakirkju í dag,
10. júní 2016, klukkan 15.
d. 8.4. 2016, og Haf-
liði Sveinsson, f.
20.6. 1944.
Ingibjörg giftist
Arngrími Marteins-
syni þann 9. apríl
1960. Eignuðust
þau eftirtalin börn:
Kári Arn-
grímsson, f. 3.1.
1960, kvæntur
Birnu Káradóttur,
f. 16.7. 1961. Þau
eiga þrjú börn, Írisi Káradóttur,
f. 10.4. 1989, Hörpu Káradóttur,
f. 9.11. 1991, og Birki Kárason,
f. 7.10. 1995. Birna á Óskar
Gísla Sveinsson, f. 15.3. 1981, úr
fyrra sambandi.
Reynir Arngrímsson, f. 15.3.
1961, kvæntur Nönnu Maju
Norðdahl, f. 3.7. 1968.
Reynir á þrjú börn, Arnar
Inga Reynisson, f. 20.9. 1986,
Hauk Hannes Reynisson, f. 27.9.
1990, og Helenu Reynisdóttur, f.
9.3. 1994.
Kara Arngrímsdóttir, f. 26.9.
1964, gift Stefáni Guðleifssyni,
f. 5.7. 1963. Þau eiga tvö börn,
Stundum kynnist maður fólki í
lífinu sem gerir mann að betri
manneskju. Fyrir 29 árum
kynntist ég Ingibjörgu Sveins-
dóttur, tengdamóður minni. Þá
var ég einstæð móðir sem var svo
heppin að hitta Kára son hennar.
Ingibjörg tók mér opnum örmum
og urðum við strax perluvinkon-
ur, í okkar tilfelli skipti aldur ekki
máli. Þegar Kári fór utan í nám
komum við Óskar reglulega í
heimsókn til vinkonu minnar og
tengdamóður og var okkur oft
boðið að borða með þeim slátur.
Óskari þótti slátur það besta sem
hann fékk og Ingibjörg passaði
alltaf upp á að eiga uppáhalds-
matinn hans. Ingibjörg var hóg-
vær og nægjusöm kona og alltaf
stutt í brosið. Það þurfti svo lítið
til að elskuleg tengdamóðir mín
ljómaði af gleði, bara að láta sjá
sig. Við sátum oft lengi að spjalli
um börnin hennar sem hún var
svo stolt af, sveitina hennar sem
var henni svo kær, húsið hennar
og garðinn sem hún var svo
ánægð með eða baráttu kvenna
fyrir jafnrétti, sem var hennar
hjartans mál. Ingibjörg talaði
mikið um hvað henni þótti sárt að
hafa ekki getað menntað sig svo
hún lagði sig alla fram við að
börnin hennar fengju tækifæri til
menntunar.
Það var hennar stolt og gleði
þegar það gekk upp hjá þeim öll-
um. Það skemmtilegasta sem
Ingibjörg gerði var að dansa og
henni þótti ekki slæmt að dætur
hennar fóru í þá átt. Það má eig-
inlega segja að fjölskyldan hafi
verið dansfjölskylda og þó að
hæfileikarnir væru mismunandi á
milli systkina fannst öllum gam-
an í dansi og eins og tengdafaðir
minn sagði oft. Dansinn er lík-
amsrækt og dansinn lengir lífið.
Ingibjörg og Arngrímur fóru eins
oft og þau gátu austur fyrir fjall í
sveitina hennar á Ósabakka á
Skeiðum. Þar átti hún hlut í sælu-
reit í risinu þar sem hún ólst upp
og gat hitt fjölskyldu og vini í
sveitinni kæru. Ingibjörg og Arn-
grímur voru líka í hljómsveit sem
heitir Vinabandið. Þegar það
vantaði trommara í Vinabandið
hélt Ingibjörg nú að hún gæti
spilað á trommur, konur geta allt
sem þær vilja sagði hún alltaf,
þær verða bara að fá tækifæri.
