Morgunblaðið - 04.10.2016, Page 1

Morgunblaðið - 04.10.2016, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 4. O K T Ó B E R 2 0 1 6 Stofnað 1913  232. tölublað  104. árgangur  HEIMSPEKI- LEGT SPJALL FEÐGINA AUKIN ÁSÓKN Á NORÐURSLÓÐIR FLETT OFAN AF MYRKUM HVÖTUM ÞYRLUKAUP 14 HORFT FRÁ BRÚNNI 30GUÐNI OG STEINA 12 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Á milli 40 og 60 hælisleitendur munu hafa aðsetur á Krókhálsi 5b í Reykja- vík frá og með deginum í dag. Þar var áður til húsa Lögregluskóli ríkisins en lögreglunám hefur nú færst upp á háskólastig og verður boðið upp á námið í Háskólanum á Akureyri. Ólöf Nordal innanríkisráðherra sagði við Morgunblaðið í gær, að hér væri um tímabundna ráðstöfun að ræða, vegna mikillar þarfar fyrir húsnæði fyrir hælisleitendur. „Þetta er tímabundin neyðarráð- stöfun, þar sem Útlendingastofnun fær til afnota húsnæðið á Krókhálsi, til þess að koma þar fyrir hælisleit- endum. Það verða tveir mánuðir að hámarki, sem stofnunin hefur hús- næðið til afnota, til þess að leysa úr bráðavanda,“ sagði innanríkisráð- herra. Ólöf sagði að þetta úrræði hefði ekkert að gera með framtíðaráform um not af húsinu, en þar hefur m.a. verið æfingaaðstaða fyrir lögregl- una. Skotvopn og búnaður á brott Sá hluti lögreglunámsins, sem ekki fer fram við Háskólann á Ak- ureyri, fluttist til embættis Ríkislög- reglustjóra. Í Krókhálsi 5b hefur verið æfinga- og þjálfunaraðstaða fyrir lögreglumenn undir heitinu Mennta- og starfsþróunarsetur lög- reglunnar. Lögreglan hefur nú rýmt húsnæðið, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, flutt á brott skot- vopn og annan búnað lögreglu. Ekki lá ljóst fyrir í gær, hvar Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu verður til húsa næstu mánuði. Ekki náðist í Kristínu Völundar- dóttur, forstjóra Útlendingastofnun- ar, í gær. Tímabundin neyðarráðstöfun  40-60 hælisleitendur munu hafa aðsetur í húsakynnum lögreglu við Krókháls  Tveir mánuðir að hámarki  Til að leysa úr bráðavanda, segir innanríkisráðherra Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi formaður Framsókn- arflokksins, sem beið lægri hlut fyrir Sigurði Inga Jóhannssyni í formannskjöri Framsóknar- flokksins í fyrradag, hefur tekið ákvörðun um að hann muni halda áfram sem odd- viti Framsókn- arflokksins í Norðaustur- kjördæmi. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa fjölmargir skorað á Sigmund Davíð, allt frá því að niðurstöður formannskosninganna voru ljósar í fyrradag, að halda ótrauður áfram og samkvæmt sömu heim- ildum hefur hann tekið þá ákvörðun að verða við þeim áskorunum. Reiðubúnir að teygja sig langt Heimildir Morgunblaðsins herma enn fremur að tal um að Sigmundur Davíð og hugsanlega Gunnar Bragi Sveinsson, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra, myndu kljúfa flokkinn eigi ekki við rök að styðjast. Morgunblaðið hefur einnig heimildir fyrir því að þrátt fyrir erfitt og átakamikið flokksþing Framsóknarflokksins um liðna helgi sé sáttavilji fyrir hendi. Menn úr báðum röðum séu reiðubúnir til þess að teygja sig nokkuð langt til þess að var- anlegar sættir geti náðst, enda séu þingkosningar fram undan og mikið í húfi fyrir báðar fylkingar. Sigmund- ur áfram oddviti  Sáttavilji fyrir hendi  Mikið í húfi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Það dugðu engin vettlingatök við að lyfta þessum bráðmyndarlega þorski sem varð á vegi forsetahjónanna Guðna Th. Jóhannessonar og Elizu Reid á ferð þeirra um Vesturbyggð í gær, en þau eru nú þar í opinberri heimsókn. Piotr Kozuch, verkstjóri í saltfiskvinnslu Odda á Patreksfirði, og Skjöldur Pálmason, yfirverkstjóri Odda, léttu undir með hjónunum. Stórir þorskar eru stundum kallaðir golþorskar eða búraþorskar og þessi vó heil 35 kíló. Forseti með vænan þorsk í fangi Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson  Byggingarnar að Laugum í Dölum verða seldar á næstunni; skólahús, íþróttasalur, sundlaug, hótel og fjög- ur íbúðarhús. Alls eru þessar bygg- ingar 3.880 fermetrar og er bruna- bótamat þeirra rösklega einn milljarður króna. Að sögn Sveins Pálssonar, sveitarstjóra í Dala- byggð, hefur lengi legið í loftinu að fasteignir að Laugum yrðu seldar, en þar sjá menn tækifæri í ferða- þjónustu. „Við höfum að undanförnu fengið bæði hringingar og heim- sóknir frá fólki sem er áhugasamt um kaup,“ segir sveitarstjórinn. Að Laugum var lengi starfræktur heimavistarskóli fyrir sveitahrepp- ana í Dölum. Svo breyttust aðstæður og skólahald var flutt í Búðardal. Nú er að Laugum rekið sumarhótel og ungmennabúðir fyrir nemendur 9. bekkjar grunnskólans eru þar á vet- urna. » 4 Skóli, íþróttasalur, sundlaug, hótel og fjög- ur íbúðarhús í Dölunum seld í einum pakka Morgunblaðið/Sigurður Bogi Dalir Laugabyggingar eru til sölu og áhugi virðist vera á kaupum. „Ríki og sveitarfélög eru sammála um að frumvarpið sé í samræmi við samkomulagið. Mér virðist sem hér sé verið að tefla fram nýj- um samningskröfum,“ segir Bjarni Benediktsson fjár- málaráðherra en bæði Kenn- arasamband Íslands og BSRB hafa lýst því yfir að frumvarp ráð- herrans um Lífeyrissjóð starfs- manna ríkisins sé þvert á sam- komulag sem ríki og sveitarfélög gerðu við bandalögin 19. sept- ember síðastliðinn. „Frumvarpið var lesið yfir af sérfræðingum samtakanna áður en það var lagt fyrir þingið og þá komu ekki fram þessar at- hugasemdir. Það vekur með mér grunsemdir um að það sem sé í reynd að gerast sé að samstaðan til að ganga frá málinu sé að brotna innan heildarsamtak- anna. Sé það raunin verður frumvarpið ekki afgreitt, þá verður heldur ekkert framlag greitt inn í LSR á fjáraukalögum — það verður aft- urkallað, og það stefnir þá í að ið- gjöldin hækki verulega um næstu áramót. Í framhaldinu er samstarf aðila á vinnumarkaði í talsverðri óvissu,“ segir Bjarni. Var ljóst allan tímann Málið strandi á því að eftir gerð samkomulagsins fari heildar- samtökin, KÍ og BSRB, fram á að opinberir starfsmenn hafi áfram ríkisábyrgð á lífeyrisréttindum sínum inn í langa framtíð. „En það var ljóst allan tímann og grund- vallaratriði af hálfu ríkisins að bak- ábyrgð ríkisins yrði felld niður.“ laufey@mbl.is » 10 Stefnir samstarfi í óvissu Bjarni Benediktsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.