Morgunblaðið - 26.07.2016, Page 25

Morgunblaðið - 26.07.2016, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2016 Atvinnuauglýsingar Vélavörður og háseti Vísir hf óskar eftir vélaverði til afleysinga í einn túr í byrjun ágúst á Pál Jónsson GK 7 sem veiðir með línu. Einnig vantar vanan háseta til framtíðar. Upplýsingar gefur skipstjóri í síma 856 5765. Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir Fundarboð Aðal hluthafafundur Seljalax hf. fyrir árin 2014 og 2015 verður haldinn Í Skúlagarði föstu- daginn 29.júlí 2016 kl. 15.00 Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins. Stjórn Seljalax hf. Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 MS fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Garðabær Bútasaumur kl. 13, Bónusrúta kl. 14.45, heitt á könnunni í Jónshúsi frá kl. 9.30, meðlæti selt með síðdegiskaffinu frá kl. 14-15.50 Gjábakki Handavinna kl. 9. Gullsmári Myndlist kl. 9, ganga kl. 10, kanasta kl. 13. Hárgreiðslu- stofa og fótaaðgerðastofa á staðnum. Allir velkomnir! Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30. Kaffi kl. 14.30, fótaaðgerðir, hársnyrting. Pútt- völlurinn er opinn á opnunatíma stöðvarinnar. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upp- lestur kl. 11, ganga með starfsmanni kl. 14. Upplýsingar í s. 411 2760. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlaug Seltjarnarness kl. 7.15. Kaffi- spjall í króknum kl. 10.30. Botsía í Gróttusal kl. 13.30. Vitatorg Spilum félagsvist í dag. Allir eru velkomnir. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Færir þér fréttirnar mbl.is ✝ HartmannJónsson (Manni) fæddist á Siglufirði 1. nóv- ember 1933. Hann lést á Siglufirði 15. júlí 2016. Foreldrar Hart- manns voru Jón Daníelsson, f. 6.8. 1901, d. 31.8. 1991, og Ástríður Jóns- dóttir, f. 26.2. 1915, d. 2.6. 1962. Systur hans voru fjórar. Þær Ásta sem er búsett í Ameríku, Björk sem býr í Danmörk og Rúna og Eva, látnar. Eiginkona Hartmanns var Sveinbjörg Helgadóttir, f. 30.1. 1931, d. 22.9. 1995. Börn Hart- manns og Sveinbjargar eru: Ás- laug Hartmanns- dóttir, f. 1958, gift Ingvari Stef- ánssyni. Hrafnhild- ur Hartmanns- dóttir, f. 1960, gift Þorkeli Svarfdal Hilmarssyni. Ást- ríður Hartmanns- dóttir, f. 1962, gift Ingólfi Jóni Magn- ússyni. Daníel Rafn Hartmannsson, f. 1966. Hartmann bjó í Kópavogi, fyrst á Mánabrautinni og svo í Hamraborginni. Hann starfaði lengst af hjá Vegagerð ríkisins. Útför Hartmanns fer fram frá Digraneskirkju í dag, 26. júlí 2016, og hefst athöfnin klukkan 13. Hann tengdafaðir minn, Hart- mann Jónsson, fór sínar eigin leiðir í lífinu. Hann var mjög fast- ur á sínu, það þýddi nú lítið að þrasa við hann, maður laut alltaf í lægra haldi þar, hann hafði alltaf sínar skoðanir á hlutunum. Hann var mjög hjálpsamur og ef mann vantaði eitthvað þá var hann fljótur að redda því. Eitt sinn er ég hafði orð á því að ég þyrfti að skipta út borðinu í húsbílnum sagði hann: „Ég skal athuga það.