Morgunblaðið - 07.09.2016, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2016
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Óskar Finnsson, veitingamaður á Ís-
landshótelum, sem situr í veit-
inganefnd Samtaka ferðaþjónust-
unnar, segir að veitingamenn verði
að taka til sín niðurstöðu rannsóknar
MATÍS sem sýndi að í 22% tilfella
var ekki borin fram sú fisktegund
sem pöntuð hafði verið af matseðli.
Greint var frá niðurstöðum rann-
sóknarinnar í Morgunblaðinu fyrr í
vikunni.
Ekki gáleysi um að kenna
„Að sjálfsögðu fögnum við þessu
eftirliti. Hins vegar könnumst við
veitingamenn
sem störfum inn-
an SAF ekki við
þetta og erum
kjaftstopp yfir því
hve há tala þetta
er,“ segir Óskar.
Hann segir að
erfitt sé að gefa
útskýringu á
þessu. Ekki sé
hægt að kenna því um að mögulega
hafi veitingamenn ekki vitað af því að
þeir hafi borið fram rangan fisk. „Það
er erfitt að halda því fram, því innan
SAF eru faglærðir veitingamenn
sem þekkja allan þann fisk sem þeir
reiða fram upp á tíu,“ segir Óskar.
Hann segir þó að í einhverjum til-
vikum kunni þetta að vera mannleg
mistök eða rangur fiskur berist til
veitingamannsins frá fisksala. Það
skýri þó ekki hið háa hlutfall sem hér
um ræðir.
Vonar að svindlarar hætti
Hann segir að fiskurinn sé það
dýrmætasta sem veitingamenn hafa
því ferðamenn vilji borða íslenskan
fisk. „Við verðum bara að vona að
þetta eftirlit verði til þess að þeir sem
eru að svindla, komi til baka og verði
með okkur hinum í liði,“ segir Óskar.
Að sögn hans verður niðurstaða
rannsóknarinnar rædd innan raða
veitingamanna. „Veitinganefndin
mun funda á næstu dögum og vikum
um þetta til þess að reyna að komast
til botns í þessu,“ segir Óskar.
„Kjaftstopp“ yfir háu hlutfalli
Veitingamenn eigi að þekkja þann fisk sem reiddur er fram
Óskar Finnsson
Morgunblaðið/Eggert
Fiskur Óskar segir niðurstöður
rannsóknar koma mjög á óvart.
Hjörtur J. Guðmundsson
Kristján H. Johannessen
„Við höfum í raun teygt okkur alla leið, enda
viðræður staðið yfir frá því í mars. Staðan er
því orðin mjög þröng enda margsinnis búið að
ræða allar þeirra kröfur og þeir þegar fellt tvo
samninga,“ segir Inga Rún Ólafsdóttir, for-
maður samninganefndar sveitarfélaga.
Vísar hún í máli sínu til þeirrar stöðu sem nú
er uppi í kjaradeilu Félags grunnskólakenn-
ara, en meirihluti félagsmanna felldi nýgerðan
kjarasamning í atkvæðagreiðslu í fyrradag og
slíkt hið sama gerðist einnig í júní sl.
Inga Rún segir þegar búið að ganga mjög
langt í því að mæta kröfum grunnskólakenn-
ara í deilunni. „Við höfum verið að koma til
móts við þær kröfur sem þeir hafa sett fram.
En nú er bara þörf á því að setjast niður með
þeim á ný og reyna að fá einhverjar skýringar
á niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar,“ segir hún.
Spurð hvort svigrúm sé til enn frekari
launahækkana en þegar hafi verið boðnar
grunnskólakennurum svarar Inga Rún:
„Í þessum samningi sem felldur var núna
teygðum við okkur talsvert lengra en í þeim
sem felldur var í júní. Og það var algerlega
ljóst á þeim tíma að sá samningur, hefði hann
verið samþykktur, reyndi mjög á þolmörk
sveitarfélaganna. Það hefði því verið mjög erf-
ið sending til sveitarfélaganna að uppfylla
þann samning. Það er því ljóst nú að mjög erf-
itt er að fara að bæta enn frekar í.“
Snýst einna helst um krónutöluna
Sá kjarasamningur sem felldur var nýverið
gerir ráð fyrir 3,5% launahækkunum frá 1.
ágúst, 3% hækkun á næsta ári og 3% á því þar-
næsta. Þá er ennfremur kveðið á um ein-
greiðslu upp á 35.000 krónur í upphafi samn-
ingsins og aðra eingreiðslu við lok samningsins
upp á tæpar 52.000 krónur. Hafa grunnskóla-
kennarar nú verið samningslausir síðan í maí,
en krafa þeirra hefur fyrst og fremst verið að
fá sömu laun og sambærilegar stéttir með
sambærilegt nám að baki.
Ólafur Loftsson, formaður Félags grunn-
skólakennara, segir þörf á að meta stöðuna í
ljósi nýliðinna atburða. „ Fólkið okkar vill
meiri breytingar á launaliðnum, en sveitar-
félögin vilja alls ekki semja um meira og þá er-
um við föst. Þetta er stóra málið – launin eru of
lág og þess vegna er allt annað undir,“ segir
Ólafur og bendir á að kennarar hafi valið að
„fara ekki átakaleiðir“ í deilunni til þessa.
Kennarar senda skýr skilaboð
Páll Erlingsson, formaður Kennarafélags
Reykjaness, segir ljóst að kennarar séu að
senda skýr skilaboð. „Svona sterk skilaboð
hafa ekki verið send í langan tíma,“ segir
hann.
