Morgunblaðið - 04.10.2016, Side 14

Morgunblaðið - 04.10.2016, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2016 Íshella 10 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100Mynd: Björgunarmiðstöð Hjálparsveitar skáta Kópavogi. Þeir semgerakröfur veljaHéðinshurðir Fáðu tilboð í hurðina Fylltu út helstu upplýsingar á hedinn.is og við sendum þér tilboð um hæl. mílur frá strönd, sem eru ystu mörk efnahagslögsögunnar. Þær geti at- hafnað sig í 30 mínútur á slysstað, tekið 10 manns um borð og náð til baka inn á eldsneytisstað. Með þessu móti væri hægt að sinna leit og björgun með þyrlu innan allrar efnahagslögsögunnar. Grunnkrafan sé að mögulegt sé að bjarga einni skipsáhöfn togara (í dag um 20 ein- staklingum) innan íslensku efna- hagslögsögunnar. Til að mæta þeirri kröfu þurfi ávallt að hafa til taks tvær þyrlur til björgunar á sjó. Sjö þjálfaðar áhafnir Fram kemur í skýrslunni að reynsla Landhelgisgæslunnar sé sú að með því að hafa þrjár þyrlur í rekstri sé mögulegt að hafa tvær þyrlur til taks um 92% ársins. Gera megi ráð fyrir að með nýjum björg- unarþyrlum verði mögulegt að hafa tvær þyrlur til taks meira en 92% ársins vegna betri tækjabúnaðar nýrra þyrla og einfaldari viðhalds- áætlana. Til þess að manna tvær viðbragðshæfar áhafnir meginhluta ársins þurfi LHG að hafa sjö þjálf- aðar áhafnir. Til að viðhalda lág- markshæfni sjö áhafna þurfi að fljúga vélunum um 1.246 klukku- stundir á ári, auk 22 flugstunda á hverja áhöfn í flughermi, alls 1.400 klukkustundir. Í dag hefur LHG yfir að ráða fimm áhöfnum sem þýðir að allt árið er ein áhöfn til taks en aðeins um 35% ársins eru tvær áhafnir til taks. Af því leiðir að um 65% ársins er ekki hægt að sinna verkefnum á sjó og 55% ársins er ekki hægt að nýta þær þyrlur sem eru til taks vegna skorts á áhöfnum, segir í skýrslunni. Mikilvægar í viðbragðskerfi „Líkur eru á að notkun björg- unarþyrla LHG muni aukast á næstu árum og áratugum og að þær verði áfram mikilvægur þáttur í við- bragðskerfi Íslands við björgun jafnt á sjó og landi,“ segir m.a. í skýrslunni. Eftirtaldir aðilar voru skipaðir í stýrihópinn: Eyjólfur Árni Rafnsson verkfræðingur, formaður, Georg Lárusson, forstjóri Landhelgis- gæslu Íslands, Sigurður H. Helga- son, skrifstofustjóri í fjármála- og efnhagsráðuneytinu, Pétur U. Fen- ger og Þórunn J. Hafstein, skrif- stofustjórar í innanríkisráðuneytinu. Þyrlukaup eru skynsamlegust  Stýrihópur leggur til að ríkið kaupi þrjár þyrlur fyrir Landhelgisgæsluna  Kostnaður er áætl- aður 14,2 milljarðar  Miða við að tvær þyrlur verði ávallt til taks og geti flogið 235 sjómílur á haf út Morgunblaðið/Árni Sæberg Þyrluflug Líkur eru á að notkun björgunarþyrla LHG muni aukast verulega á næstu árum og áratugum. Þyrluflotinn » Landhelgisgæslan rekur þrjár stórar björgunarþyrlur í dag, ein er eign LHG og hinar tvær eru leigðar. » Þyrla LHG, TF-LIF, var smíð- uð 1986 og er því orðin 30 ára gömul auk þess sem kominn er tími á endurnýjun á hluta bún- aðar hennar. » Leigusamningar vegna leiguvélanna tveggja, TF-GNA og TF-SYN, renna út á árunum 2017 og 2018. BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Skynsamlegasti kosturinn er að Landhelgisgæslan hafi yfir að ráða þremur þyrlum sem séu allar hlið- stæðar að stærð og getu og þær þyrlur sem LHG hefur yfir að ráða í dag. Þetta var niðurstaða stýrihóps sem innanríkisráðherra skipaði í september 2015 til að tryggja leitar- og björgunarþjónustu innan efna- hagslögsögu Íslands til framtíðar með endurnýjun á þyrlum Land- helgisgæslu Íslands. Hópurinn skil- aði skýrslu til ráðherra í janúar á þessu ári. Eins og Ólöf Nordal inn- anríkisráðherra sagði í Morgun- blaðinu á laugardaginn hefur verið ákveðið að ráðast í kaup á þyrlum