Arngrímur spilaði á harmonikku
og Ingibjörg spilaði á trommurn-
ar.
Þau voru ófá skiptin sem þau
hresstu upp á lífið fyrir eldri
borgara í Fríðuhúsi og fleiri stöð-
um eins og á Landakoti, þar sem
Ingibjörg dvaldi síðustu dagana
sína. Þegar Ingibjörg var sextug
tók fjölskyldan sig saman og gaf
henni trommusett í afmælisgjöf.
Á þetta trommusett spilaði Ingi-
björg þar til rétt áður en hún féll
frá.
Ég er svo þakklát fyrir að hafa
kynnst Ingibjörgu því að betri og
yndislegri manneskja er vand-
fundin. Þakklát fyrir tímann sem
við öll áttum með henni og þakk-
lát fyrir að hún gerði okkur öll að
betri manneskjum af því að hún
var eins og hún var.
Birna Óskarsdóttir.
Ingibjörg
Sveinsdóttir
Í dag er æskuvin-
kona mín kvödd,
Helga Torfadóttir.
Tólf ára gömul fór
ég til Siglufjarðar til
þess að vera þar í vist um sum-
arið. Þá kynnist ég Helgu, þessari
fallegu og skemmtilegu stelpu.
Síðan skildi leiðir og við höfð-
um ekkert samband í mörg ár.
Einn daginn hringir dyrabjallan
hjá mér og úti stendur kona með
lítinn strák og segir: „Komdu
blessuð og sæl, ég heiti Helga
Torfadóttir.“ Hún var þá nýflutt
til Akureyrar ásamt eiginmanni
sínum, Matthíasi Guðmundssyni,
sem þá var ráðinn útibússtjóri
Útvegsbankans. Þar með endur-
nýjuðum við okkar gömlu kynni.
Helga var mikil félagsvera, var
í stjórn Málfreyjufélagsins Rún-
ars og stofnaði gönguklúbb. Þeg-
ar ég var formaður Félags eldri
borgara þá var hún formaður
ferðanefndar og skipulagði og fór
í margar ferðir á vegum félagsins.
Í einni slíkri tilkynnti Helga að
Helga Torfadóttir
✝ Helga Torfa-dóttir fæddist
26. febrúar 1926.
Hún lést 31. maí
2016.
Útför Helgu fór
fram 7. júní 2016.
hún ætlaði að flytja
til Reykjavíkur, þá
varð þessi vísa til:
Illa fregn er illt að fá
eins og dæmin sýna.
Helga ekki missast má,
mun þá gleðin dvína.
Margar voru
ferðirnar sem við
Helga fórum ásamt
vinkonu okkar Ás-
dísi Árnadóttur. Að
hittast eftir á, rifja upp, skoða
myndir og hlæja saman voru dýr-
mætar stundir. Í einni utanlands-
ferðinni kynntist hún sambýlis-
manni sínum, Garðari
Guðmundssyni frá Ólafsfirði. Þar
kynnist hún hans ágætu fjöl-
skyldu og átti með þeim mörg góð
ár.
Helga var frábær leiðtogi, sem
átti auðvelt með að virkja fólk
með sér.
Ég kveð mína kæru vinkonu
með virðingu og þökk fyrir allar
góðar samverustundir.
Sendi öllum ættingjum Helgu
innilegar samúðarkveðjur.
Björg Finnbogadóttir
(Bella).
Fyrstu minningar um Helgu,
frænku mína, eru frá því hún var
líklega um tólf eða þrettán ára
gömul, ég er fimm árum yngri.
Hún hafði fengið að gjöf litla elda-
vél og gat varla beðið eftir að nota
hana.
Býður hún Rúnu, systur minni,
og mér upp í fjallið sem var rétt
fyrir ofan húsið okkar á Hlíðar-
veginum á Siglufirði. Það var boð-
ið upp a hafragraut og kakó.