“ Það þýddi að hann var farinn á fullt að leita að því og það liðu ekki margar klukku- stundir uns hann kom með borðið og sagði að hann hefði fundið það hjá vini sínum og ég gæti fengið það fyrir sanngjarnan aur. Hann átti fjölmarga vini sem hann var daglegur gestur hjá og voru greiðviknir eins og hann. Hann fylgdist vel með öllum í kringum sig, spurðist alltaf fyrir um barnabörnin og vildi vita hvað væri í vændum. Hann var bílstjóri af lífi og sál og átti vegina út af fyrir sig. Hans daglegi rúntur var um höfnina í Kópavogi og Hafnar- firði. Ferðalög voru hans yndi, en seinni árin fór hann þó aðallega innanlands á húsbílnum sínum að veiða í Þórisvatni eða Straum- firði og reglulega til Siglufjarðar þar sem hans heimaslóðir voru og þar var hann einmitt staddur er hann lést. Tendamóðir mín, Sveinbjörg Helgadóttir, lést 22. september 1995. Hvíl í friði. Þorkell Svarfdal Hilmarsson. Hartmann Jónsson ✝ Rósa fæddist íÖxarfirði 25. desember 1918. Hún lést á Dvalarheim- ilinu Grund 15. júlí 2016. Foreldrar hennar voru Guðríður Ein- arsdóttir, fædd 16. mars 1885, og Gunnar Jónsson, fæddur 17. júní 1885. Systkini Rósu voru Lára, fædd 26. september 1912, Einar, fæddur 20. júlí 1922, Bergljót, fædd 28. júní 1924, og Hörður, fæddur 26. júlí 1928. Þau eru öll látin. Rósa ólst upp í Akurseli, Öxarfirði ásamt systkinum sín- um. Um tvítugsaldur fór hún í Húsmæðraskólann að Lauga- landi og var til heimilis eftir það í Reykjavík. Rósa eignaðist eina dóttur, Gígju Árna- dóttur, og bjuggu þær, ásamt móður hennar og systk- inum, að Haðarstíg 8 þar til móðir hennar lést 1953. Eftir það bjó Rósa á ýmsum stöðum en lengst þó í Álfta- mýri 32. Síðustu ár- in bjó hún í Furugerði 1. Rósa starfaði í 47 ár á Landssíma Ís- lands. Í upphafi á langlínumið- stöð en síðar í upplýsingum um símanúmer. Síðustu 10 starfs- árin starfaði hún á skrifstofu bæjarsímans. Útför Rósu fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 26. júlí 2016, klukkan 13. Það var eitthvað fallegt við að amma kvaddi okkur á miðju sumri í litlu herbergi við Hring- brautina. Síðustu mánuðir voru ömmu erfiðir og hún hvíldinni fegnust allra. Það eru þó blendnar tilfinningar sem fylgja fráfalli hennar, þakklæti fyrir það að hún er komin á góðan og öruggan stað en ákveðinn tregi hjá okkur sem eftir sitjum. Amma var stórbrotinn per- sónuleiki og átti merkilegt lífs- hlaup. Við sem eftir lifum höfum lært svo margt af henni. Amma er síðust af systkinum sínum að yfirgefa þennan heim og með henni fer kynslóð af fólki sem bjó yfir mikilli þrautseigju og styrk. Hún lifði svo sannarlega tím- ana tvenna og líf hennar var oft á tíðum erfitt. Amma var næst- elst fimm systkina og bar ábyrgð eftir því á sínum yngri árum, sérstaklega í kjölfar þess að faðir hennar lést. Hún var einstæð móðir á stríðsárunum, vinnukona á heimilum efnaðs fólks, íbúðarkaupandi í Reykja- vík þegar konur voru ekki vel- komnar til bankastjóra, talsíma- kona til margra ára, dóttir, systir, móðir, vinkona, nágranni, tengdamóðir, amma og langamma. Lífsreynslan gerði það að verkum að amma var oft hörð af sér og við sem stóðum henni næst fundum auðvitað fyrir því. En þó svo að áskoranirnar mörkuðu ömmu er það kærleik- urinn sem hún bjó yfir í miklu magni sem situr eftir. Enda er hann ávallt sterkari. Hugrekkið sem hún hafði virtist vera óþrjótandi