Morgunblaðið - 04.10.2016, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2016
MARC O’POLO STORE
Kringlan Shopping Center
Kringlan 4–12
Reykjavik
4. október 2016
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 113.56 114.1 113.83
Sterlingspund 146.3 147.02 146.66
Kanadadalur 86.83 87.33 87.08
Dönsk króna 17.128 17.228 17.178
Norsk króna 14.257 14.341 14.299
Sænsk króna 13.288 13.366 13.327
Svissn. franki 116.85 117.51 117.18
Japanskt jen 1.12 1.1266 1.1233
SDR 158.64 159.58 159.11
Evra 127.56 128.28 127.92
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 158.9306
Hrávöruverð
Gull 1318.65 ($/únsa)
Ál 1658.5 ($/tonn) LME
Hráolía 49.18 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Icelandair gerir
ráð fyrir að árið
2017 verði fjöldi
farþega félagsins
4,2 milljónir og að
flugáætlun þess
verði 13% um-
fangsmeiri en á
þessu ári, sam-
kvæmt tilkynningu
til Kauphallar.
Skýrist það ann-
ars vegar af auknu vægi flugs á lengri
flugleiðum til Norður-Ameríku og hins
vegar fjölgunar stærri flugvéla. „Sam-
hliða birtingu uppgjörs fyrir annan árs-
fjórðung í júlí lækkuðum við afkomuspá
félagsins, aðallega vegna lækkunar
meðalfargjalda. Samt sem áður gerum
við ráð fyrir að árið 2016 verði eitt
besta rekstrarár í sögu félagsins,“ er
haft eftir Björgólfi Jóhannssyni, for-
stjóra Icelandair Group. Gengi félagsins
hækkaði um 4,1% í Kauphöllinni í gær í
kjölfar birtingar tilkynningarinnar.
Icelandair spáir 13%
vexti og gengið hækkar
Björgólfur
Jóhannsson
STUTT
Ólafur Fáfnir Sigurgeirsson
olafur@mbl.is
Skuldastaða og eiginfjárhlutföll heimil-
anna héldu áfram að batna á árinu
2015 samkvæmt nýjum tölum frá Hag-
stofunni. Tölurnar sem unnar eru út
frá skattframtölum landsmanna sýna
að hagur allra aldurshópa batnaði milli
áranna 2014 og 2015.
Eiginfjárstaða hækkar mest í ald-
urshópunum 25 til 39 ára, eða úr 55
milljörðum króna í 111 milljarða króna.
Heildar eigið fé heimilanna hækkar úr
2.519 milljörðum í 2.949 milljarða, eða
um 17%.
Um 76% með jákvætt eigið fé
Mikill meirihluti heimila er með já-
kvætt eigið fé samkvæmt tölum Hag-
stofunnar en um 76% þeirra eru með
jákvæða eiginfjárstöðu, sem er 6,9%
aukning milli ára. Virðast heimilin
njóta hækkandi húsnæðisverðs og
hækkunar á hlutabréfamarkaði. Heim-
ilum með neikvæða eiginfjárstöðu
fækkaði hins vegar um 11% í fyrra.
Alls voru 22% heimila enn með nei-
kvæða eiginfjárstöðu árið 2015.
Þegar tekið er tillit til neikvæðrar
eiginfjárstöðu í húsnæði þá fækkar
mjög í þeim hópi milli ára. Árið 2015
voru 7.320 fjölskyldur með neikvætt
eigið fé í fasteign sinni sem var lækkun
um 57% milli ára.
Svo virðist sem sparnaður sé að
aukast en innlán jukust um 5,9%, úr
um 538 milljörðum í tæpa 560 millj-
arða, á meðan heildarskuldir lands-
manna lækkuðu úr 1.897 milljörðum í
1.842 milljarða, eða um tæp 3% milli
ára. Þegar skuldastaða landsmanna er
skoðuð nánar með tilliti til aldursdreif-
ingar, þá virðist sem þeir sem séu
skuldsettastir séu á aldrinum 40 til 44
ára og giftir með börn.
Nýr toppur í bílalánum
Landsmenn voru hins vegar dugleg-
ir að endurnýja bíla sína en aukning
varð í bílalánum um tæp 10% milli ára.
Þau standa núna í 220 milljörðum
króna sem er hærra í krónum talið en
síðasti toppur í bílalánum, sem settur
var árið 2008. Bílalán þá námu um 200
milljörðum króna á verðlagi þess árs.
Bæði heildareignir og eigið fé hjá
íbúum höfuðborgarsvæðisins jukust
meira en á landsbyggðinni en rekja má
það til meiri hækkunar fasteignaverðs
á höfuðborgarsvæðinu heldur en úti á
landi.
