Morgunblaðið - 07.09.2016, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2016
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Tillaga velferðarráðs Reykjanesbæj-
ar um kaup á tveimur forsniðnum
einingahúsum til að leysa bráðan
húsnæðisvanda heimilislausra ein-
staklinga í Reykjanesbæ verður lögð
fyrir bæjarráð í næstu viku.
Tillagan snýr að lausnum í hús-
næðismálum einstaklinga sem glíma
við fíkni- og geðvanda.
Hera Ósk Einarsdóttir, sviðsstjóri
velferðarsviðs Reykjanesbæjar, seg-
ir að í tillögunni sé lögð til uppsetn-
ing 25 fermetra einingahúsa. „Starfs-
fólk mun þjónusta
heimilin, líkt og
gert er þegar um
annars konar fé-
lagslega þjónustu
er að ræða,“ segir
Hera. Að sögn
hennar er stefnan
sett á að kaupa
tvær einingar
fyrst um sinn.
„En hópurinn
sem gæti þurft svona til framtíðar er
allt að tíu manns,“ segir Hera.
Hún bendir á að húsnæðismarkað-
ur sé mörgum erfiður. Bæði sé leigu-
markaður dýr, auk þess sem langir
biðlistar séu eftir félagslegu hús-
næði. Hún segir að óskað sé eftir því
að þessi hópur sé settur í forgang.
„Það vantar sérstaklega húsnæði
fyrir þá sem eru bara á götunni,“ seg-
ir Hera.
134 á bið eftir húsnæði
Hún segir að um 134 einstaklingar
og fjölskyldur bíði eftir félagslegu
húsnæði í Reykjanesbæ í ágúst. Í
bæjarfélaginu búa rúmlega 16 þús-
und manns. „Biðlistinn vex hraðast
hjá þeim sem eru einhleypir,“ segir
Hera.
Vilja kaupa hús fyrir fólk
með fíkni- og geðvanda
Fólk á götunni sett í forgang Langir biðlistar í bænum
Hera Ósk
Einarsdóttir
• Konica Minolta fjölnotatækin (MFP) eru
margverðlaunuð fyrir hönnun, myndgæði, notagildi,
umhverfisvernd og áreiðanleika.
• Bjóðum þjónustusamninga, rekstrarleigusamninga og
alhliða prentumsjón.
• Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki,
stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt
að gera kröfur um gæði og góða þjónustu.
• Kjaran er viðurkenndur söluaðili á
prentlausnum af Ríkiskaupum.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
BLI A3 MFP Line of the Year:
2011, 2012, 2013, 2014
bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki
BLI Pro Award:
2013, 2014
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Mikil aukning hefur orðið í notkun erlendra
ferðamanna á golfvöllum landsins síðustu ár-
in og aldrei sem nú í sumar. Miðnæturgolfið
skapar íslensku golfi sérstöðu á markaði fyr-
ir golfferðir til útlanda. Gefur ferðaþjón-
ustan golfklúbbunum góðar tekjur.
„Þetta fór hægt af stað, það tók tíma að
koma því inn hjá erlendum söluaðilum að
hér væri eitthvað að selja,“ segir Magnús
Oddsson, fyrrverandi ferðamálastjóri, sem
er stjórnarformaður samtakanna Golf Ice-
land sem unnið hafa að því í átta ár að
kynna golfvelli sem eiga aðild að samtök-
unum fyrir erlendum ferðaskrifstofum sem
sérhæfa sig í skipulagningu golfferða til ann-
arra landa.
Áhersla á sérkenni landsins
Síðustu þrjú árin hefur þessi starfsemi
heldur betur tekið við sér. Magnús nefnir
tvær ástæður fyrir því. Annars vegar hafi
samtökin í nýrri stefnumótun farið að leggja
áherslu á sérkenni golfs á Íslandi, það er að
segja möguleika á miðnæturgolfi og golfvelli
sem eru hluti af mikilfenglegri náttúru
landsins. Náðu samtökin athygli erlendra
ferðaskrifstofa sem hafa í vaxandi mæli
skipulagt ferðir hingað.
Hins vegar nýtur golfið, eins og aðrir af-
þreyingarmöguleikar, mjög góðs af mikilli
fjölgun ferðamanna. „Við reyndum að koma
golfinu að sem afþreyingu fyrir erlenda
ferðamenn. Það hefur tekið vel við sér, sér-
staklega nú í sumar,“ segir Magnús. Meðal
annars hefur það aukist að farþegar
skemmtiferðaskipa noti viðkomutímann í
höfn í Reykjavík og Akureyri til að bregða
sér í golf.
Hér á landi eru rúmlega 60 golfvellir og
eru 16 þeirra innan Golf Iceland. Magnús
segir að möguleikarnir séu miklir og ekki
beri á vandamálum fyrir íslenska kylfinga.
Golfvellirnir séu mest ásettir um helgar og
síðdegis á virkum dögum. Erlendu gestirnir
séu hér í fríi og geti farið á morgnana og
sækist sérstaklega eftir því að leika golf á
kvöldin og nóttunni, svokallað miðnæturgolf,
þegar fáir Íslendingar séu á völlunum. Þetta
fari því ágætlega saman. Svo séu margir
golfvellir í næsta nágrenni höfuðborgarinnar
vannýttir.
Kaupa mikla þjónustu
Magnús hefur ekki áreiðanlegar tölur um
aukninguna. Áætlar þó að erlendir gestir
hafi spilað 8-10 þúsund hringi á golfvöllunum
í sumar og þeir séu enn að. Það gæti verið 2
þúsund hringjum meira en á síðasta ári.