Þetta var svo spennandi fyrir
okkur systurnar. Þegar Helga
var búin að velja stað fyrir elda-
vélina þá tók hún upp litla pokann
með góðgætinu. Vatn og hafra-
mjöl var sett í lítinn pott og kakó,
sykur og vatn í annan. Næst setti
hún dagblöð inn í vélina og
kveikti í, það kom þessi svaka
reykur sem við áttum ekki von á.
Helga lét það ekkert á sig fá, hélt
áfram að elda og gaf okkur á
litlum diskum. Maturinn smakk-
aðist bara vel, sérstaklega kakóið.
Hún kallaði okkur litlu frænkurn-
ar sínar. Annað atvik kemur mér í
hug sem lýsir Helgu vel. Einn
dag fór ég að heimsækja þær
mæðgurnar, Helgu og mömmu
hennar Dísu, sem var systir Auð-
ar mömmu minnar. Við vorum
bara þrjár í húsinu og sátum við
líklega yfir klukkustund meðan
Helga reytti af sér brandara. Ég
man ekki um hvað hún talaði en
líklega hefur það verið um ná-
grannana eða hvernig mamma
hennar hristist þegar hún hló.
Hún sá spaugilegu hliðar tilver-
unnar og sagði vel frá. Helga var
alltaf hress og kát. Við hlógum vel
og lengi.
Helga var sérstaklega glæsileg
sem ung stúlka og kona með ljóst
hár, allt í krullum. Það var veru-
lega ánægjulegt að vera í návist
hennar. Siglufjörður var yndis-
legur staður að alast upp á, enda
talaði hún oft um það. Helga gaf
mjög góða lýsingu á bæjarlífinu á
Siglufirði í erindi hjá Toastmas-
ters, þar sem hún var meðlimur.
Yfir sumarið fylltist þessi litli bær
af fólki frá öllum hlutum landsins.
Síldin var í hámarki á þessum ár-
um. Á veturna voru stundaðar
skíðaíþróttir og svo komu blessuð
jólin sem voru alltaf tilhlökkunar-
efni, því allir í stórfjölskyldunni
hittust í matarveislum hvert hjá
öðru. Ekki má gleyma kirkju-
klukkunum sem hringdu inn há-
tíðina klukkan sex á aðfangadag á
hverju ári. Var hægt að heyra í
þeim yfir allan fjörðinn. Svo gift-
ist Helga og flutti til Reykjavíkur.
Okkar leiðir lágu aftur saman
þegar ég fluttist til Reykjavíkur.
Alltaf var opið hús hjá Helgu og
Matthíasi. Litla fjölskyldan mín
var á hverjum jólum hjá þeim á
meðan við bjuggum á Íslandi.
Okkar innilegustu þakkir fyrir
þann yndislega tíma.
Það var alltaf ljós í kringum
Helgu og nú er hún komin í eilífð-
arljósið, tími hennar hér á þessari
jörð er búinn. Sjáumst, Helga
mín.
Sigþóra (Tóta) og Ed.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður,
„Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einn-
ig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skila-
frestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu
ekki lengri en 3.000 slög. Ekki
er unnt að senda lengri grein.
Lengri greinar eru eingöngu
birtar á vefnum. Hægt er að
senda örstutta kveðju,
en ekki í minningargreinunum.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa not-
uð með minningargrein nema
beðið sé um annað. Ef nota á
nýja mynd skal senda hana með
æviágripi í innsendikerfinu.
Hafi æviágrip þegar verið sent
er ráðlegt að senda myndina á
netfangið minning@mbl.is og
láta umsjónarmenn minning-
argreina vita.
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur.
Ekki er unnt að tengja viðhengi
við síðuna.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar
koma fram upplýsingar um
hvar og hvenær sá sem fjallað
er um fæddist, hvar og hvenær
hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram.
Þar mega einnig koma fram
upplýsingar um foreldra, systk-
ini, maka og börn. Ætlast er til
að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður,
Minningargreinar