og væntanlega verða fjármunir til kaupanna inni í fjárlögum ársins 2018. Tillaga stýrihópsins er sú að kaupa þrjár þyrlur. Heildarfjárfest- ing þessa er áætluð um 13.900 millj- ónir króna og annar kostnaður sem felst í útboðskostnaði og ráðgjöf við útboðsferlið er áætlaður um 300 milljónir. Heildarkostnaður verk- efnisins er því áætlaður um 14,2 milljarðar króna. Eftir talsverða skoðun metur starfshópurinn það svo að hagkvæmara sé að eiga þyrl- ur en að leigja þær. Fyrir þrjár þyrlur geti sá kostnaðarmunur numið allt að 500 milljónum króna á ári. Geta tekið 10 manns um borð Þeir þættir sem helst ráða hvern- ig þyrlur verða keyptar snerta kröf- ur um björgunargetu þyrla Land- helgisgæslunnar á sjó, segir í skýrslunni. Í lögum er starfssvæði LHG skilgreint sem hafið umhverfis Ísland og afmarkast af efnahags- lögsögu landsins og landgrunninu, auk úthafsins samkvæmt reglum þjóðaréttar. Á grundvelli þessa hef- ur verið lagt upp með að þyrlur LHG hafi drægi til að fara 235 sjó- Áætluð þróun verkefna LHG næstu fimm árin, miðað við núverandi sam- setningu viðfangsefna:  Gert er ráð fyrir fjölgun útkalla vegna aukins fjölda ferðamanna næstu fimm árin og að heildarfjöldi útkalla aukist um 60% eða í um 320 útköll á ári árið 2020.  Fátt bendir til mikillar breytingar á fjölda útkalla vegna fiskiskipa fram til ársins 2020 og má reikna með að fjöldi þeirra standi í stað hvort sem er á grunnslóð eða djúpslóð. Hins vegar má gera ráð fyrir aukningu á útköllum á djúpslóð samhliða aukinni hlýnun sjávar og vaxandi sókn fiskiskipa á norðlægar slóðir.  Líklegt er að útköllum í farþegaskip fjölgi á næstu 10 árum, bæði á grunnslóð og djúpslóð við landið.  Rannsóknir og möguleg olíuvinnsla á Drekasvæðinu mun hafa áhrif á þróun mála á djúpslóð. Ef frekari rannsóknir og síðar vinnsla á Dreka- svæðinu verða að veruleika má gera ráð fyrir fjölgun útkalla þar. Aukin ásókn á norðurslóðir ÚTKÖLLUM VEGNA FERÐAMANNA MUN FJÖLGA Á NÆSTU ÁRUM Stefnt er að útleigu stóra skrifstofu- og verslunarhússins á horni Breið- holtsbrautar og Ögurhvarfs í Kópa- vogi fyrir heilsutengda starfsemi og aðra atvinnustarfemi. Þegar hefur verið ákveðið að þar verði ný einka- rekin heilsugæslustöð opnuð á næsta ári og jafnvel apótek. Fleiri mál eru í athugun, að sögn Skúla Gunnars Sigfússonar, eins af eigendum hússins, og telur hann að það myndi til dæmis henta vel fyrir læknastofur. Húsið er við Urðarhvarf 8. Það er sex hæða, alls rúmlega 16 þúsund fermetrar að stærð, á áberandi stað. Útsýni er yfir Elliðaárdalinn. Gert er ráð fyrir rúmlega 300 bílastæðum í kjallara og 150 á lóð. Búið var að steypa húsið upp í hruninu en bygg- ing þess stöðvaðist þá að mestu. Þó var það glerjað. Íslandsbanki yfirtók það af verktakanum og fyrir tæpum tveimur árum var það selt til fjög- urra einstaklinga og fyrirtækja sem standa að einkahlutafélaginu Heilsu- boganum. Aukin eftirspurn Húsið var áfram auglýst til sölu eða leigu en nú hafa eigendurnir ákveðið að leggja áherslu á að koma því í leigu, helst fyrir heilsutengda starfsemi. Skúli segir að þó ekki sé langt síðan núverandi eigendur komu að húsinu finni þeir að ástand- ið sé breytt á markaðnum. Vaxandi eftirspurn sé eftir atvinnuhúsnæði. Fyrirhrunshúsin séu smám saman að fyllast. Hann segir að úttektir sýni að húsið að Urðarhvarfi 8 sé vel byggt og það hafi ekki orðið fyrir miklum skemmdum á þeim langa tíma sem það stóð óklárað. Ýmislegt þurfi að snurfusa og byrjað sé á því. Meðal annars er verið að einangra húsið og koma hita á það. helgi@mbl.is Heilsutengt starf á horninu  Urðarhvarf 8 vaknar til lífsins á ný Morgunblaðið/Árni Sæberg Heilsuboginn Hluti heilsutengda hússins að Urðarhvarfi 8.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.