Morgunblaðið - 07.09.2016, Blaðsíða 36
Stjarnan, Grótta, FH og Valur eru þau
fjögur lið sem Morgunblaðið telur lík-
legast að verði um miðja Olís-deild
karla í handknattleik í vetur, verði
ekki í baráttu um titil en heldur ekki í
botnslagnum. Nýliðar Stjörnunnar
mæta með forvitnilegt lið til leiks og
FH-ingar
eru líklega
sterkari en
í fyrra. Erfitt
er hinsvegar
að átta sig á lið-
um Gróttu
og Vals
vegna
mikilla
manna-
breytinga
í þeirra
röðum.
» 2-3
Nýliðarnir mæta með
forvitnilegt lið til leiks
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 251. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Nafn stúlkunnar sem lést
2. Fyrsti andlitsþeginn látinn
3. Meint hjákona Beckham sér …
4. Skattkerfið tekið í gegn
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Ítalski raftónlistarmaðurinn
Shapednoise, sem er hliðarsjálf Nino
Pedone, heldur tónleika á Húrra í
kvöld kl. 21 á vegum FALK. Um upp-
hitun sjá íslensku listamennirnir
ULTRAORTHODOX og AMFJ.
Shapednoise á Húrra
Norska þjóð-
leikhúsið frum-
sýnir annað kvöld
nýja uppfærslu
Þorleifs Arnar
Arnarssonar. Um
er að ræða sam-
bræðslu á Villi-
öndinni og Fjand-
manni fólksins
eftir Henrik Ibsen, en handritið vann
Þorleifur í samvinnu við Mikael Torfa-
son. Þar slá þeir saman Tómasi
Stokkmann úr Fjandmanni fólksins
og Gregers Werle úr Villiöndinni, sem
báðir gera ófrávíkjanlega kröfu um
að leyndarmál verði afhjúpuð og upp-
lýst þó að það kosti miklar fórnir og
sársauka annarra. Leikmynd hannar
Vytautas Narbutas og búninga Sunn-
eva Ása Weisshappel, en tónlist sem-
ur Bjarni Frimann.
Norska þjóðleikhúsið
með Ibsen-bræðing
Tónleikaröðin Blikktromman hefur
göngu sína annað árið í röð í Kalda-
lóni Hörpu í kvöld kl. 20. Á vaðið ríð-
ur Snorri Helgason
sem nýverið gaf út
sína fjórðu breið-
skífu, Vittu til.
Blikktromman
hljómar í vetur,
ávallt fyrsta miðviku-
dag í mánuði.
Snorri Helgason á
Blikktrommunni
Á fimmtudag Austan 5-13 m/s og síðar norðaustan 8-15. Rigning
með köflum, talsverð úrkoma fyrir norðan og austan síðdegis.
Á föstudag Sunnan 5-13 og skúrir, en bjart með köflum norð-
anlands. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast fyrir norðan.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 3-8 m/s, en 8-13 við suðvestur-
ströndina seinni partinn. Skúrir, einkum síðdegis. Hiti 8 til 14 stig.
VEÐUR
Kári Kristján Kristjánsson,
landsliðsmaður í handbolta,
er í miðri geislameðferð
vegna góðkynja æxlis í baki,
nú þegar hann er að hefja
nýtt Íslandsmót með liði
sínu ÍBV. Kári fékk fyrst
æxli í bakið árið 2012, sem
var fjarlægt, en æxlið sem
hann glímir við nú hélt hon-
um frá keppni um tíma árið
2014. Hann ætlar að æfa og
spila með ÍBV í vetur eins
og líkaminn leyfir. » 1
Kári byrjar mótið í
geislameðferð
Stjarnan náði fimm stiga forskoti á
Breiðablik í baráttunni um Íslands-
meistaratitil kvenna í knattspyrnu í
gærkvöld en þurfti að hafa mikið fyrir
því að vinna botnlið ÍA 3:1 á Akranesi.
Valskonur eru úr leik í toppslagnum
eftir að Þór/KA gjörsigraði þær 4:0 á
Akureyri en fallbaráttan er galopin
eftir sigur KR-inga á Fylki og jafntefli
FH og Selfoss. » 4
Stjarnan náði fimm
stiga forskoti
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Peningar virðast hafa tekið flest
völd og fólk er metið eftir innkomu,
hagnaði og eignum, en þegar betur
er að gáð eru það ekki gull og aðrir
eðalmálmar sem skipta öllu máli
heldur fjölskyldan. Með það í huga
er Stella Fanney Guðmundsdóttir
ríkasta kona landsins.
