Morgunblaðið - 07.09.2016, Blaðsíða 15
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á
EÐA Í SÍMA
MOGGAKLÚBBURINN
Almennt miðaverð 2.500 kr.
Moggaklúbbsverð 1.875 kr.
Hægt er að kaupa miða á afslætti
á smarabio.is og í miðasölu Háskólabíós
gegn framvísun Moggaklúbbskortsins.
Hvernig fæ ég afsláttinn?
Farðu inn á smarabio.is og veldu þér miða.Veldu fjölda miða
í Moggaklúbbsglugganum, settu inn kóðann: mblvetur16til17
og haltu síðan áfram.
Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á moggaklubburinn.is og fá tilboðin send í tölvupósti með því að
skrá sig á póstlistann. Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
25% AFSLÁTTUR Á ÓPERUNA TURANDOT EFTIR PUCCINI
HINN 15. SEPTEMBER KL. 19:00 Í HÁSKÓLABÍÓI
Næstu sýningar: Óperan Cosi Fan Tutti 17. október og ballettinn Anastasia 2. nóvember (komið í sölu)
Turandot var síðasta óperan sem hið virta ítalska tónskáld, Giacomo Puccini, samdi.
Uppsetningin sem hér um ræðir var sérstaklega útsett fyrir hið lofaða óperufélag
Handa Opera á hafnarbakka Sydney í Ástralíu. Sviðið er vatnslistaverk sem þykir
einkar fagurt og viðeigandi fyrir sviðsetningu á umræddu meistaraverki.
Turandot er saga af undirferli, gátum, trúarlegum aftökum og ást. Sagan fjallar um fallega og volduga
prinsessu sem leggur próf fyrir alla þá sem biðja um hönd hennar. Hún segir þeim að svara þremur
spurningum sem snúa að dauðanum. Hugrakkur prins að nafni Calàf kemur frá fjarlægu landi og verður
umsvifalaust ástfanginn af prinsessunni.
Turandot er eitt mikilfenglegasta óperuverk sem samið hefur verið og ber af bæði hvað varðar tónlist og
melódíur sem og atburðarás og leikræn átök. Meðal laga sem flutt verða er hið fræga Nessun Dorma sem
Riccardo Massi syngur.