Morgunblaðið - 07.09.2016, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2016
BLÖNDUNAR-
TÆKJADAGAR
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is • tengi@tengi.is
SÉR
VERÐ
Sturtuhaus
6.500 kr.
Verð áður: 9.337 kr.
SPRING
SÉR
VERÐ
Handlaugartæki
með lyftitappa
9.900 kr.
Ath. eldri gerð
Mora Cera
20%afsláttur
Hlýnun jarðar hefur orðið til þess að
heimshöfin eru „sjúkari“ en nokkru
sinni fyrr, stuðlar að útbreiðslu sjúk-
dóma í dýrum og mönnum og ógnar
matvælaöryggi í heiminum. Áttatíu
vísindamenn frá tólf löndum komast
að þessari niðurstöðu í nýrri skýrslu
sem byggist á umfangsmestu rann-
sókninni til þessa á áhrifum hlýnun-
arinnar á höfin.
Einn höfunda skýrslunnar, Dan
Laffoley, segir að höfin hafi tekið til
sín rúm 93% af hlýnuninni af völdum
loftslagsbreytinga í heiminum frá
áttunda áratug aldarinnar sem leið
og það hafi haft mikil áhrif á lífríki
sjávar.
Ógnar heilsu manna
Rannsóknin náði til allra helstu
þáttanna í lífríkinu, allt frá örverum
til hvala. Meðal annars kemur fram
að svif, marglyttur og sjófuglar hafa
færst um allt tíu breiddargráður í
áttina að kaldari sjó við heimskautin.
Laffoley telur að þessi tilfærsla í
höfunum sé 1,5 til fimm sinnum
hraðari en tilfærslan á lífverum á
landi. „Við erum að breyta árstíð-
unum í höfunum,“ hefur fréttaveitan
AFP eftir honum.
Hlýnunin ýtir undir súrnun sjávar
og verður einnig til þess að sýkjandi
örverur herja á stærri svæði í heims-
höfunum. Vísindamennirnir segja að
fram hafi komið vísbendingar um að
hlýnun sjávar sé byrjuð „að valda
auknum sjúkdómum í plöntum og
dýrum“. Eitraður þörungagróður,
sem getur valdið taugasjúkdómum,
og sýklar á borð við gerla sem valda
kóleru berast hraðar út í hlýjum sjó
og hlýnunin hefur því bein áhrif á
heilsu manna, að sögn vísindamann-
anna.
Minnkar matvælaöryggi
Hlýnun sjávar hefur einnig stuðl-
að að því að kóralrif eyðast nú hrað-
ar en nokkru sinni fyrr og heim-
kynni fiska eyðileggjast. Þetta hefur
orðið til þess að ákveðnir fiskstofnar
hafa minnkað og dregið úr matvæla-
öryggi. „Gert er ráð fyrir því að
sjávaraflinn minnki um 10-30 af
hundraði í Suðaustur-Asíu fyrir árið
2050, miðað við árin 1970-2000,
vegna breytinga á dreifingu fiskteg-
unda,“ segir í skýrslunni.
„Við vitum öll að höfin halda lífinu
á jörðinni gangandi,“ hefur AFP eft-
ir Inger Andersen, framkvæmda-
stjóra alþjóðlegu náttúruverndar-
samtakanna IUCN. „Samt erum við
að sýkja höfin.“
Vísindamenn segja niðurstöður
skýrslunnar staðfesta þörfina á því
að auka sem fyrst notkun endur-
nýjanlegra orkugjafa. „Við þurfum
að draga úr losun lofttegunda sem
valda gróðurhúsaáhrifunum,“ hefur
AFP eftir Carl Gustaf Lundin, sem
stjórnar rannsóknum IUCN á
heimshöfunum. „Það leikur enginn
vafi á því í mínum huga að við völd-
um þessu. Við vitum hverjar lausn-
irnar eru. Við þurfum að koma okk-
ur að verki.“ bogi@mbl.is
„Erum að sýkja
heimshöfin“
Hlýnun sjávar stuðlar að útbreiðslu
sjúkdóma Sjávarafli minnkar
Yfirvöld á Spáni telja að brennuvargar hafi kveikt
gróðurelda sem hafa valdið usla nálægt bænum Beni-
dorm á Costa Blanca. Um 1.400 íbúar og ferðamenn á
strandlengjunni hafa þurft að flýja heimili sín eða hótel
vegna eldanna.
Hundruð slökkviliðsmanna og flugvélar reyndu í
gær að slökkva stærsta eldinn sem geisað hefur frá því
á sunnudag nálægt bænum Jávea, norðan við Beni-
dorm. Annar eldur kviknaði í gær nálægt bænum Bo-
lulla í Valensíu, um 40 kílómetra vestan við Jávea, og
þriðji skógareldurinn geisaði á Miðjarðarhafseyjunni
Menorca.