Stella og Björn Jónsson, eigin-
maður hennar, eignuðust átta börn
og eru fimm þeirra á lífi, fjórar syst-
ur og einn bróðir. Hún á 132 blóð-
skylda afkomendur samkvæmt Ís-
lendingabók og vegna ættleiðinga
eru 139 í hópnum – átta börn, 33
barnabörn, 75 barnabarnabörn og
23 barnabarnabarnabörn.
„Ég hef misst eiginmanninn og
þrjú börn, en það bætist stöðugt í
hópinn, ég veit af tveimur á leiðinni,
og það ná því örugglega ekki margir
að eiga yfir 100 afkomendur,“ segir
hún.
Það er mikið til í því. Ragnheiður
Halldórsdóttir, fædd 1876, átti 263
afkomendur þegar hún lést árið
1962 og var þar með sá Íslendingur
sem átti flesta afkomendur á meðan
hún lifði. Hún eignaðist 14 börn. 564
Íslendingar hafa átt fleiri en 100 af-
komendur við ævilok.
Ekki ánægð með jafnteflið
Ættingjar Stellu búa víða um land
sem og í Bandaríkjunum, Dan-
mörku og Noregi. Hún á son í
Grindavík, dóttur á Skagaströnd,
aðra dóttur í Þorlákshöfn og síðan
tvær dætur í Reykjavík, þar sem
hún býr líka. Stella er annars ættuð
af Ströndum og bjó í Súðavík með
fjölskyldu sinni en flutti suður eftir
snjóflóðið 1995.
Stella fylgist vel með gullunum
sínum og hverri fæðingu. „Þetta er
ungt fólk og enn að eignast börn,“
segir hún. Bætir við að áður fyrr
hafi hún þekkt alla með nafni en svo
sé ekki lengur enda hitti hún skyld-
fólkið ekki eins oft og fyrr. „Þau
sem geta heimsækja mig reglulega
og eru dugleg við það. Það er ljóm-
andi gott að eiga allt þetta fólk. Það
er ekki í neinu bölvuðu rugli, sem
betur fer,“ segir hún.
Þó að nokkrir í fjölskyldunni búi
erlendis hefur Stella ekki farið út
fyrir landsteinana til þess að heim-
sækja ættingjana. „Ég hef einu
sinni farið til útlanda, fór með dótt-
ur minni og fjölskyldu í frí til Mall-
orka,“ rifjar hún upp. „Ég var ekki
hrifin, þoldi ekki sólina og hitann og
varð því helst að vera inni. Ég sagð-
ist aldrei fara aftur og hef staðið við
það.“
Stella er 93 ára og heldur sig
mest heima. Hún er ekki með heim-
ilisaðstoð nema hvað hún fær hjálp
með augndropa og svo fær hún að-
stoð frá dætrunum, þegar á þarf að
halda. „Ég þríf í kringum mig og
geri það sem þarf,“ segir hún. „Ég
las mikið en minna núna. Hef svo
útvarpið og sjónvarpið í gangi.“
Segist fylgjast með íþróttum, þegar
Íslendingar keppi við útlendinga og
sættir sig illa við að fótboltalands-
liðið hafi ekki sigrað Úkraínumenn í
fyrrakvöld. „Ég vildi að sjálfsögðu
sigur enda er ég Íslendingur.“
Í sumar sem leið fór hún á ættar-
mót austur fyrir fjall, þar sem
mættu liðlega 100 manns, en varð
frá að hverfa vegna veikinda. „Ég
hef yfirleitt farið vestur á hverju
sumri en ekki í sumar,“ segir hún.
Í mörg ár hefur Stella prjónað
sokka, peysur og fleira og gefið af-
komendum sínum í jólagjöf, eins og
Morgunblaðið sagði frá í fyrra. „Ég
held áfram að prjóna á meðan ég
get,“ segir hún.
Stella ríkasta kona landsins
Á 132 blóðskylda afkomendur en vegna ættleiðinga eru 139 manns í hópnum
Morgunblaðið/Eggert
Fjársjóður Dæturnar Steinunn Björnsdóttir og Sigríður Björnsdóttir, Stella Guðmundsdóttir og Stella Sigurðardóttir, elsta barnabarnið.