Morgunblaðið - 10.06.2016, Síða 41

Morgunblaðið - 10.06.2016, Síða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016 » Tíunda sumarið í röð ferðast LeikhópurinnLotta um land allt til að gleðja barnafjölskyldur. Sýning sumarsins heitir Litaland og kemur úr smiðju Önnu Bergljótar Thorarensen, en leikstjóri er Stefán Benedikt Vilhelmsson. Sýningarplan má sjá á vefnum leikhopurinnlotta.is, en lokasýningin verður í Elliðaárdalnum miðvikudaginn 17. ágúst. Leikhópurinn Lotta fagnar 10 ára starfsafmæli með leiksýningunni Litaland Morgunblaðið/Eggert Farandleikarar Gulverjarnir Sigsteinn Sigurbergsson, Baldur Ragnarsson og Anna Bergljót Thorarensen skemmta barnafjölskyldum um allt land í sunar. Litagleði Baldur Ragnarsson og Andrea Ösp Karlsdóttir í hlutverkum sín- um sem Geisli og Bál, en litirnir þurfa að læra að lifa í sátt og samlyndi. Afmælissöngur Áhorfendur sungu afmælissönginn fyrir Lottu sem fagnar tíu ára starfsafmæli sínu þetta sumarið og töldu árin á fingrum sér. Ásta Guðmundsdóttir opnar sýn- inguna Náttúru afl í Flóru á Akur- eyri í dag kl. 17. Ásta nam fata- hönnun í Þýskalandi og útskrifaðist þaðan frá Fachhochschule fur Ges- taltung Pforzheim árið 1990. Jafn- framt því að framleiða föt undir eigin fatamerki, Ásta créative clot- hes, hefur áhugi Ástu lengi beinst að listsköpun, m.a. innsetningum og skúlptúrum og notar hún gjarn- an textíl í verkum sínum. Verkin eru oft undir áhrifum frá náttúru og veðurfari og verklagið byggist á arfleifð forfeðra Ástu sem störfuðu við netagerð og sjómennsku. Í Flóru Hluti verks eftir Ástu. Áhrif frá náttúru og veðurfari Fjöllistakonan Berglind Ágústs- dóttir opnar einkasýninguna Dream Lover í Ekkisens í dag kl. 17. Hún hefur undanfarið gert tilraunir með skúlptúra sem unnir eru í gifs sem og gert myndbönd við tónlist af plötu sinni Just Dance. Hún mun sýna skúlp- túra, teikningar og vídeóverk auk þess að vinna ný verk á sýningar- tímanum og gera tilraunaútvarp. Dream Lover í Ekkisens Berglind Ágústsdóttir Rokksveitin Nykur mun leika vel valin lög af tveimur breiðskífum sínum, Nykur og Nykur II, á tón- leikum í Kaldalóni í Hörpu í kvöld kl. 20. „Verður öllu tjaldað til frum- samin lög með grimmum gítarriff- um fá að njóta sín, ofin saman við ágengar laglínur sem innihalda bitastæða texta á máli innfæddra,“ segir í tilkynningu frá sveitinni. Hljómsveitina Nykur skipa Davíð Þór Hlinason, Guðmundur Jónsson, Kristján B. Heiðarsson og Jón Svanur Sveinsson. Hljómsveitin var stofnuð 2013 og er önnur breiðskífa hennar nýkomin út sem tónlistar- blaðamaðurinn Arnar Eggert Thoroddsen sagði rokka skrambi vel, í umfjöllun á Rás 2. Rokkarar Hljómsveitin Nykur. Öllu tjaldað til hjá Nykri í Kaldalóni CURCUMIN Gullkryddið Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður, Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla. Steinunn Kristjánsdóttir er sjúkraliði að mennt og starfar í Blue Lagoon versluninni á Laugavegi. Hún hefur átt við mikla verki að stríða um allann líkama í yfir 25 ár eftir að hún lenti í slæmu bílslysi og er komin með liðagigt. „Ég er búin að taka inn minn skammt af verkjalyfjum og var alveg að gefast upp á þeim. Nuddkonan mín sagði mér þá frá Curcumin sem hefur í sannleika sagt gefið mér nýtt líf. Ég var búin að taka inn Curcumin í einn og hálfan mánuð þegar égmissti út fjóra daga og það var þá sem ég uppgötvaði að Curcumin er það sem hjálpar mér að losna við alla verki.” LIÐIR – BÓLGUR – GIGT Nánar á balsam.is Bætt heilsa og betri líðan með Natural Health Labs 100% náttúruleg bætiefni THE NICE GUYS 8, 10:30 FLORENCE FOSTER JENKINS 5, 8 WARCRAFT 5, 8, 10:30 ANGRY BIRDS ÍSL.TAL 3:50 BAD NEIGHBORS 2 10:20 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar TILBOÐ KL 5 TILBOÐ KL 5 TILBOÐ KL 3:50

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.