Morgunblaðið - 07.09.2016, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2016
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Alltaf eitthvað nýtt!
Hágæða öflugar 12V loftdælur
frá ViAir í Californíu fyrir jeppann, trukkinn
og traktorinn á frábæru verði.
Amerísk hönnun ViAir 70P
ViAir 85P
ViAir 88P
ViAir 450P
Ný sending,
ennþá fleiri
gerðir
Morgunblaðið/Golli
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Ég var svo heppin að fágóðan sýningarstjóra.Þótt ég sé með gott ogspennandi efni, þá er það
uppsetningin sem gerir sýninguna
sterka,“ segir Borghildur Óskars-
dóttir myndlistarmaður um sýn-
ingu sína, „Umhverfismat vegna
Skarðssels við Þjórsá“, í Tjarnarsal
Ráðhúss Reykjavíkur, en sýningin
stendur fram til 11. september.
Sýningarstjórinn sem um ræð-
ir er barnabarn Borghildar og
nafna, Borghildur Indriðadóttir, en
hún stundar nám í arkitektúr í
Berlín. Borghildur segist ekki hafa
verið í neinum vandræðum með að
treysta dótturdóttur sinni fyrir
uppsetningunni. „Hún kom með
nýjar hugmyndir og aðra sýn á
hlutina og bjó t.d. til nýtt rými í
Tjarnarsalnum en það er mjög erf-
itt að setja upp sýningar þar,“ segir
hún.
Á sýningunni hanga stórar
myndir niður úr loftinu og ná að
mynda nýtt rými.
Heiti sýningarinnar vísar með
beinum hætti í inntak sýningar-
innar sem hverfist um umhverfis-
mat Borghildar vegna Skarðssels.
Þar byggðu forfeður hennar bæ og
eftir standa tóftirnar. Þarna verður
fyrirhuguð Hvammsvirkjun, efst af
þremur virkjunum í neðri hluta
Þjórsár og ef af virkjanafram-
kvæmdum verður munu tóftirnar
eyðileggjast. Borghildur er á móti
þessum virkjunum og vill með sýn-
ingunni sýna hverju verður fórnað.
Skarðsselstóftirnar voru
grafnar upp í sumar og var upp-
gröfturinn liður í lögbundnu um-
hverfismati vegna fyrirhugaðra
virkjanaframkvæmda. „Ég vissi
ekki fyrr en samdægurs að þarna
væri verið að grafa. Mér brá þegar
ég kom þangað í júní því þessi stað-
ur hefur lengi verið mér sem heil-
agur. Þetta voru fallegar grónar
Fingraför í náttúru
Umhverfismat vegna Skarðssels við Þjórsá, nefnist sýning Borghildar Óskars-
dóttur myndlistarmanns í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Með sýningunni vill
hún sýna hverju verður fórnað ef af fyrirhuguðum virkjanaframkvæmdum í
Þjórsá verður. Tóftir af bænum Skarðsseli sem forfeður hennar byggðu munu
hverfa. Barnabarn og nafna hennar, Borghildur Indriðadóttir, er sýningarstjóri.
List „Mitt umhverfis-
mat, hér á þessari sýn-
ingu, er um þessi tengsl
umhverfisins við tóft-
irnar, heildarmyndin,“
segir Borghildur. Á þessari vefsíðu er hægt að finna
allt um mikilvægi þess að auka vægi
náttúrunnar í hönnun (e. biophilic
design). Markmiðið með slíkri hönn-
un er að skapa fallegan stað sem
lætur manni líða vel en vellíðan og
sjálfbærni eru höfð að leiðarljósi.
Meistaranemi í innanhúss-
arkitektúr setti saman þessa frá-
bæru vefsíðu. Á henni eru settar
fram aðgengilegar upplýsingar fyrir
hönnuði til að nýta sér í sinni vinnu.
Á vefsíðunni eru birtar rannsóknir
á mikilvægi náttúrunnar í hönnun en
þær ná inn á mörg svið. Þetta er
m.a. sálfræði, umhverfisfræði,
þróunarlíffræði, félagsfræði, arki-
tektúr og sagnfræði svo fátt eitt sé
nefnt.
Við eyðum 90% af tíma okkar inn-
andyra og náttúrleg hönnun hjálpar
m.a. með því að draga úr stressi og
auka andlegt og líkamlegt atgervi.
Vefsíðan www.rootedinnature.org
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Náttúra Fólk er a.m.k. 90% innandyra og hönnunin þarf að taka mið af því.
Mikilvægi náttúrunnar í hönnun
Heilsuborg verður með opinn kynn-
ingarfund á morgun, fimmtudag,
kl. 17.30 til 18.30 í Faxafeni 14. Á
fundinum verður kynnt margvísleg
þjónusta sem styður fólk til betra
lífs, kennir því að styrkja sig og
halda verkjum í lágmarki.
Fundurinn er ætlaður þeim sem
kljást við verki, t.d. bakverki eða
aðra stoðkerfisverki, eru að ná sér
eftir langvinn veikindi og einnig
þeim sem eru með gigt eða vefja-
gigt. Í Heilsuborg finnum við réttu
leiðina fyrir hvern og einn. Að-
gangur er ókeypis og eru allir vel-
komnir.
Endilega...
...fræðist um
stoðkerfisvanda
Morgunblaðið/Kristinn
Hreyfing Fundurinn í Heilsuborg er
ætlaður þeim sem kljást við verki.
Lestur er bestur, út fyrir endimörk al-
heimsins er yfirskrift bókasafns-
dagsins í ár sem er á morgun,
fimmtudaginn 8. september. Til-
gangur dagsins er að vekja athygli á
bókasöfnum og mikilvægi þeirra fyrir
samfélagið.
Bókasöfn gegna mikilvægu hlut-
verki sem miðstöðvar fræðslu og
þekkingar, fyrir framboð á tónlistar-
og myndlistarefni, yndislestri og af-
þreyingu, fyrir aðstoð við upplýs-
ingaöflun og gagnaleit. Bókasöfn eru
auk þess samkomuhús, menningar-
miðstöðvar og góður staður til að
vera á.
Þann áttunda verður einnig kynnt
val starfsfólks bókasafna landsins á
uppáhaldsljóðinu sínu.
Bókasöfnin munu taka á móti gest-
um sínum eins og vanalega þennan
dag. Mörg þeirra verða með sérstaka
dagskrá í tilefni dagsins eða tilbreyt-
ingu í starfsemi sinni sem kynnt er á
vef hvers safns. Flest bókasöfn eru
skráð á www.bokasafn.is.
Bókasafnsdagurinn er í dag
Lestur sem leiðir lesandann út
fyrir endimörk alheimsins
Morgunblaðið/Kristinn
Bókasafn Starfsfólk bóksafna mun taka vel á móti gestum sínum.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.