Morgunblaðið - 07.09.2016, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 7. S E P T E M B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 209. tölublað 104. árgangur
HÚN VILL SÝNA
HVERJU VERÐUR
FÓRNAÐ
FORSÝNING Á EIÐNUM
SKÚLPTÚRARNIR
ERU ÍGILDI SLAG-
VERKSLEIKARA
FJÖLMENNI MÆTTI 33 SÝNING GUNNARS KR. 30UMHVERFISMAT BORGHILDAR 12
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Svona sterk skilaboð hafa ekki ver-
ið send í langan tíma,“ segir Páll Erl-
ingsson, formaður Kennarafélags
Reykjaness, og vísar í máli sínu til
þeirrar stöðu sem nú er uppi í kjara-
deilu Félags grunnskólakennara, en
félagsmenn hafa nú á skömmum
tíma í tvígang fellt kjarasamning.
Aðspurður segist hann vera í hópi
þeirra kennara sem reiðubúnir eru
til að kanna hvort grípa eigi til að-
gerða. „Ég vona að sjálfsögðu það
besta. En það er fullt af fólki sem er
reiðubúið til að gera ýmislegt – mað-
ur veit ekki hvað verður. Það sem ég
hef hins vegar mestar áhyggjur af er
að ef ekkert lagast þá verður flótti úr
stéttinni,“ segir Páll.
Hafa komið til móts við kröfur
Inga Rún Ólafsdóttir er formaður
samninganefndar sveitarfélaga. Hún
segir stöðuna í deilunni „mjög
þrönga“ og að ekki sé enn búið að
ákveða hvenær næsti fundur verður.
„Við höfum í raun teygt okkur alla
leið enda viðræður staðið yfir frá því
í mars,“ segir Inga Rún og bætir við
að margsinnis sé búið að ræða kröfur
grunnskólakennara á fundum.
„Við höfum verið að koma til móts
við þær kröfur sem þeir hafa sett
fram. En nú er bara þörf á því að
setjast niður með þeim á ný.“
Skýr skilaboð kennara
Formaður Kennarafélags Reykjaness óttast flótta úr stéttinni Við höfum í
raun teygt okkur alla leið, segir formaður samninganefndar sveitarfélaga
MHöfum teygt okkur alla leið »4
Yfir 9% hækkun
» Kennarar felldu kjarasamn-
ing í annað sinn síðastliðinn
mánudag með um 57%
greiddra atkvæða.
» Samningurinn gerði m.a. ráð
fyrir yfir 9% launahækkun á
um tveggja ára tímabili.
Ísland státar kannski ekki af
bestu golfvöllum heimsins en þessir
vellir hafa sína sérstöðu og þá sér-
staklega á sumrin þegar sólin skín
allan sólarhringinn.
Mikil aukning hefur orðið í notk-
un erlendra ferðamanna á golf-
völlum landsins. Eru golfferðir til
landsins farnar að gefa golfklúbb-
unum ágætar tekjur.
Annarsvegar er um skipulagðar
ferðir manna með það eitt í huga að
spila golf á landinu og hinsvegar
eru venjulegir ferðamenn farnir að
velja þessa afþreyingu. Þá hefur
stóraukist að jafnvel farþegar á
skemmtiferðaskipum sem stoppa
stutt við, noti tímann til að fara í
golf. »14
Miðnæturgolfið
vinsælt hjá túristum
Morgunblaðið/Skapti Hallgríms
Golf Alltaf hefur Ísland einhverja sérstöðu.
Sjö stórir gámar fullir af útbúnaði voru fluttir hingað til lands fyrir tón-
leika poppstjörnunnar Justins Biebers sem fara fram í Kórnum í Kópavogi
á morgun og hinn. Er það þó aðeins brot af því sem fylgir í Purpose-
tónleikaferð Biebers því heilmikið af útbúnaði var leigt hér á landi að auki.