Spurður hvort kennarar séu upp til hópa
reiðubúnir til aðgerða svarar hann: „Sjálfur er
ég til í hvað sem er og finn það á fólki að marg-
ir eru uggandi. En samfélagið verður að vakna
og átta sig á því að það er ástæða fyrir því að
kennarastéttin sé farin að eldast.“
„Höfum í raun teygt okkur alla leið“
Staðan er orðin mjög þröng, segir formaður samninganefndar sveitarfélaga Launin eru of lág, seg-
ir formaður Félags grunnskólakennara Samfélagið verður að vakna, segir kennari á Reykjanesi
Morgunblaðið/Eggert
Skóli Ekki er búið að boða til nýs fundar.
Hið árlega púttmót heimilismanna á Hrafnistu í
Hafnarfirði við bæjarstjórn sveitarfélagsins fór
fram í gær við Hrafnistuheimilið í Hafnarfirði.
Eins og síðustu ár er keppt um farandbikar sem
stendur þó varla undir nafni því hann hefur aldrei
yfirgefið Hrafnistu og mun heldur ekki gera það í
þetta skipti því heimilismenn unnu mótið sem
endranær. „En bæjarstjórnin gerir ætíð sitt
besta,“ segir Pétur Magnússon, forstjóri Hrafn-
istu.
Morgunblaðið/Eggert
Hrafnista vann farandbikarinn
Púttað við bæjarstjórnina í Hafnarfirði
Aflaheimildir upp á fimm þúsund
tonn af kolmunna seldust ekki á upp-
boði í Færeyjum í byrjun vikunnar.
Landstjórnin gerði fyrst kröfu um 30
aura danska, rúmar fimm krónur ís-
lenskar, sem lágmarksverð á kíló, en
engir kaupendur gáfu sig fram.
Þá var lágmarksverðið lækkað í 18
aura danska sem er tveimur aurum
undir auðlinda- eða veiðigjaldi [til-
feingisgjaldi] í kolmunna og enn án
árangurs. Heimildirnar verða á ný
boðnar upp á morgun með breyttum
skilyrðum.
Fram kemur á vef Dimmalætting
að áformað hafi verið að bjóða upp 20
þúsund tonn af kolmunna í fjórum
uppboðum á næstu vikum. Þessi nið-
urstaða boði ekki gott hvað það varði.
Haft er eftir útgerðarmanni í frétt
aktuelt.fo að næg verkefni séu við að
veiða síld og makríl. Að kaupa kol-
munna dýru verði til að veiða um
miðjan desember sé hæpið þar sem
menn viti ekki hvaða verð þeir fái þá
fyrir kolmunna. Í færeyskum miðlum
kemur fram að verðið á uppboðinu
þurfi að lækka og eru 10 aurar fyrir
kílóið m.a. nefndir í því sambandi.
Høgni Hoydal sjávarútvegsráðherra
segir ekki útlokað að verðið lækki enn
frekar. aij@mbl.is
Heimildir í kol-
munna seldust ekki
Verðið lækkað en allt kom fyrir ekki
Flugfélagið
WOW air flutti
226.924 farþega
til og frá landinu
í ágústmánuði
eða um 111%
fleiri farþega en í ágúst í fyrra. Það
sem af er árinu hefur WOW air flutt
um milljón farþega en það er 110%
fjölgun farþega á sama tímabili frá
árinu áður. Sætanýting WOW air í
ágúst var 95% en það er sama nýt-
ing og í ágúst í fyrra. Gengið hefur
vonum framar að fylla nýju 350
sæta Airbus-breiðþoturnar að sögn
Skúla Mogensen, eiganda og for-
stjóra WOW air, í tilkynningu fé-
lagsins.
Flytja 111% fleiri far-
þega nú en í fyrra
Samkvæmt upp-
lýsingum frá Ice-
landair Group í
gær flutti félagið
484 þúsund far-
þega í ágústmán-
uði í millilandaflugi og voru þeir
17% fleiri en í ágúst á síðasta ári.
Sætanýtingin var 87,5% sam-
anborið við 89,1% í ágúst í fyrra.
Framboðsaukning á milli ára nam
22% skv. upplýsingum félagsins.
Farþegar í innanlandsflugi og
Grænlandsflugi voru 36 þúsund í
ágúst. Framboð félagsins jókst um
17% samanborið við 2015. Sætanýt-
ing nam 71,4% og minkaði um 6,3
prósentustig á milli ára.
Mikil fjölgun farþega
Icelandair í ágúst
Lögreglan á Suðurlandi hefur auk-
ið eftirlit sitt í Þorlákshöfn eftir að
greint var frá því í fyrradag að
karlmaður hefði reynt að draga 9
ára dreng inn í bíl til sín.
Átti atvikið sér stað inni í bæn-
um, ekki langt frá grunnskóla bæj-
arins.
Sveinn K. Rúnarsson yfirlög-
regluþjónn segir að tilkynning um
málið hafi borist lögreglu um
klukkan þrjú í fyrradag.
Sveinn segir aðspurður að ekki
hafi verið tekin ákvörðun um hvort
lýst verði eftir manninum út frá
lýsingum drengsins. Áfram verði
fylgst vel með svæðinu, en eins og
áður segir er málið nokkuð óljóst,
meðal annars þar sem engin lýsing
sé á bílnum. Pilturinn gat samt
gefið ágæta lýsingu á manninum.
Eftirlit í Þor-
lákshöfn