Morgunblaðið - 04.10.2016, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 04.10.2016, Blaðsíða 13
Ljósmynd/Maria Henningsson Feðgin Guðni Már segir Steinu Elenu ákaflega heimspekilega þenkjandi og mikla sögumanneskju. fyrir hraða nútímans,“ útskýrir hans. Á Karolina fund bjóðast styrktaraðilum Það er rafmagns- laust hjá selunum nokkrir kostir. Einn er að fá áritað eintak af bókinni og málverk eftir Guðna Má. „Ég sé á vefsíðunni að nokkrir hafa valið þann kost,“ segir listamaðurinn, hæstánægður með undirtektirnar. „Vantar bara herslumuninn,“ bætir hann við. „Mikið hefur hann Megas fallega rödd“ Kippir Steina í kynið hvað tón- listaráhugann og listhneigðina áhrærir? „Hún hefur fengið afskaplega gott tónlistaruppeldi,“ svarar Guðni Már sposkur og eignar sér aug- ljóslega heiðurinn. „Hún biður mig alltaf að spila óskalag í Næturvakt- inni, oftast The Robot, sem er tölvu- tónlist með þýsku hljómsveitinni Kraftwerk, og Adam Raised a Cain með Bruce Springsteen. Einu sinni spilaði ég fyrir hana Nú er ég klæddur og kominn á ról, barnaplötu Megasar fyrir fullorðna, og hélt að hún yrði hálfsmeyk eins og eldri dóttir mín, sem fór að hágrenja. Steina aftur á móti hlustaði af at- hygli og sagði svo hugfangin: „Mikið hefur hann Megas fallega rödd.“ Hún hefur einnig gaman af Kardi- mommubænum og annarri tónlist fyrir börn, en teiknar eins og krakk- ar gera á þessum aldri. Hins vegar kann hún flesta bókstafina og skrif- ar heilu stafarunurnar. Svo kemur hún með blaðið til mín og biður mig að lesa. Þegar ég spyr af hverju hún geri það ekki sjálf, svarar hún að hún geti það auðvitað ekki því hún kunni ekki að lesa.“ Hæsin hefur rjátlast af Guðna Má eftir því sem á samtalið líður. Hann segir sér óðum vera að batna og kveðst ekki munu bregðast trún- aðarvinum sínum og -vinkonum á Næturvaktinni, sem margir hverjir hafi haldið tryggð við hann í meira en tvo áratugi. Og hringt samanlagt um tíu þúsund sinnum, giskar hann á. www.karolinafund.com/project/ view/1513 DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2016 Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is Enn er bætt um betur með nýju ReSound heyrnartækjunum sem gefa eðlilega og áreynslulausa heyrn. Taktu þátt í framþróuninni og prófaðu þessa hágæða tækni. Aldrei hefur verið auðveldara að heyra GOLDEN LOBE AWARDS 2014 ASSOCIATION OF INDEPENDENT HEARING HEALTHCARE PROFESSIONALS Most Innovative Concept 2014 presented to: Resound - LiNX made for iPhone Steina Elena var háttuð og komin upp í rúm. Það hafði verið mikið að gera hjá henni í dag. Sól og hlýtt úti og í slíku veðri er gaman að róla og hlaupa um með öðrum börnum. Einnig hafði nafna hennar frá útlöndum komið í heimsókn, sem og stóra systir með manninn sinn og strákinn sinn og frænda litla sem er á svipuðum aldri og Steina. Og því hélt pabbi að litla stelpan myndi detta út af þegar í rúmið væri komið. En nei, ekki alveg. Fyrst þurfti að ræða ástand heims- ins og önnur vandamál. – Pabbi. Það er undarlegt hversu fáir tímar eru í deginum. Ég get horft á hann fara frá okkur. Sjáðu hérna út um gluggann, sólin er að fara að sofa. Hún er orðin syfjuð. Kannski vegna þess að hún þurfti að búa til svo stóran regn- boga í dag. – Það gæti verið, svaraði pabbi, en dagurinn er alltaf að verða styttri og styttri og nóttin að lengjast. Steina velti þessu fyrir sér smá- stund og sagði síðan: – Pabbi, það er ekki langt síðan að þú sagðir mér að dagurinn væri að lengjast og nóttin að verða styttri. Var ekk- ert að marka það? – Jú, Steina mín. Það er alveg að marka það, en tíminn líður og bráðum kemur haustið og þá verð- ur aftur dimmt á kvöldin og um nætur. – En pabbi, sagði Steina og þagnaði síðan. Pabbi beið eftir næstu spurningu, en hún kom ekki. Þess í stað stóð Steina upp og náði í sparibaukinn sinn. – Pabbi, sagði hún aftur. – Það eru engir peningar í bankanum! – Hvað segir þú, barn? – Já, þeir eru allir í bauknum mínum. Við verðum að fara með þá í bankann á morgun. – Áttu svona marga peninga? – Já. – Við verðum þá að fara í bank- ann á morgun og bjarga málunum. – Gerum það. En nú er sólin sofnuð og ég ætla að sofna núna. Steina setti sparibaukinn sinn við koddann í rúminu sínu og tók bangsann í fangið. – Góða nótt, pabbi minn. Á morgun skulum við bjarga bank- anum. Pabbi sagði góða nótt og óskaði sér að bankamálin væru svona ein- föld. SAGA ÚR BÓKINNI ÞAÐ ER RAFMAGNSLAUST HJÁ SELUNUM Steina og bankinn Ljósmynd/Maria Henningsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.