og það er veganesti sem við afkomendur hennar get- um tekið með okkur í gegnum lífið. Á svona stórum tímamótum er hjartað barmafullt af þakk- læti, fyrir stuðning ömmu og klapp á bakið þegar á reyndi. Nú þarf að hugsa lífið einhvern veginn upp á nýtt, án ömmu. Hvíl í friði. Björg Hjartardóttir. Rósa Gunnarsdóttir ✝ Ingibjörg Sig-ríður Jónsdótt- ir fæddist 11. ágúst 1930 á Gestsstöðum í Kirkjubólshreppi. Hún lést 15. júlí 2016 í Brákarhlíð í Borgarnesi. Foreldrar Ingi- bjargar voru Jón Bjarni Jónsson frá Heydalsá, f. 4.7. 1907, d. 3.4. 2001, og Kristín Branddís Aðalsteins- dóttir frá Krossi á Skarðs- strönd, f. 12.7. 1906, d. 27.9. 1997. Ingibjörg átti þrjú systk- ini, Guðjón, f. 6.12. 1931, d. 30.5. 2010, Sólveigu, f. 3.8. 1934, gift Braga Guðbrandssyni, og Ragn- heiði Guðbjörgu Jónsdóttur, f. 13.3.1948. Ingibjörg giftist eftirlifandi eiginmanni sínum, Hauki Svein- björnssyni, f. 6.2. 1932, þann 19.6. 1971, þau eignuðust eina dóttur, Branddísi Margréti, f. 28.9. 1972. Eiginmaður hennar er Kristján Ágúst Magnússon, f. 1.8. 1972. Börn þeirra eru Magnús, Ingibjörg Jóhanna, Kristín Ósk (and- vana fædd) og Frið- jón Haukur. Ingibjörg ólst upp á Gestsstöðum til tvítugs en fór þá í Húsmæðraskól- ann á Blönduósi einn vetur og tók eftir það við heim- ilinu á Gestsstöðum í veikindum móður sinnar. Á árunum milli 1950 og 1960 réð hún sig sem ráðskonu í Bændaskólann á Hvanneyri, þar sem hún var í u.þ.b. tvö ár og þar á eftir vann hún á Hesti þar sem hún kynnt- ist eftirlifandi eiginmanni sín- um. Ingibjörg og Haukur bjuggu allan sinn búskap á Snorrastöðum í Kolbeinsstað- arhreppi en fluttu í Borgarnes árið 2011. Ingibjörg Sigríður verður jarðsungin frá Borgarneskirkju í dag, 26. júlí 2016, klukkan 13. Mér fannst gaman þegar amma las fyrir mig. Og mér fannst líka gaman að fara í heimsókn til ömmu og afa og fá að gista í hol- unni. Stundum þegar ég var í heimsókn hjá ömmu fórum við í klukk og svo spiluðum við líka oft. Amma var svo góð við mig og alla sem komu til hennar. Elsku amma, ég sakna þín mik- ið og vildi að þú værir ennþá lif- andi en ég veit að nú ert þú komin á góðan stað og líður vel. Þinn Friðjón Haukur. Það eru orð eins og þolinmæði og æðruleysi sem koma mér fyrst í hug þegar ég minnist Ingu mág- konu minnar. Fleiri orð á greinum af sama stofni eru lýsandi fyrir þessa vönduðu konu því hún var umburðarlynd og umtalsfróm, lágvær og lítillát, hæglát og hóg- vær. Sjálf var hún af sterkum stofni Strandamanna, steig sín fyrstu skref á Gestsstöðum á Ströndum. Hún starfaði alla tíð við bústörf og heimilishald og kunni vel til þeirra verka. Þess varð eg fljótt áskynja eftir að Haukur bróðir minn og Inga giftu sig og hún flutti að Snorrastöðum. Í heimsóknum mínum á ættar- óðalið Snorrastaði, þar sem alltaf hefur verið gestkvæmt, dáðist ég oft að því hvernig Inga tókst á við þau verk sem þurfti að vinna. Búið var stórt, þar var byggt og ræktað, svo bættist ferðaþjónust- an við. Margir áttu líka erindi við Hauk, því hann gegndi ýmsum ábyrgðarstörfum fyrir byggðalag- ið og vegna þess var hann einnig talsvert að heiman. Á meðan þurfti húsmóðirin að sjá um bú- skapinn úti