Morgunblaðið - 07.09.2016, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er engin ástæða til þess að velta
sér upp úr öllum sköpuðum hlutum. Lestu
góða bók og láttu ekkert trufla þig. Þú brýtur
heilann um ástarsamband þitt.
20. apríl - 20. maí
Naut Ekki treysta loforðum sem vinir þínir
hafa gefið þér í dag. Allir eru að reyna að
sanna að þeir hafi rétt fyrir sér. Þér stendur á
sama, þú veist svarið.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Foreldrar ættu að nota daginn til
þess að spá í uppeldisaðferðir sínar. Ertu allt-
af í símanum? Gefðu þér tíma með ungviðinu
og vertu til staðar óskipt/ur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Undirmeðvitundin hvetur þig til þess
að losa þig við neikvæðar hugmyndir. Vertu
hagsýn/n í inkaupum og notfærðu þér tilboð.
Margt smátt gerir eitt stórt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það bjargar öllu að sjá spaugilegu hlið-
arnar á málunum. Nýttu þér krafta annarra til
þess að leggja lokahönd á það sem óklárað er.
Þú færð vinabeiðni sem vekur forvitni þína.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Einhver af eldri kynslóðinni ráðleggur
þér hugsanlega í dag. Mundu að oft þarf lítið
til þess að hlutirnir fari úr böndunum svo þú
skalt venja þig á að reyna að sjá sem flest fyr-
ir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert staddur mitt í einhverri ringulreið
og engu líkara en það sé enga leið að finna út
úr ógöngunum. Sestu niður og andaðu djúpt,
þá fyrst finnur þú útgönguleiðina.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Nú er tími ævintýranna svo
gríptu þau tækifæri sem gefast til að upplifa
þau. Reyndu að skipta þér ekki um of af lífi
annarra.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur samúð með ógæfu ein-
hvers. Ef fólk er trekkt í kringum þig, gæti
nærvera þín verið ógnandi á einhvern hátt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Stundum eru hlutirnir hreint ekki
þar sem þér finnst þú hafa skilið þá eftir.
Reyndu að vera sátt/ur í eigin skinni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú hefur lagt hart að þér og nú er
komið að því að þú getir sýnt öðrum árangur
erfiðis þíns. Þú spáir í hvað þú eigir að hella
þér út í næst heima fyrir, mála, parketleggja
eða hreinlega sleppa öllum framkvæmdum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú finnur fyrir sigurvissu og sjálfs-
öryggi. Taktu á þig rögg og skráðu þig á nám-
skeið til að hrista upp í heilasellunum og fara
út fyrir þægindarammann.
Ásunnudaginn heilsaði Páll Ims-land Leirliði í kvöldhúminu, –
„eftir feikn góða reisu um mera-
gerði Landeyjanna“. Þar varð þessi
limra til:
Það var halur einn hrumur í Hveragerði,
sem haltraðı́ í áttiná að meragerði
sem nærri þar stóð.
Og nóttin var hljóð.
Þar hittı́ hann Svanlaugú og svera
gerði.
Gylfi Þorkelsson yrkir oft
skemmtilega á Boðnarmiði. Þessi
ferskeytla er um Norðurljósin:
Mikið fyrir glaum og glans,
galskapurinn ræður
er tröllin stíga trylltan dans
með tækifærisslæður.
Og hér yrkir hann limru af öðru
tilefni:
Vammið við er spyrtur,
veruleikafirrtur,
í beinum eitur,
undirleitur,
til fárra fiska virtur.
Og aðra:
Um hárið vel er hirtur,
hálstau, sléttar skyrtur,
hjartaheitur,
hugarteitur,
vel af öllum virtur.
Og enn aðra:
Blótandi og byrstur,
í brennivínið þyrstur,
einskis nýtur
augum gýtur,
flýr af hólmi fyrstur.
Pétur Stefánsson hafði orð á því
á Leirnum, að sumir kunni að
drekka vín og skemmta sér en aðrir
ekki:
Það er bölvað böl að drekka,
Bakkus á öflugt þjónalið.