Könnun hjá fjórum klúbbum sem halda
vel utan um tölfræðina sýnir að erlendir
kylfingar höfðu leikið 1.443 hringi í lok ágúst
sem er 65% aukning frá sama tíma á síðasta
ári.
Magnús segir að erlendu kylfingarnir
skilji eftir sig tekjur sem klúbbana muni um.
Þeir kaupi yfirleitt mikla þjónustu, leigi golf-
sett og golfbíl og kaupi mat. Áætlað er í
frétt á vef Golfsambands Íslands að klúbb-
arnir fjórir sem könnunin nær til hafi aukið
heildarveltu sína um 15 milljónir með því að
taka við erlendum gestum.
Erlendum kylfingum fjölgar á golfvöllunum
Miðnæturgolfið sérstaklega vinsælt Skilur eftir góðar tekjur hjá golfklúbbunum
Morgunblaðið/Eggert
Golf Stjórnarformaður Golf Iceland áætlar að erlendir gestir hafi spilað 8-10 þúsund hringi á
golfvöllunum í sumar og þeir séu enn að. Það gæti verið 2 þúsund hringjum meira en í fyrra.
Sóttvarnaáætl-
un undirbúin
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Stefnt er að því að undirrita við-
bragðsáætlun sóttvarna fyrir hafnir
og skip öðrum hvorum megin við
næstu áramót, að sögn Þórólfs
Guðnasonar sótt-
varnalæknis. Eft-
ir það þarf að
æfa viðbrögð
þeirra sem eiga
að bregðast við
verði þörf á sótt-
varnaaðgerðum
um borð í skipum
sem hingað koma
eða í íslenskum
höfnum.
Drög að við-
bragðsáætluninni voru kynnt hags-
munaaðilum 1. september sl. Áætl-
unin kveður á um skipulag og
stjórn sóttvarnaaðgerða þegar
grunur leikur á að smitandi sjúk-
dómur eða annað sem ógnað getur
lýðheilsu kemur upp í skipi á leið
hingað til lands, er hér í höfn eða á
leið frá landinu eftir viðkomu hér.
Þetta er í fyrsta sinn sem slík
viðbragðsáætlun er gerð hér á
landi. Þórólfur sagði að búið væri
að gera áætlanir um viðbrögð við
heimsfaraldri inflúensu og um
heilbrigðisatvik í flugvélum sem
koma til Keflavíkurflugvallar. Nú
bætist við viðbragðsáætlun sem
snýr að skipum og höfnum. Hann
sagði að Ísland væri skuldbundið af
alþjóðaheilbrigðisreglugerð
Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar, sem leidd var í lög
2007, til að hafa svona hluti í lagi.
„Ef eitthvað gerist um borð í
skipum þá þarf að vera hægt að
grípa til samræmdra aðgerða sem
hafa verið æfðar,“ sagði Þórólfur.
Dæmi eru um að margir hafi veikst
í farþegaskipi sem kom hingað. T.d.
komu upp torkennileg veikindi í
farþegaskipi fyrir nokkrum árum.
Teymi heilbrigðisstarfsfólks fór um
borð til að kanna ástandið. Veik-
indin reyndust vera hefðbundin
inflúensa. Einnig hafa komið upp
niðurgangspestir sem ekki hafa
kallað á nein sérstök viðbrögð. Þór-
ólfur sagði að viðbragðsáætlunin
næði einnig til eiturefnaslysa um
borð í skipi og hvernig brugðist
yrði við þeim. Hún nær hins vegar
ekki til sjóslysa. Viðbragðsáætlunin
mun ná til alls landsins. Ákveðnar
hafnir eru skilgreindar sem sótt-
hafnir og er þær að finna í hverjum
landshluta.
Gerð áætlunarinnar er á ábyrgð
sóttvarnalæknis og almannavarna-
deildar ríkislögreglustjóra. Í rit-
stjórn sitja fulltrúar sóttvarnalækn-
is, almannavarnadeildar ríkis-
lögreglustjóra, Hafnasambands
Íslands, Umhverfisstofnunar, Heil-
brigðiseftirlits sveitarfélaga, Sam-
göngustofu, Tollstjóra og Landhelg-
isgæslu Íslands.
Sóttvarnir í skipum og höfnum
Þórólfur
Guðnason
Vinnulagi við lagningu heimtauga verður
breytt í kjölfar banaslyss sem átti sér stað þeg-
ar rafvirki fékk rafstraum er hann vann við
lagningu heimtaugar og lést. Í samtali við
mbl.is segir Inga Dóra Hrólfsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Veitna, að drög að nýju skipu-
lagi liggi fyrir og verður það tilbúið á næst-
unni. Hún segir að þeir sem hafi sótt um
heimtengingar þurfi að bíða aðeins lengur eftir þeim eða þar til nýtt vinnu-
lag verði tekið í notkun. Hún eigi ekki von á öðru en þeir sem bíði eftir
tengingu sýni biðlund í ljósi aðstæðna.
Maðurinn sem lést hét Trausti Klemenzson rafvirki og var 62 ára gamall
og lætur hann eftir sig tvo uppkomna syni.
Trausti var ásamt tveimur vinnufélögum að undirbúa tengingu heim-
taugar á nýbyggingarsvæði í Úlfarsárdal upp úr hádegi á föstudag þegar
hann fékk straum úr kapli sem lá frá húsinu, sem verið var að tengja, og
átti að vera straumlaus. Trausti fór í hjartastopp við slysið og endurlífg-
unartilraunir hófust á slysstað. Hann gekkst síðar undir hjartaþræðingu á
sjúkrahúsi en lést aðfaranótt laugardags.
Vinnulagi breytt í kjölfar banaslyss