Á höfuðborgarsvæðinu hækkuðu
heildareignir heimila um 8,9% og eigið
fé um 17,3%, en á landsbyggðinni voru
samsvarandi hækkanir 7,25% og
16,5%.
Hagur heimilanna
batnaði á síðasta ári
Morgunblaðið/Ómar
Heimili Um 76% heimila er með jákvætt eigið fé samkvæmt skattframtölum.
Staða heimila
» Tiltölulega jöfn hækkun á
eigin fé og heildareignum
heimila milli höfuðborgar-
svæðisins og landsbyggðar-
innar.
» Hjón á aldrinum 40 til 44
ára virðast vera skuldsettasti
hópurinn.
» Rúmur fimmtungur fjöl-
skyldna var skuldlaus í árslok
2015.
» Staða einstæðra foreldra
batnar milli ára.
Eigið fé og sparnaður jukust og skuldir fóru lækkandi
Landsbankinn ætlar að taka á sig
það tjón sem villa í útreikningum
Hagstofu Íslands á neysluvísitölu
hefur í för með sér fyrir neytendur. Í
tilkynningu á vefsíðu bankans segir
að þrátt fyrir að Hagstofan telji mis-
tök sín smávægileg, sé ljóst að þau
munu valda tjóni hjá þeim sem tóku
verðtryggð neytendalán hjá Lands-
bankanum á því tímabili sem reikn-
ingsskekkjan var til staðar. Mikill
meirihluti þeirra eru að sögn bank-
ans einstaklingar að taka sitt fyrsta
íbúðalán hjá bankanum.
Kostar bankann tugi milljóna
Landsbankinn þarf að leiðrétta
um 1.000 lán og hleypur kostnaður-
inn á tugum milljóna að sögn bank-
ans. Þeir viðskiptavinir Landsbank-
ans sem yrðu fyrir tjóni vegna
mistaka Hagstofunnar þurfa því
ekki að hafa áhyggjur af hækkun á
lánum sínum. Landsbankinn hefur
ákveðið að leiðrétta lán viðskiptavina
sinna að eigin frumkvæði og án
skyldu. Landsbankinn mun á næstu
vikum reikna út og endurgreiða mis-
muninn inn á höfuðstól lánanna.
Ekki liggur fyrir hvort aðrir bank-
ar eða lífeyrissjóðir muni gera slíkt
hið sama en lífeyrissjóðir landsins
hafa verið umfangsmestir í útlánum
til íbúakaupa á þessu ári. Þórhallur
B. Jósepsson, upplýsingafulltrúi Líf-
eyrissjóðs verslunarmanna, segir að
sjóðurinn sé að fara yfir málið. Þá
eru bæði Íslandsbanki og Arion
banki að skoða með hvað hætti
brugðist verði við villu Hagstofunn-
ar, samkvæmt upplýsingum frá
bönkunum. vilhjalmur@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Peningar Landsbankinn ætlar að
taka á sig tugmilljóna króna tjón.
Landsbankinn
tekur tjónið á sig
Óvíst hvort aðrir
lánveitendur bæti
villu Hagstofunnar
Ríkisútvarpið ohf. (RÚV) og Lífeyr-
issjóður starfsmanna ríkisins (LSR)
eiga um þessar mundir í viðræðum
um skilmálabreytingar á skulda-
bréfi, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu til Kauphallar. Skuldabréfið er
upphaflega tilkomið vegna lífeyris-
skuldbindinga vegna starfsmanna
RÚV og voru eftirstöðvar skulda-
bréfsins 3,1 milljarður um áramótin,
samkvæmt ársreikningi.
Tilgangur viðræðnanna nú er að
létta á greiðslubyrði RÚV og eru
þær liður í fjárhagslegri endurskipu-
lagningu félagsins. Að því er fram
kemur í tilkynningunni hefur verið
gripið til ýmissa aðgerða til að færa
rekstur RÚV til betri vegar.
Ríkisútvarpið lagði til á síðasta ári
að ríkissjóður tæki yfir skuldabréfið.
Á meðan viðræðum stendur við LSR
hyggst RÚV greiða samnings-
bundna vexti en ekki afborganir af
skuldabréfinu sjálfu. Heildarskuldir
RÚV námu tæplega 6,7 milljörðum
króna í árslok 2015 og bókfært eigið
fé félagsins var um 440 milljónir
króna. olafur@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Viðræður RÚV vill breyta skil-
málum skuldabréfs hjá LSR.
RÚV ræðir
við LSR
Vilja skilmála-
breyta skuldabréfi