Mörg er lífsins Brattabrekka
sem býsna margir streða við.
Sumir kunna að súpa á öli,
syngja og dansa fjörs við gný.
Aðrir mæta eymd og böli
ef þeir bara smakka á því.
Það fer miklum sögum af góðri
laxveiði hvarvetna, – og þó! Gústi
M. yrkir á Leir:
Í sól og hita á Blöndubökkum,
baxaði og illa gekk.
Kvaddi á með engum þökkum,
öngullinn í rassi hékk.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simsnet.is
Vísnahorn
Í meragerði og
af brennivíni
PLÖNTUSTJÓRI.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG VEIT AÐ ÞÚ HEFUR VERIÐ SEINN Í VINNUNA
TVISVAR Í ÞESSARI VIKU. MÉR FINNST SAMT
HEIMSKULEGT AÐ SOFA Í BÍLNUM.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að kyssa myndina
af honum góða nótt á
hverju kvöldi
ÞIG SKORTIR
FÁGUN
KJAFTÆÐI… ROP!
HA!
HUGDIRFSKA OKKAR STÖÐVAÐI
ÓVININN Í SPORUM SÍNUM! ÁÞORPSKRÁNA!
EKKI
ALVEG! ÞAÐ VAR AUGLÝSINGIN
Á SKILDINUM MÍNUM!
ÞORPSKRÁ
FYRSTI
DRYKKUR
FRÍR!
ÞÚ FÆRÐ EKKI AÐ
BLÓMSTRA FYRR EN
ÉG LEYFI ÞAÐ.
Víkverji komst óbeint í tæri viðPokémon þegar teiknimynd-
irnar um þessar japönsku fígúrur
voru hvað vinsælastar og spjöld
með myndum af þeim voru rifin út
með áfergju. Þegar fígúrurnar
gengu í endurnýjun lífdaga í leikn-
um Pokémon Go rifjuðust þessir
tímar upp fyrir Víkverja. Nýi leik-
urinn byggist á því að fara með
snjallsíma út um víðan völl og leita
uppi Pokémona af ýmsum stærðum
og gerðum. Pokémonarnir sjást þó
ekki í raunheimum, heldur aðeins á
skjám síma. Æðið virðist nú heldur í
rénun, en leikurinn heldur þó velli,
ekki án afleiðinga.
x x x
Í Rússlandi situr nú maður í fang-elsi fyrir að hafa spilað leikinn í
kirkju. Maðurinn setti myndskeið af
leit sinni á netið og hefur rúmlega
milljón manns horft á það. Hann
heitir Ruslan Sokolovskí og á yfir
höfði sér allt að fimm ára fangelsi.
Er hann sakaður um að hafa sært
trúarlegar tilfinningar og kynt und-
ir hatri. Sokolovskí er ákærður á
sömu lagaforsendum og hljóm-
sveitin Pussy Riot, sem á sínum
tíma var dæmd í fangelsi fyrir að
spila pönk í kirkju. Á netinu hefur
verið stofnaður hópur til stuðnings
honum.
x x x
Í Danmörku fann maður, sem var íPokémon Go, lík í skurði á Fjóni.
Að sögn lögreglu er ekki ljóst hvort
hinn látni lést af slysförum eða var
myrtur.
x x x
Í Bosníu álpaðist hópur manna íleiknum inn á svæði með jarð-
sprengjum frá borgarastyrjöldinni
1992 til 1995. Þeim tilmælum var
beint til fólks að fara eftir viðvör-
unarskiltum.
x x x
Maður einn á Nýja-Sjálandi varðsvo upptekinn af Pokémon Go
að hann sagði upp vinnu sinni til
þess að geta leitað uppi Pokémona
allan liðlangann daginn. Sagðist
hann ætla að taka tvo mánuði í að
ferðast um landið og veiða hvern
einasta Pokémona í boði. Þeir munu
vera 151. víkverji@mbl.is
Víkverji
Fel Drottni vegu þína og treyst hon-
um, hann mun vel fyrir sjá.
(Sálm. 37:5)