Bieber er orðinn mjög spenntur fyrir því að koma hingað til lands að
sögn framleiðslustjóra tónleikanna. »6
Litadýrð á tónleikasviði Justins Biebers
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Óli Björn
Kárason, vara-
þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins,
leggur til í að-
sendri grein í
Morgunblaðinu í
dag að innleitt
verði eitt frí-
tekjumark ellilíf-
eyris. Hvetur
hann þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins til að leggja fram breytingar-
tillögu við frumvarp félagsmála-
ráðherra um almannatryggingar
svo að frítekjumarkið verði lögfest
samhliða öðrum breytingum á yfir-
standandi þingi. Þetta yrði að mati
hans mesta kjarabót eldri borgara í
áratugi. »19
Vill innleiða eitt frí-
tekjumark ellilífeyris
Óli Björn Kárason
Loðnuleiðangur sem hefst á
föstudag verður sá viðamesti sem
farið hefur verið í síðan á níunda
áratugnum og taka bæði skip Haf-
rannsóknastofnunar þátt í verk-
efninu. Mikil óvissa er um loðnu-
veiðar í vetur og hefur
upphafskvóti ekki verið gefinn út.
Í leiðangrinum verða hnúfubak-
ar jafnframt taldir á leitarslóð-
inni. Í lok september í fyrra var í
fyrsta skipti gerð tilraun til að fá
mat á fjölda hvala á loðnuslóð að
haustlagi og voru þá taldir nokk-
ur þúsund langreyðar og hnúfu-
bakar.
Framundan eru viðræður um
veiðar úr uppsjávarstofnum. Í
næstu viku verður fundað um
loðnu með Grænlendingum og
Norðmönnum í Nuuk og í byrjun
október funda strandríkin um
stjórnun veiða á norsk-íslenskri
síld, makríl og kolmunna í Lond-
on. Engir heildarsamningar eru í
gildi um veiðar á þessum teg-
undum, en Íslendingar hafa kynnt
hugmyndir um að samið verði í
einu lagi um stofnana þrjá. » 18
Mæla útbreiðslu loðnu og telja hnúfubaka
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Árni Friðriksson Á föstudag fara bæði
skip Hafró í loðnuleiðangur.
Norska útgerðin Fred Olsen hef-
ur pantað pláss fyrir tvö skemmti-
ferðaskip í Reykjavík eftir 10 ár,
eða nánar tiltekið í ágúst 2026.
Þessi forsjálni forráðamanna
hins norska skipafélags skýrist af
því að hinn 12. ágúst 2026 verður
almyrkvi á sólu á Íslandi og vænt-
anlega munu farþegar skipanna
tveggja hafa mestan hug á að sjá
myrkvann. Líklegt er að fleiri skip
muni leggja leið sína til Íslands í
þessum erindagjörðum.
Almyrkvinn mun óvíða sjást bet-
ur en á Íslandi. Ferill skuggans,
sem er tæplega 300 km á breidd,
liggur yfir Ísland vestanvert. Í
Reykjavík mun almyrkvinn standa í
1 mínútu og 10 sekúndur. Síðast
varð almyrkvi á sólu við Ísland 20.
mars 2015. Þá komu fjögur
skemmtiferðaskip með farþega sem
vildu sjá þetta mikla náttúruundur
við bestu aðstæður. »10
Byrjað að leggja inn pantanir vegna sól-
myrkvans sem verður hér í ágúst 2026
Morgunblaðið/RAX
Mikið sjónarspil Almyrkvi á sól er afar
tilkomumikið náttúruundur.
„Þetta sem nú
er að gerast er
vonarneisti um
að heilsugæslan
vindi seglin og
framtíðin sé
björt,“ segir
Gunnlaugur Sig-
urjónsson,
stjórnarformað-
ur heilsugæsl-
unnar Höfða.
Nýjar heilsugæslustöðvar á Bílds-
höfða og Urðarhvarfi munu verða
opnaðar á næstunni en Sjúkra-
tryggingar Íslands sömdu um
rekstur þeirra eftir útboð. Höfði
mun sjá um rekstur heilsugæsl-
unnar á Bíldshöfða. Gunnlaugur
segir um mikil tíðindi að ræða í
heilbrigðismálum Íslendinga. »2
Kveikir vonarneista
um að heilsugæslan
vindi seglin
Gunnlaugur
Sigurjónsson