og inni og vinna verk- in. Verkin hennar Ingu sjáum við ekki á söfnum og þau hanga hvergi í sýningarsölum því verk eins og hún vann hafa tilhneigingu til að skolast einhvern veginn í burtu að vinnudegi loknum. En við sem þekktum Ingu vitum þó vel hvað hún lagði til sinna verka, var lagin við búfénaðinn og vel- viljuð í allri umönnun. Hún var ekkert að fjargviðrast yfir hlutunum og fljót að bera fram veitingar fyrir gesti og gang- andi. Þegar ég hrósaði henni fyrir það, trúði hún mér fyrir því að sér þætti samt miklu meira gaman að vera útivið og sinna skepnunum. Mest þótti henni þó gaman að fara á hestbak. Það var einmitt það sem við ræddum í síðasta skipti sem ég sá Ingu á dvalar- heimilinu í Borgarnesi þar sem hún var síðustu vikurnar. Við töl- uðum um gamla tíma og vorum sammála um hvað það var gaman að fara á hestbak. Hún sagði að ekkert jafnaðist á við að vera á taumléttum og góðum töltara. En skyldustörfin í sveitinni tóku sinn tíma þannig að það sem henni fannst mest gaman þurfti oft að víkja. Ég kveð Ingu með þakklæti fyrir samfylgdina, bið henni bless- unar á nýjum slóðum og sé hana fyrir mér á taumléttum töltara, þar sem skyldustörfin víkja fyrir því sem okkur finnst mest gaman. Guð styrki og styðji Hauk, Dísu Möggu, Stjána, Magnús, Ingi- björgu Jóhönnu og Friðjón Hauk. Elísabet J. Sveinbjörnsdóttir. Þeim fer nú ört fækkandi sem fæddir eru á millistríðsárunum enda yfir sjötíu ár frá því seinni heimsstyrjöldinni lauk. Sú er kvaddi nýlega þennan heim hét fullu nafni Ingibjörg Sigríður og faðir hennar Jón Bjarni. Ég kall- aði þessa góðu konu Siggu Bjarna þótt flestir aðrir kölluðu hana Ingu. Siggu Bjarna hef ég þekkt per- sónulega í hartnær tvo áratugi en Hauk, mann hennar, öllu lengur. Þær eru orðnar æði margar mat- arveislurnar sem ég og fleiri hafa orðið aðnjótandi hjá Siggu Bjarna en hjá henni var aldrei annað en góðgæti í boði. Fyrsta stórveislan var fyrir aldamótin þegar við Jón félagi okkar Einarsson, nú látinn, fórum með Hauki bónda á Snorra- stöðum í fjárréttir. Að þeim lokn- um, þegar við komum að Snorra- stöðum, var Sigga Bjarna með hlaðið borð af vel feitu lambakjöti, kjötsúpu með öllu tilheyrandi eins og íslenskum valkyrjum er einum lagið. Við matarborðið voru heimsmálin rædd og leyst. Annað matarkyns, sem Sigga Bjarna var töframanneskja í, var saltað selkjöt sem hún verkaði með sínu lagi, meðlætið eins og best verður á kosið og svo upp- stúfurinn hennar. Ákveðinni klíku var eingöngu boðið í þessar veisl- ur og ég fékk að fljóta með. Fyrir allt þetta, og svo margt annað, á þessi prúða og látlausa kona allar mínar þakkir. Þegar ég var farinn að kynnast Siggu Bjarna vel þá komst ég að því að hún var skarpgreind og með frá- bært minni, svo ekki sé minnst á hennar einstöku kímnigáfu sem hún greip allt of sjaldan til. Siggu Bjarna mun ég alltaf minnast með virðingu og þökk og fæ aldrei þakkað henni að fullu góða viðkynningu. Hauki, eigin- manni, og afkomendum þeirra öll- um, bið ég blessunar Guðs. Hvíl í friði íslenska valkyrja, blessuð sé minning þín. Þráinn Þorvaldsson. Ingibjörg Sigríður Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.