José María Ángel Batalla, sem stjórnar almanna-
varnaþjónustu á Costa Blanca-svæðinu, sagði að einn
eða fleiri brennuvargar hefðu kveikt stærsta skógar-
eldinn í grennd við Jávea. Fundist hefðu nokkrir
bensínbrúsar á svæði þar sem þrír eða fjórir eldar
munu hafa verið kveiktir skömmu fyrir sólsetur á
sunnudag. Slökkviliðsmenn höfðu því lítinn tíma til að
slökkva eldana fyrir myrkur.
Stærsti eldurinn hafði í gær farið yfir 800 hektara
svæði nálægt hótelum í Jávea þar sem margir ferða-
menn frá Bretlandi og Þýskalandi gista, að sögn frétta-
veitunnar AFP.
Mikil hætta hefur verið á skógareldum víða á Spáni
frá því um helgina vegna hitabylgju. Hitinn hefur farið
yfir 40 stig á Celsíus á sumum svæðum. Lítill loftraki
og snarpur vindur torveldaði slökkvistarfið í fyrstu en
slökkviliðsmenn sögðu í gær að aðstæðurnar hefðu
batnað. bogi@mbl.is
AFP
Brennuvargar taldir hafa kveikt
gróðurelda á Costa Blanca
Eldar valda usla Flugvél varpar vatni á skógareld nálægt byggðu svæði meðfram ströndinni í grennd við bæinn
Jávea í Valensíu. Um 1.400 manns hafa þurft að flýja gróðurelda á Costa Blanca, þeirra á meðal ferðamenn.
AFP
Eldur slökktur Slökkviliðsmenn að störfum nálægt
ferðamannabænum Jávea, sem er með 33.000 íbúa.
Barack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, aflýsti í gær viðræðum við
Rodrigo Duterte, forseta Filipps-
eyja, sem hafði
kallað Obama
„hóruson“.
Gert hafði ver-
ið ráð fyrir því að
Obama og Du-
terte ættu fund
síðdegis í gær í
Vientiane, höfuð-
borg Laos, í
tengslum við ár-
legan leiðtoga-
fund Samtaka Suðaustur-Asíuríkja.
Áður höfðu bandarísk stjórnvöld
gagnrýnt manndráp og aftökur án
dóms og laga í „stríði gegn fíkniefn-
um“ sem Duterte hóf þegar hann
varð forseti Filippseyja 30. júní. Tal-
ið er að síðan þá hafi nær 3.000
manns verið líflátin án dóms og laga
á Filippseyjum, eða 44 að meðaltali á
dag, m.a. fólk sem grunað er um að
hafa neytt fíkniefna og saklaust fólk
sem varð á vegi dauðasveitanna,
þeirra á meðal fimm ára barn.
Duterte sagði í fyrradag, áður en
hann hélt til Vientiane, að hann
myndi ekki hlusta á neinar að-
finnslur frá forseta Bandaríkjanna á
fundinum í Laos. „Hórusonur, ég
ætla að bölva þér á þessum vett-
vangi,“ sagði hann þegar fréttamenn
spurðu hver skilaboð hans til Obama
væru.
Duterte gaf seinna út yfirlýsingu
þar sem hann kvað það hryggja sig
að orð sín skyldu hafa verið túlkuð
sem „persónuleg árás“ á forseta
Bandaríkjanna.
Óformlegur fundur líklegur
Einn helstu aðstoðarmanna
Obama, Ben Rhodes, sagði í gær að
tengsl Bandaríkjastjórnar við
stjórnvöld á Filippseyjum væru enn
sterk þótt ákveðið hefði verið að af-
lýsa viðræðum forsetanna. Hann
bætti við að Obama myndi líklega
eiga óformlegan fund með Duterte í
Vientiane í dag eða á morgun þótt
formlegar viðræður kæmu ekki til
greina.
Áður hafði Duterte lýst sendi-
herra Bandaríkjanna í Manila sem
„hommatitti“ og „tíkarsyni“ vegna
gagnrýni hans á manndrápin á Fil-
ippseyjum. Forsetinn kallaði einnig
Frans páfa „hóruson“ vegna
umferðarteppu sem varð í Manila
þegar páfi heimsótti Filippseyjar í
fyrra. bogi@mbl.is
Obama aflýsti
fundi með Duterte
Forsetinn kallaði Obama „hóruson“
Rodrigo Duterte
Tveimur fyrrverandi rektorum
ríkisháskólans Karólínsku stofn-
unarinnar í Stokkhólmi hefur verið
vikið úr nefnd sem velur þá sem
hljóta nóbelsverðlaunin í læknis-
fræði. Ástæða brottvikningarinnar
er þáttur þeirra í barkaígræðslu-
máli skurðlæknisins Paolo Macchi-
arini sem var sagt upp störfum hjá
háskólasjúkrahúsi Karólínska eftir
að tveir sjúklingar hans dóu. Áður
hafði sænska ríkisstjórnin leyst
stjórn Karólínska frá störfum
vegna málsins.
STJÓRN KARÓLÍNSKA Í STOKKHÓLMI VIKIÐ FRÁ STÖRFUM
Vikið úr nóbelsverðlaunanefnd