Morgunblaðið - 26.07.2016, Síða 36

Morgunblaðið - 26.07.2016, Síða 36
ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 208. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Telja sig hafa fundið höfuðpaurinn 2. Dældu lofti í endaþarm drengsins 3. Eva Laufey og Haddi giftu sig … 4. Skotárás í næturklúbbi í Flórída »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Írska listakonan Aishling Muller sem búið hefur á Íslandi undanfarið ár vinnur með umhverfisþemu í gegn- um ljósmyndir, myndbönd, málverk, uppákomur og skrif. Margmiðlainnsetningin hennar „Elemental“ á Listastofunni við Hringbraut flytur gestina í skáldaðan heim þar sem þeir kynnast tveimur karakterum sem þar búa. Aishling hvetur fólk til að koma með hluti úr náttúrunni og vinna með henni á Listastofunni þar sem náttúr- an mun taka völdin. Sýningin er opin kl. 12-20 alla daga nema mánudaga. Nánari upplýsingar um Aishling Mull- er má finna á heimasíðu hennar: www.heartheartheartearth.com Unnið með náttúruna  Í kvöld halda Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar tónleika í einstöku umhverfi í Mosskógum í Mosfellsdal, og hefjast þeir kl. 20. Hljómsveitin skorar á gesti að koma með útilegustólana, teppin og nestið og eiga frábæra stund í guðs- grænni náttúrunni, um leið og hlustað er á hljómsveit- ina flytja rjómann af lögum Jón- asar Sig. Gott er að athuga með staðsetn- ingu Mosskóga á mosskog- ar.is. Miðar fást í tak- mörkuðu upplagi á midi.is. Útitónleikar í Mosskógum Á miðvikudag og fimmtudag Norðan 5-10 m/s, en 8-13 austast. Skýjað nyrðra og eystra og dálítil rigning eða súld með köflum. Bjartviðri sunnan- og suðvestantil. Hiti 7-19 stig, hlýjast syðra. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 5-10 m/s og rigning austan- og síðar norðanlands, en léttir til á Suður- og Vesturlandi. Hiti frá 9 stigum fyrir austan upp í 20 stig sunnanlands. VEÐUR Víkingar úr Reykjavík eru komnir upp í sjötta sæti Pepsi-deildar karla í knattspyrnu eft- ir langþráðan sigur á KR-ingum í Fossvog- inum í gærkvöld, 1:0. KR situr eftir í tíunda sæti deildarinnar. Gary Martin gæti hafa spilað sinn síðasta leik með Víkingum en hann fer til reynslu til Lilleström í Noregi í dag. »2-3 Víkingar upp í sjötta sætið Ómar Ingi Magnússon, fyrirliði U20 ára landsliðs karla í handknattleik, segir að liðið sé í erfiðum og krefj- andi riðli í úrslitakeppni Evrópumóts- ins sem hefst í Danmörku á fimmtu- daginn en liðið leikur þar gegn Rússum, Slóvenum og Spánverjum. Hann segir að íslenska liðið muni byggja á varnar- leiknum og hraðaupp- hlaupunum sem séu sterkustu hliðar þess. »4 Erum í erfiðum og krefjandi riðli á EM „Það fara svona fjórtán tímar í þetta, fram og til baka, og ef ég spila að kvöldi í Grindavík er ég kominn heim á Höfn um kl. fjögur um nóttina,“ segir hinn 48 ára gamli Gunnar Ingi Valgeirsson sem setti nýtt Íslands- met í leikjafjölda í deildakeppninni í síðustu viku þegar hann spilaði sinn 401. leik. Hann keyrir landshorna á milli til að spila leikina. »2-3 Keyrir í fjórtán tíma vegna heimaleikjanna ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Makrílveiði hefur glæðst mikið að undanförnu og kom Kap VE í land í síðustu viku með 400 tonn eftir skamma dvöl úti á miðunum. Þar var Halldór Alfreðsson, 19 ára peyi úr Vestmannaeyjum, í sínum fyrsta túr sem annar stýrimaður. Fá 19 ára ungmenni eru á sjó, hvað þá með titilinn stýrimaður. Halldór fór fyrst á sjóinn fyrir alvöru þegar hann var 15 ára, þeg- ar hann sigldi með bátnum Gandí, en sjómennskan er honum í blóð borin. Fyrsta túrinn fór hann 11 ára á hvalveiðiskipi. „Ég byrjaði fyrir alvöru á sjó þegar ég var 15 ára og hef verið á sjó á sumrin meðfram skóla. Ég byrjaði sem há- seti og hef ekki litið í land síðan,“ segir Halldór. „Pabbi og afi voru á hvalskipi og tóku mig með þegar ég var 11 ára. Þar byrjaði ævintýrið. Ég kláraði grunnskólann, fór beint í stýrimannaskólann og er til- tölulega nýbúinn með hann,“ segir hann. Skemmtilegt starf Jón Atli Gunnarsson, skipstjóri á Kap VE, segir að Halldór sé efni- legur sjómaður enda búinn að stunda sjóinn í nokkur sumur. Hann var að leysa af í fyrsta sinn undir stjórn Jóns Atla en faðir Halldórs hefur siglt með Jóni. „Hann er nýgræðingur í þessu en með stýrimannsmenntun sem ekki mjög margir eru að stökkva í, því miður, því þetta er skemmtilegt starf og áhugavert. Halldór er strákur sem hefur mikinn áhuga þrátt fyrir að eiga margt ólært eins og gengur og ger- ist hjá ungum mönnum.“ Skipið Kap VE er 892,8 brúttórúm- lestir að stærð og 66,74 metra langt. Það var smíðað árið 1988 í Danmörku og gerir Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum skipið út. Forföll voru í áhöfninni og því var leitað til Halldórs. „Það er gaman að það hafi verið leitað til mín. Ég hef líka verið yf- irstýrimaður á Gullberginu,“ segir hann en Gullbergið er frystitogari, 338 brúttórúmlestir að stærð og 32 metra langur. Halldór siglir ekki aðeins um miðin á stórum skipum því hann hefur átt litla trillu síðan hann var ungur peyi. „Ég keypti trilluna þegar ég var 17 ára og sigldi henni á nýliðnar strandveiðar. Ég er ánægður á sjó og finnst gott að sigla.“ Sjómennskan í blóð borin  Halldór er 19 ára og einn yngsti stýrimaður flotans Ljósmynd/Örn Friðriksson Í brúnni Halldór um borð í Kap VE sem kom með rúm 400 tonn af makríl í land. Hann er nú kominn í frí fram yfir verslunarmannahelgi, þar sem hann ætlar að skemmta sér með öðrum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Halldór er kominn í land fram yfir Þjóðhátíð. Hann er ekki með fast pláss í flota Vinnslustöðvarinnar en hefur lengst af verið á Gullberg- inu. Hann er langt kominn með annað stig í vélstjóranáminu og stefnir að því að verða skipstjóri. „Það var alltaf sjórinn fyrir mér, ég hef aldrei haft neinn sérstakan áhuga á íþróttum. Ég fór meira á bryggjuna þegar aðrir fóru að gera sig tilbúna á íþrótta- æfingar. Ég er að klára annað stig í náminu og sé mig alveg sem skip- stjóra í framtíðinni.“ Makrílveiðar við landið fóru ró- lega af stað en síðari hluta júlí hef- ur veiðin glæðst. „Það er mokveiði núna eftir heldur lélega byrjun á vertíðinni. Nú er kraftur kominn í veiðarnar,“ segir Halldór. Frekar á bryggjuna en í íþróttir SJÓMENNSKAN HEFUR ALLTAF HEILLAÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.